Feykir - 10.01.2018, Síða 10
Langömmubörnin fá gimbað teppi
Handavinnukonan Bryndís Alfreðsdóttir
ætlar að segja okkur frá handavinnunni
sinni í þessum þætti. Hún er Fljótakona
í húð og hár, fædd og uppalin í Austur-
Fljótum en stundaði kúabúskap í
Langhúsum ásamt manni sínum í 42 ár.
Bryndís hefur búið á Sauðárkróki
síðastliðin tíu ár og segist hafa verið svo
heppin að kynnast prjónahópnum
sínum fljótlega sem hafi hjálpað sér
mikið þar sem hópurinn sé alveg frábær.
Handverk Bryndísar er fjölbreytt eins og
sjá má en mest gerir hún af því að
prjóna.
Hve lengi hefur þú stundað hannyrðir?
-Ég man eftir mér sex ára að teikna
mynstur og stafi í efni og sauma það út,
með tilsögn móður minnar. Svo hef ég
prjónað mikið en fyrsta lopapeysan var
alveg misheppnuð, þá var ég 14 ára og
hafði enga fyrirmynd. Ég hafði bara séð
þær, en ég er búin að prjóna margar
síðan.
Hvaða handavinnu þykir þér skemmti-
legast að vinna?
-Núna prjóna ég mikið af vettlingum,
tátiljum, sokkum, peysum og teppum.
Hverju ertu að vinna að um þessar
mundir?
-Núna er ég að gimba teppi. Ég gef öllum
langömmubörnunum mínum gimbað
teppi við fæðingu og eiga þau að fylgja
barninu áfram.
Hvaða handverk sem þú hefur gert ert
þú ánægðust með?
-Ég get nú ekki gert upp á milli, þetta er
allt jafn gaman, bara það sem er í vinnslu
í það sinnið. En snjókarlarnir mínir eru
settir upp um hver jól og einnig jóladúkur
sem ég saumaði. Svo saumaði ég
sauðskinnsskó og prjónaði leppa í þá. Á
sínum tíma gerði ég merki hestamanna-
félagsinns Svaða. Veðurfarsteppi prjónaði
ég og tók hitastigið á flugvellinum á
Sauðárkróki og annað af flugvellinum á
Siglufirði sem ég gaf mágkonu minni í
afmælisgjöf.
Þess má geta að uppskrift að veður-
farsteppunum birtist í Bændablaðinu 10.
mars 2016. Leikurinn gengur út á að taka
hitastig á ákveðnum stað, alltaf á sama
tíma dagsins í eitt ár, og prjóna eða hekla
eina umferð í þeim lit sem við á en hver
litur táknar ákveðið hitastig, t.d. 6-8°.
Ég ætla að skora á systurdóttur mína,
Friðfinnu Lilju Símonardóttur, að taka
við keflinu, hún er snillingur í öllu
handverki.
( HVAÐ ERTU MEÐ Á PRJÓNUNUM ) frida@feykir.is
Bryndís Alfreðsdóttir / Sauðárkróki
Handavinnukonan Bryndís.
MYNDIR ÚR EINKASAFNI
Veðurfarsteppi. Bryndís gerir mikið af að prjóna vettlinga.
Sauðskinnsskór með leppum. Bryndís saumaði
skóna og prjónaði leppana.
Snjókarlarnir hennar Bryndísar. Ein af mörgum lopapeysum sem Bryndís hefur
prjónað.
Hvað sem þér að baki býr,
ber þar kuta sína,
vertu ekki í roði rýr,
reyndu krafta þína!
Þó að rógs og þræla níð
þér á móti hamist,
aldrei gegnum allt það stríð
orka sálar lamist!
Allt sem líf þitt áfram ber
efli þig til dáða.
Enginn maður yfir þér
á í neinu að ráða!
Göfga skaltu gildi þitt
gegnum hugsun þétta.
Það svo alltaf sanni sitt,
sýni kosti rétta!
Skyggn á ráð sem reynast vel
reistu hugsjón sterka.
Svo að leiði þroskað þel
þig til góðra verka!
Tengdu ei neitt
við tálsins mál,
treystu ei því sem villir.
Lifðu í öllu af lífi og sál
laus við allt sem spillir!
Mörg þó vilji svikin sig
sýna römm með helsið.
Láttu ei kvaðir kúga þig,
kjóstu hugarfrelsið!
oooOooo
Rúnar Kristjánsson
Kjóstu
hugar-
frelsið
Anton Páll
tilnefndur
Íslandshestamennska
Á heimasíðu Háskólans á
Hólum er greint frá því að
Anton Páll Níelsson, reið-
kennari við Hestafræðideild
skólans sé tilnefndur í
kosningu um þjálfara ársins
2017 á vegum FEIF -
alþjóðlegra samtaka um
Íslandshestamennskuna.
Sex þjálfarar hafa verið
tilefndir af samtökum hesta-
manna í sínu heimalandi og
keppa þeir um titilinn. Kosningin
fer fram á Facebook.
Anton er fulltrúi Íslands og
er hann eini karlmaðurinn í
hópnum. Hann er menntaður
reiðkennari frá Háskólanum á
Hólum og hefur kennt við
Hólaskóla árum saman. /FE
10 02/2018