Feykir


Feykir - 28.02.2018, Side 4

Feykir - 28.02.2018, Side 4
Fréttatilkynning Allir geta lært að mála Listmálarinn Sólrún Björk mun verða með námskeið á Norðurlandi í mars og apríl ef næg þátttaka fæst. Föstudaginn 16. mars verður Sólrún með sýnikennslu í and- dyrinu á Kjörbúðinni á Blönduósi klukkan 16:00 til 18:00. Áhuga- samir eru hvattir til að koma og sjá hana vinna. Dagana 17. og 18. mars verður kennsla á Blönduósi, á Hvammstanga 24. og 25. mars og á Akureyri dagana 7. og 8. apríl. Hægt verður að kenna í stofunni í Vatnsdalshólum í apríl ef þurfa þykir. Sólrún er með kennara- réttindi frá Bob Ross skólanum í Bandaríkjunum í landslags-, blóma- og dýramálun. Hún lauk einnig meistaranámi hjá einum af bestu listamönnum Banda- ríkjanna, Joyce Ortner, árið 2013 og er með kennsluréttindi í sjávarmálun. Hún lagði einnig stund á tækni gömlu meistar- anna, t.d. Rembarts og Rubin, og var undir handleiðslu kennarans Eve Roffe. Sólrún hefur málað með þekktum listamönnum og meist- urum, svo sem blómameistar- anum Gary Jenkins, Dorothy Dent, Bill Bayer og Scott Mattin. Námskeiðin fara þannig fram að nemendur mála eitt málverk á dag undir handleiðslu Sólrúnar. Kennslutrönur, strigi, málning og penslar verða á staðnum. Skráningar og nánari upplýsingar hjá Dóru í síma 864-2290 og 868-7837. Einnig er hægt að hafa samband á Facebook- síðunni Listakot Dóru þar sem kennsluverkin eru til sýnis. AÐSENT Yfirlýsing frá stjórn UMSS Aðalstjórn Ungmenna- sambands Skagafjarðar ákvað á fundi sínum 21. febrúar 2018 að lýsa yfir vilja félagsins, sem eins elsta íþrótta- og ungmennasam- bands landsins, til að eiga samstarf við ÍSÍ, UMFÍ og ráðu- neyti íþrótta- mála um að tryggja sem best ofbeldislausa íþróttaiðkun fyrir alla. Í ályktuninni segir að aðal- stjórn UMSS fagni þeirri um- ræðu og við- brögðum sem #MeToo umræð- an hefur leitt af sér og dáist að hugrekki þeirra einstaklinga sem stigið hafa fram fyrir skjöldu til að opinbera svo alvarleg vandamál. Að sama skapi vottar stjórnin öllum fórnarlömbum ofbeldis samúð sína. Stjórn UMSS telur að nú sé lag að vekja upp umræðu um rétt hvers einstaklings til að setja öðrum persónuleg mörk, sama hver staða þeirra er. Það er einnig mikilvægt að hvetja fólk til að líta í eigin barm og taka ábyrgð á hegðun sinni og gjörðum. Í ljósi þessa verður lagt fyrir 98. ársþing UMSS til sam- þykktar, siðareglur, jafnréttis- stefna, fræðslu- og forvarna- stefna og viðbragsáætlun vegna aga- eða ofbeldisbrota, eineltis, kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni sem mun ná til allra aðildarfélaga s a m b a n d s i n s . Með því mun UMSS og aðildar- félög þess ekki einungis marka skýra stefnu gegn kynbundnu- og kynferðisofbeldi heldur draga skýrar línur í h e g ð u n a r v i ð - miðum sem ná til allra þeirra sem að starfinu koma, iðkenda, þjálfara, foreldra, stuðn- ingsmanna og stjórnarmanna. Stjórn UMSS leggur mikla áherslu á að öllum aðildar- félögum verði kynntar þessar reglur, stefnur og áætlun og þeim verði fylgt eftir. Ályktun þess efnis, frá stjórn UMSS, verður send til UMFÍ, ÍSÍ og Lilju Alfreðs- dóttur, mennta- og menning- armálaráðherra að loknu 98. ársþingi 10. mars næstkom- andi. Virðingarfyllst fyrir hönd stjórnar UMSS Arnrún Halla Arnórsdóttir, formaður 4 09/2018 Stefán Gíslason / píanó, orgel og harmonika Keypti heddsett um leið og Doobie's til að trufla ekki jólin í Miðhúsum ( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is Skagfirðingurinn og öðlingurinn Stebbi Gísla (1954) er uppalinn í Miðhúsum í Akrahreppi. Móðir hans hét Guðrún Stefánsdóttir frá Syðri- Bakka í Kelduhverfi en faðir hans, Gísli Jónsson, var frá Miðhúsum í Blönduhlíðinni. Stebbi, sem spilar