Feykir - 28.02.2018, Side 4
Fréttatilkynning
Allir geta lært að mála
Listmálarinn Sólrún Björk
mun verða með námskeið á
Norðurlandi í mars og apríl
ef næg þátttaka fæst.
Föstudaginn 16. mars verður
Sólrún með sýnikennslu í and-
dyrinu á Kjörbúðinni á Blönduósi
klukkan 16:00 til 18:00. Áhuga-
samir eru hvattir til að koma og
sjá hana vinna. Dagana 17. og
18. mars verður kennsla á
Blönduósi, á Hvammstanga 24.
og 25. mars og á Akureyri
dagana 7. og 8. apríl. Hægt
verður að kenna í stofunni í
Vatnsdalshólum í apríl ef þurfa
þykir.
Sólrún er með kennara-
réttindi frá Bob Ross skólanum í
Bandaríkjunum í landslags-,
blóma- og dýramálun. Hún lauk
einnig meistaranámi hjá einum
af bestu listamönnum Banda-
ríkjanna, Joyce Ortner, árið 2013
og er með kennsluréttindi í
sjávarmálun. Hún lagði einnig
stund á tækni gömlu meistar-
anna, t.d. Rembarts og Rubin, og
var undir handleiðslu kennarans
Eve Roffe.
Sólrún hefur málað með
þekktum listamönnum og meist-
urum, svo sem blómameistar-
anum Gary Jenkins, Dorothy
Dent, Bill Bayer og Scott Mattin.
Námskeiðin fara þannig fram að
nemendur mála eitt málverk á
dag undir handleiðslu Sólrúnar.
Kennslutrönur, strigi, málning og
penslar verða á staðnum.
Skráningar og nánari upplýsingar
hjá Dóru í síma 864-2290 og
868-7837. Einnig er hægt að
hafa samband á Facebook-
síðunni Listakot Dóru þar sem
kennsluverkin eru til sýnis.
AÐSENT
Yfirlýsing frá stjórn UMSS
Aðalstjórn Ungmenna-
sambands Skagafjarðar
ákvað á fundi sínum 21.
febrúar 2018 að lýsa yfir vilja
félagsins, sem eins elsta
íþrótta- og ungmennasam-
bands landsins, til að eiga
samstarf við ÍSÍ,
UMFÍ og ráðu-
neyti íþrótta-
mála um að
tryggja sem best
ofbeldislausa
íþróttaiðkun
fyrir alla.
Í ályktuninni
segir að aðal-
stjórn UMSS
fagni þeirri um-
ræðu og við-
brögðum sem
#MeToo umræð-
an hefur leitt af sér og dáist að
hugrekki þeirra einstaklinga
sem stigið hafa fram fyrir
skjöldu til að opinbera svo
alvarleg vandamál. Að sama
skapi vottar stjórnin öllum
fórnarlömbum ofbeldis samúð
sína.
Stjórn UMSS telur að nú sé
lag að vekja upp umræðu um
rétt hvers einstaklings til að
setja öðrum persónuleg mörk,
sama hver staða þeirra er. Það
er einnig mikilvægt að hvetja
fólk til að líta í eigin barm og
taka ábyrgð á hegðun sinni og
gjörðum.
Í ljósi þessa verður lagt fyrir
98. ársþing UMSS til sam-
þykktar, siðareglur, jafnréttis-
stefna, fræðslu- og forvarna-
stefna og viðbragsáætlun
vegna aga- eða ofbeldisbrota,
eineltis, kynferðislegrar og
kynbundinnar áreitni sem
mun ná til allra aðildarfélaga
s a m b a n d s i n s .
Með því mun
UMSS og aðildar-
félög þess ekki
einungis marka
skýra stefnu gegn
kynbundnu- og
kynferðisofbeldi
heldur draga
skýrar línur í
h e g ð u n a r v i ð -
miðum sem ná til
allra þeirra sem
að starfinu koma,
iðkenda, þjálfara,
foreldra, stuðn-
ingsmanna og stjórnarmanna.
Stjórn UMSS leggur mikla
áherslu á að öllum aðildar-
félögum verði kynntar þessar
reglur, stefnur og áætlun og
þeim verði fylgt eftir.
Ályktun þess efnis, frá
stjórn UMSS, verður send til
UMFÍ, ÍSÍ og Lilju Alfreðs-
dóttur, mennta- og menning-
armálaráðherra að loknu 98.
ársþingi 10. mars næstkom-
andi.
Virðingarfyllst fyrir hönd
stjórnar UMSS
Arnrún Halla Arnórsdóttir,
formaður
4 09/2018
Stefán Gíslason / píanó, orgel og harmonika
Keypti heddsett um leið og Doobie's
til að trufla ekki jólin í Miðhúsum
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Skagfirðingurinn og öðlingurinn
Stebbi Gísla (1954) er uppalinn í
Miðhúsum í Akrahreppi. Móðir hans
hét Guðrún Stefánsdóttir frá Syðri-
Bakka í Kelduhverfi en faðir hans,
Gísli Jónsson, var frá Miðhúsum í
Blönduhlíðinni. Stebbi, sem spilar
á píanó, orgel og harmoniku, hefur
búið í Varmahlíð til fjölda ára og því
varla nema nokkur skref í Miðgarð
þar sem hann stjórnar æfingum
Karlakórsins Heimis. Hann er
tónlistarkennari og hefur komið
mörgum snillingnum til vits og tóna.
