Feykir - 27.08.2017, Qupperneq 3
Himinn opinn á Hofsósi
Belgísk kvikmynd sýnd í Höfðaborg
Fyrir rúmu ári síðan komu
hingað til Íslands, meðal
annars í Skagafjörð, tveir
ungir kvikmyndagerðarmenn
frá Belgíu, þeir Clyde Gates
og Gabriel Sanson. Tilgangur
fararinnar var að taka upp
kvikmynd en hugmyndin að
handritinu kviknaði þegar þeir
heyrðu söguna af Fjalla-
Eyvindi. Í myndinni segir frá
samfélagi þar sem miklar
hörmungar hafa átt sér stað.
Ung kona virðist haldin
undarlegum sjúkdómi sem
deyðir öll dýr og plöntur sem
hún kemst í snertingu við.
Aðrir íbúar samfélagsins
óttast um öryggi sitt og gera
hana útlæga en ungur
fjárhirðir býðst til að fylgja
henni aftur til síns heima.
Sagan fjallar um ferðalag
þeirra þangað og sambandið
sem myndast milli þeirra.
Þeir félagar, Clyde og Gabriel,
leituðu til heimamanna á
Hofsósi og nágrenni og fengu
þá til að taka að sér hlutverk í
myndinni, auk þess sem þeir
óskuðu eftir nokkrum kindum
og einni kú í hlutverk.
Tvímenningarnir eru afskap-
lega þakklátir þeim sem lögðu
þeim lið og segja undirtektirnar
hafa verið ótrúlega góðar. Og
nú eru þeir væntanlegir aftur í
Skagafjörðinn og ætla að sýna
stuttmynd sína, sem hlotið
hefur nafnið Himinn opinn, í
Höfðaborg á Hofsósi á
fimmtudagskvöldið kemur, 28.
september kl 21:00. „Þangað
eru allir hjartanlega velkomnir
og að sjálfsögðu er frítt inn,“
segja þeir félagarnir.
Myndin var sýnd á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum í
byrjun september og verður
hún einnig á dagskrá RIFF,
Alþjóðlegu kvikmyndahátíðar-
innar í Reykjavík, sem hefst nú
í lok mánaðarins. Fyrir þá sem
ekki komast í Höfðaborg er
hægt að skella sér í bíó í
Reykjavík en upplýsingar er að
finna á https://riff.is/movies/
himinn-opinn. /FE
Þorbjörn Steingrímsson í Sandfelli fer með hlutverk í myndinni.
Mynd: Clyde Gates.
Tinna Björk Arnardóttir verkefnastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
Mynd: Skjáskot úr Föstudagsþætti N4.
Ný heimasíða í notkun
Blönduósbær
Blönduósbær hefur tekið í
notkun nýja heimasíðu með það
að markmiði að gera upplýs-
ingar aðgengilegri og miðla
þannig betri upplýsingum til
íbúa sveitarfélagsins og ann-
arra áhugasamra, eins og segir
í tilkynningu á hinni nýju síðu.
Þar segir að vefsíðan verði í
stöðugri þróun og séu flestar
uppl-ýsingar sem voru á eldri
vefsíðunni nú komnar inn á nýju
síðuna en smátt og smátt verði
þær upp-færðar og það lagað
sem betur má fara. Einnig eru
þeir sem hafa góðar hugmyndir
og ábendingar varðandi
heimasíðuna hvattir til að hafa
samband á netfangið katrin@
blonduos.is. /FE
Verum snjöll
verZlum
heima
Þannig sýnum við ábyrgð
og höfum áhrif til hins betra
N
ÝPR
EN
T
Tinna Björk ráðin verkefnastjóri
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Tinna Björk Arnardóttir hefur
verið ráðin verkefnastjóri hjá
Nýsköpunarmiðstöð Íslands á
Sauðárkróki.
Á heimasíðu Nmi.is segir að
hennar sérþekking sé alþjóða-
viðskipti, frumkvöðlastyrkir,
fyrirtækja- og hugmyndaþróun,
handleiðsla, námskeið, nýsköp-
un og frumkvöðlar, og stuðn-
ingsverkefni. Sjónvarpsstöðin
N4 tók viðtal við Tinnu Björk í
Föstudagsþættinum sem hægt
er að finna á Feyki.is. Þar ræðir
Karl Eskil Pálsson við Tinnu
Björk sem búin er að koma sér
fyrir á Króknum. Hún starfar
fyrir Impru sem er miðstöð
upplýsinga og leiðsagnar fyrir
frumkvöðla og fyrirtæki en
hennar starfssvæði er aðallega
Norðurland vestra þó landið allt
sé undir. /PF
FRÁ HEILBRIGÐISSTOFNUNINNI
SAUÐÁRKRÓKI
9. og 10. okt. Sigurður Albertsson, alm. skurðlæknir
23. til 26. okt. Bjarki Karlsson, bæklunarskurðlæknir
23. og 24. okt. Haraldur Hauksson, alm./æðaskurðlæknir
Sérfræðikomur í október:
Timapantanir í síma 455 4022.
36/2017 3