á píanó, orgel og harmoniku, hefur búið í Varmahlíð til fjölda ára og því varla nema nokkur skref í Miðgarð þar sem hann stjórnar æfingum Karlakórsins Heimis. Hann er tónlistarkennari og hefur komið mörgum snillingnum til vits og tóna. Auk þess að taka Heimismenn til kostanna þá er Stebbi fimmta hjólið undir vagni Álftagerðisbræðra en hann spilar undir hjá þeim hvert sem leið þeirra liggur. Eins og margur skagfirskur tónlistarmaðurinn kom hann líka við í Hljómsveit Geirmundar en spurður um helstu tónlistarafrek sín segir hann þau vera „... að hafa verið starfandi í tónlist, nær óslitið frá 11 ára aldri, en þá byrjaði ég að spila á böllum í Hlíðarhúsinu, Héðinnsminni og mörgum fleiri stöðum.“ Þá má geta þess að nú seinni árin hefur Stebbi verið duglegur að færa sönglög á svið í Skagafirði ásamt Einari Þorvaldssyni og fleira góðu fólki en þar hafa margir ungir söngvarar stigið sín fyrstu skref á stóru sviði. Hvaða lag varstu að hlusta á? – For Once in My Life með Stevie Wonder. Uppáhalds tónlistartímabil? Frá 1974 til dagsinns í dag 2018 – þetta hefur verið eintóm hamingja. Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Það er eiginlega allt sem er fallega flutt, eins og til dæmis: Dein ist mein ganzes herz, með, Domingo og Kaufmann, það er dálítill stíll yfir því. Bee Gees, Stevie Wonder, Elvis Presley, The Mills Brothers, og margt fleira. Svo er það kirkjutónlistin og tónlist sem tengist starfinu, kórunum og Tónlistarskólanum. Hvers konar tónlist var hlustað á, á þínu heimili? Það var hlustað á alla tónlist sem gamla gufan bauð upp á. Haukur Morthens, Sigurður Ólafsson, Ellý Vilhjálms, Raggi Bjarna, K.K. sextett, Hljómsveit Svavars Gests, Bítlana, The Rolling Stones og The Beach Boys, svo dæmi séu tekin. Hver var fyrsta platan/diskurinn/ kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Það var plata með The Doobie Brothers sem ég festi kaup á rétt fyrir jól, fyrir margt löngu. Ég fékk mér líka heddsett, til að geta hlustað á plötuna yfir jólin. Það þótti ekki gott að vera að trufla jólastemninguna með einhverju poppi. Hvaða græjur varstu þá með? Dual frá Itta á Króknum. Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? Bimbó, Bimbó. Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn? Það er engin tónlist sem nær því, það eru frekar einhverjar vondar fréttir. Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Michael Jackson, Justin Timberlake, Bee Gees, Elvis Prestley, Ellý Vilhjálms og Maria Callas. Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Það er mjög notalegt að heyra álfta- og gæsasönginn berast inn um gluggann, neðan frá ánni þegar fer að vora. Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Mér er alveg sama í hvaða landi ég hlusta á tónlist. Ég færi í Hörpu, að hlusta á Justin Timberlake og hefði alla fjölskylduna með. Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? The Beach Boys, Hljómar, Bítlarnir, The Dave Clark Five og The Police. Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Mig hefur aldrei dreymt neitt svoleiðis, maður situr hvort sem er uppi með sjálfan sig. Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Það er erfitt að átta sig á því, ég segi pass. Stebbi (lengst til hægri) einu sinni sem oftar á sviðinu í Miðgarði. Hér með félögum sínum, Álftagerðisbræðrum, á skemmtuninni Lífið er núna. MYND: ÓAB toppurinn Vinsælast á Playlista Stefáns á þessum tímapunkti: Heartbreaker BEE GEES For Once in Mi Life STEVIE WONDER Með nesti og nýja skó HLH FLOKKURINN Paper Doll THE MILLS BROTHERS Dein ist mein ganzes herz PLACIDO DOMINGO / JONAS KAUFMANN Ég vil fara upp í sveit ELLÝ VILHJÁLMS

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.