Auk þess að taka Heimismenn
til kostanna þá er Stebbi fimmta
hjólið undir vagni Álftagerðisbræðra
en hann spilar undir hjá þeim hvert
sem leið þeirra liggur. Eins og margur
skagfirskur tónlistarmaðurinn kom
hann líka við í Hljómsveit Geirmundar
en spurður um helstu tónlistarafrek
sín segir hann þau vera „... að hafa
verið starfandi í tónlist, nær óslitið
frá 11 ára aldri, en þá byrjaði ég
að spila á böllum í Hlíðarhúsinu,
Héðinnsminni og mörgum fleiri
stöðum.“ Þá má geta þess að
nú seinni árin hefur Stebbi verið
duglegur að færa sönglög á svið í
Skagafirði ásamt Einari Þorvaldssyni
og fleira góðu fólki en þar hafa margir
ungir söngvarar stigið sín fyrstu skref
á stóru sviði.
Hvaða lag varstu að hlusta á? – For
Once in My Life með Stevie Wonder.
Uppáhalds tónlistartímabil? Frá
1974 til dagsinns í dag 2018 – þetta
hefur verið eintóm hamingja.
Hvaða tónlist fær þig til að sperra
eyrun þessa dagana? Það er
eiginlega allt sem er fallega flutt, eins
og til dæmis: Dein ist mein ganzes
herz, með, Domingo og Kaufmann,
það er dálítill stíll yfir því. Bee Gees,
Stevie Wonder, Elvis Presley, The
Mills Brothers, og margt fleira. Svo
er það kirkjutónlistin og tónlist
sem tengist starfinu, kórunum og
Tónlistarskólanum.
Hvers konar tónlist var hlustað á, á
þínu heimili? Það var hlustað á alla
tónlist sem gamla gufan bauð upp á.
Haukur Morthens, Sigurður Ólafsson,
Ellý Vilhjálms, Raggi Bjarna, K.K.
sextett, Hljómsveit Svavars Gests,
Bítlana, The Rolling Stones og The
Beach Boys, svo dæmi séu tekin.
Hver var fyrsta platan/diskurinn/
kasettan/niðurhalið sem þú
keyptir þér? Það var plata með The
Doobie Brothers sem ég festi kaup á
rétt fyrir jól, fyrir margt löngu. Ég fékk
mér líka heddsett, til að geta hlustað
á plötuna yfir jólin. Það þótti ekki gott
að vera að trufla jólastemninguna
með einhverju poppi.
Hvaða græjur varstu þá með? Dual
frá Itta á Króknum.
Hvert var fyrsta lagið sem þú manst
eftir að hafa fílað í botn? Bimbó,
Bimbó.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér
daginn? Það er engin tónlist sem
nær því, það eru frekar einhverjar
vondar fréttir.
Þú heldur dúndurpartí í kvöld,
hvað læturðu hljóma í græjunum
til að koma öllum í stuð? Michael
Jackson, Justin Timberlake, Bee
Gees, Elvis Prestley, Ellý Vilhjálms og
Maria Callas.
Þú vaknar í rólegheitum á
sunnudagsmorgni, hvað viltu helst
heyra? Það er mjög notalegt að heyra
álfta- og gæsasönginn berast inn um
gluggann, neðan frá ánni þegar fer
að vora.
Þú átt þess kost að fara hvert
sem er í heiminum og skella þér
á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða
tónleika og hvern tækirðu með þér?
Mér er alveg sama í hvaða landi ég
hlusta á tónlist. Ég færi í Hörpu, að
hlusta á Justin Timberlake og hefði
alla fjölskylduna með.
Hvað músík var helst blastað í
bílnum þegar þú varst nýkominn
með bílpróf? The Beach Boys,
Hljómar, Bítlarnir, The Dave Clark Five
og The Police.
Hvaða tónlistarmaður hefur þig
dreymt um að vera? Mig hefur aldrei
dreymt neitt svoleiðis, maður situr
hvort sem er uppi með sjálfan sig.
Hver er að þínu mati besta plata
sem gefin hefur verið út? Það er
erfitt að átta sig á því, ég segi pass.
Stebbi (lengst til hægri) einu sinni sem oftar á sviðinu í Miðgarði. Hér með félögum sínum, Álftagerðisbræðrum, á
skemmtuninni Lífið er núna. MYND: ÓAB
toppurinn
Vinsælast á Playlista
Stefáns á þessum
tímapunkti:
Heartbreaker
BEE GEES
For Once in Mi Life
STEVIE WONDER
Með nesti og nýja skó
HLH FLOKKURINN
Paper Doll
THE MILLS BROTHERS
Dein ist mein ganzes herz
PLACIDO DOMINGO
/ JONAS KAUFMANN
Ég vil fara upp í sveit
ELLÝ VILHJÁLMS