Feykir - 26.07.2017, Qupperneq 10
Framkvæmdir senn að hefjast við Aðalgötu 21-21a
Hjallur verður bæjarprýði
Sveitarfélagið Skagafjörður og Kaupfélag Skagfirðinga gerðu fyrr á árinu makaskiptasamning á
húnunum við Aðalgötu 16 b annars vegar og 21-21a hins vegar. Við Aðalgötu 16 b hefur Minja-
húsið verið starfrækt til margra ára en mun færast á hinn nýja stað, utar í götunni, að undan-
gengnum viðgerðum hússins. Feykir hafði samband við Ingvar Pál Ingvarsson, tæknifræðing hjá
sveitarfélaginu, og forvitnaðist um framkvæmdir við Aðalgötu 21-21a sem standa fyrir dyrum.
Tvær gamlar myndir sem sýna byggingu Kaupfélagsins frá sitthvorum tímanum. .
MYNDIR: LJÓSMYNDASAFN HÉRAÐSSKJALASAFNS SKAGFIRÐINGA.
Fyrirhugað er að taka húsið
undir safnatengda starfsemi,
sýningarhald og eða móttöku
ferðamanna en sú starfsemi
er í mótun hjá sveitarfélaginu.
Ingvar Páll segir að í stuttu
máli verði farið í að endurbæta
húsið að utan og koma útliti
þess sem næst því sem það var
upphaflega. Að einangra og
klæða veggi að utan með múr,
einangra og pappaleggja þak,
endurgera gamla glugga og
setja nýjar hurðir í viðeigandi
stíl. Þá verður lóð hellulögð.
Syðsti hlutinn sem hýsti
starfsemi Iðju var lagfærður
skömmu fyrir síðustu aldamót
og er ástand þess hluta í mun
betra ástandi og verður þar
minna gert en í mið- og
norðurhluta. Innan húss
verður fjarlægð gömul torf-
einangrun úr þaki og nokkrir
léttir veggir einnig fjarlægðir.
Teikningar og heimildavinna
eru unnin af Stoð.
Í greinargerð segir um
húsið að það hafi verið
byggt á árunum 1934-1935
til að hýsa mjólkursamlag
Kaupfélags Skagfirðinga. Það
starfaði þó ekki nema í 16 ár
í húsinu því nýtt samlag við
Skagfirðingabrautina var tekið
í notkun árið 1951.
Síðan þá hefur ýmis starf-
semi verið í húsinu, m.a.
fóðurblandan til margra ára
en síðustu ár hefur það hýst
geymslur og trésmíðaaðstöðu.
Frá síðust aldamótum fram til
ársins 2015 var Iðjan, vernd-
aður vinnustaður, í suðurhluta
hússins.
Húsið er almennt í slæmu
ástandi í dag, fyrir utan
suðurhluta þess, og ljóst er
að miklar viðgerðir bíða
iðnaðarmanna. Meðal þess sem
gera þarf er að gera við lausa
steypu á útveggjum, einangra
þá, múrklæða og mála, brjóta
niður steyptan þakkant og
steypa nýjan í staðinn, hreinsa
og laga þakplötu og klæða með
tvöföldum tjörupappa. Þá þarf
að endurýja glugga og hurðir
svo eitthvað sé nefnt. Margt
annað væri hægt að tína til en
þetta er það helsta ásamt því
að lóð og umhverfi verður gert
snyrtilegt.
Enginn efi er hjá undirrit-
uðum að þessi framkvæmd
mun verða til mikillar prýði
fyrir Sauðárkrók og sérstaklega
góð fyrir gamla bæinn sem gæti
orðið hjarta bæjarins að nýju í
komandi framtíð.
SAMANTEKT
Páll Friðriksson
Húsið við Aðalgötu 21 má muna fífil sinn fegurri. MYND: PF
KAUPFÉLAG VESTUR HÚNVETNINGA
Strandgötu 1 Hvammstanga Sími 455 2300
Við óskum íbúum í
húnaþingi vestra
til hamingju með eld í húnaþingi
Túnbraut 1-3 Skagaströnd Sími 455 2700 www.skagastrond.is
Hvammstangabraut 5 Hvammstanga Sími 455 2400 www.hunathing.is
Hnjúkabyggð 33 Blönduósi Sími 455 4700 www.blonduos.is
Skagfirðingabraut 17-21 550 Sauðárkróki Sími 455 6000
BLÖNDUÓSBÆR
Höfðabraut 6 Hvammstanga Sími 455 2500 www.hagsaeld.is
www.gamar.is
Glerárgötu 34 Akureyri www.stefna.is
www.skolabudir.is
Aðalgötu 21 550 Sauðárkrókur Sími 453 5050
www.landsvirkjun.is
Sauðárkróki Blönduósi Hvammstanga Sími 455 9200 www.tengillehf.is
www.landsbankinn.is
Garðavegi 29 530 Hvammstanga
Sími 451 2440
VERKFRÆÐISTOFA
Efstubraut 2 Blönduósi Sími 452 7100
10 29/2017