Feykir - 27.08.2017, Qupperneq 2
Pólitíkin er skrítin tík eins og allir vita og oft á tíðum
harður húsbóndi.
Það hefur farið framhjá fáum að kosið verður til
Alþingis innan tíðar þar sem síðasta ríkisstjórn hélt
ekki út. Við vitum að Björt framtíð sleit samstarfinu
við Sjálfstæðisflokkinn og Viðreisn og það á hæpnum
forsendum að mínu mati.
Ég er sammála þeim sem
álíta að betur hefði mátt ræða
málin áður en þessi ákvörðun
var tekin. Tilkynning Bjartrar
framtíðar var á þessa leið:
Stjórn Bjartrar framtíðar hefur
ákveðið að slíta samstarfi við
ríkisstjórn Bjarna Benedikts-
sonar. Ástæða slitanna er
alvarlegur trúnaðarbrestur
innan ríkisstjórnarinnar.
Á tímum gegnsæis og
upplýsinga er ekki meira sagt í þeirri tilkynningu.
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar
framtíðar hafði eins manns meirihluta á Alþingi, 32
þingmenn af 63 og taldi þingflokkur Bjartrar framtíðar
fjóra menn. Það voru sem sagt fjórir menn sem sem
réðu því að við kjósum til Alþingis á ný eftir innan við
árs samstarf flokkanna þriggja. Og bitbeinið var ekki
ágreiningur um fjárlög, landbúnað, vanefndir vegna
heilbrigðiskerfisins eða lélegs viðhalds á þjóðvegum
landsins. Nei, það var trúnaðarbrestur vegna máls,
vissulega leiðindamáls, þar sem faðir forsætisráðherra
skrifar upp á beiðni dæmds barnaníðings sem óskar
eftir að fá uppreist æru samkvæmt lögum. Er það mál
sem ætti að setja ríkisstjórnarsamstarf upp á sker? Ekki
að mínu mati.
Það er vissulega gott sem boðað hefur verið að farið
verði í það að laga lög um uppreist æru. Þau eru barn
síns tíma.
Oft sjáum við háværa pólitíska umræðu komna á
villigötur, sérstaklega á vefmiðlunum, í kommenta-
kerfum og á Facebook. Góður þingmaður getur hlustað
og lesið það sem þar er án þess að láta það stjórna sér í
sífellu. Sá sem lætur stjórnast af dægurmálaþrasi er í
vindinum. Það kann ekki góðri lukku að stýra.
Páll Friðriksson, ritstjóri.
LEIÐARI
Og enn er kosið
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Nemendur fá spjaldtölvur
Rafiðnadeild FNV
Í síðustu viku komu þau Bára Halldórsdóttir, frá
fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins og Ásbjörn
Jóhannesson, framkvæmdastjóri SART, færandi
hendi í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.
Tilefni heimsóknarinnar var að afhenda
nemendum á fyrsta ári í grunndeildar rafiðna
spjaldtölvur til eignar en Fræðsluskrifstofa
rafiðnaðarins og Rafiðnaðarskólinn sjá um að
allir nemendur þeirra skóla sem kenna rafiðnir
eignist slík tæki.
„Námsefnið sem notað er við kennslu í rafiðnum
er að stórum hluta til á miðlægum grunni sem
kallað er Rafbók. Fræðsluskrifstofan heldur utan
um þessa síðu og þarna hefur verið safnað saman
námsefni, bæði nýju og gömlu og eins er þetta
lifandi síða þar sem koma inn kennslumyndbönd
og fleira ítarefni. Með þessu móti ættu nemendur
að vera að fást við svipaða hluti, sama í hvaða skóla
þeir eru,“ segir Garðar Jónsson, deildarstjóri
rafiðna- og bílgreinadeildar FNV. Alls stunda 18
nemendur rafiðn í skólanum, tíu á fyrsta ári og átta
á öðru.
„Ég vil koma á framfæri þökkum til þeirra sem
gáfu, og sérstaklega Fræðsluskrifstofunnar sem
hefur gert virkilega góða hluti með rafbókinni og
heldur kennurum við efnið. Auk þess að hafa
síðuna lifandi og námsefni sem hæfir þeim hlutum
sem iðnin þarf að takast á við í dag. Aðkoma þeirra
að náminu hefur breytt því að stórum hluta til hins
betra og gerir okkur kennurum fært að búa
nemendur betur undir sveinspróf og áframhaldandi
nám,“ segir Garðar. /PF
Heildarafli síðustu viku á Norðurlandi vestra
var allgóður eða 1.031.332 kíló alls. 17 skip og
bátar lönduðu á Skagaströnd rúmlega 563
tonnum, 13 skip og bátar komu með rúmlega
421.514 kíló til Sauðárkróks og þrír bátar
lönduðu tæpum 37 tonnum á Hofsósi. Þá
landaði einn bátur á Hvammstanga tæpum 10
tonnum./FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 17. – 23. september 2017
Góð veiði í liðinni viku
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SKAGASTRÖND
Arnar HU 1 Botnvarpa 368.568
Auður HU 94 Handfæri 5.499
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 1.598
Daðey GK 777 Línutrekt 26.110
Dúddi Gísla GK 48 Lína 18.471
Hafrún HU 12 Dragnót 14.678
Hafdís HU 85 Handfæri 4.323
Húni HU 62 Handfæri 2.384
Kambur HU 24 Handfæri 2.615
Kári SH 78 Landbeitt lína 17.593
Kristinn SH 812 Landbeitt lína 40.651
Maggi Jóns HU 70 Handfæri 1.753
Magnús HU 23 Handfæri 2.028
Mýrarfell SU 136 Handfæri 6.871
Onni HU 36 Dragnót 21.397
Særif SH 25 Landbeitt lína 27.589
Sæunn HU 30 Handfæri 1.052
Alls á Skagaströnd 563.180
Kosið um fjögur efstu sætin
Samfylkingin í Norðvesturkjördæmi
Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvestur-
kjördæmi boðar til auka kjördæmisþings
sunnudaginn 1. október þar sem gengið verður
frá framboðslistanum fyrir alþingiskosningar
2017. Fundað verður á Hótel Bjarkalundi í
Reykhólasveit.
Á kjördæmisþingi verður haldinn
kjörfundur þar sem kosið verður um fjögur
efstu sæti framboðslistans, sbr. samþykkt á
kjördæmisþingi sl. laugardag. Jafnframt verður
lögð fram tillaga uppstillingarnefndar um þau
sæti á framboðslistanum sem ekki er kosið um.
/PF
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 11.153
Dalborg EA 317 Handfæri 870
Fannar SK 11 Handfæri 2.262
Fjölnir GK 157 Lína 96.245
Gammur SK 12 Þorskfiskinet 1.461
Hafborg SK 54 Þorskfiskinet 3.571
Hafey SK 10 Handfæri 1.479
Klakkur SK 5 Botnvarpa 100.275
Málmey SK 1 Botnvarpa 119.982
Már SK 90 Handfæri 471
Óskar SK 13 Handfæri 1.239
Sighvatur GK 57 Lína 81.243
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 1.263
Alls á Sauðárkróki 421.514
HOFSÓS
Ásmundur SK 123 Landbeitt lína 2.473
Þorgrímur SK 27 Landbeitt lína 2.186
Þorleifur EA 88 Dragnót 31.995
Alls á Hofsósi 36.654
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 9.984
Alls á Hvammstanga 9.984
2 36/2017