Feykir


Feykir - 28.02.2018, Blaðsíða 12

Feykir - 28.02.2018, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða annað skemmtilegt efni í Feyki? Hafðu samband. Síminn er 455 7176 og netfangið feykir@feykir.is 09 TBL 28. febrúar 2018 38. árgangur Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981 Lítur vel út með veður og færi Svínavatn 2018 Ísmótið Svínavatn 2018 verður haldið laugardaginn 3. mars. Í fréttatilkynningu frá hestamannafélaginu Neista segir að ísinn sé afbragðs góður og að vel líti út með veður og færi. Keppnisgreinar á mótinu eru A-flokkur, B-flokkur og tölt. Skráning er á sportfengur.com hjá Hesta- mannafélaginu Neista. Lokað verður fyrir skráningu á miðnætti í kvöld, miðvikudaginn 28. febrúar. Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma. Ráslistar og aðrar upplýsingar verða birtar á heima- síðu mótsins, is-landsmot.is, þegar nær dregur. /FE Þakkað 44 ára starf sem organisti Anna Kristín Jónsdóttir í Mýrakoti Um síðustu áramót lét Anna Kristín Jónsdóttir í Mýrakoti af störfum sem organisti við fjórar kirkjur austan Vatna í Skagafirði, Hofs-, Hofsóss, - Fells- og Barðskirkjur. Það er óhætt að segja að Anna hafi spilað stórt hlutverk í tónlistarlífinu á þessu svæði. Hún á að baki langan og farsælan feril sem organisti en því starfi hefur hún gegnt síðustu 44 árin auk þess að vera skólastjóri og kennari við Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu og síðar Tónlistarskóla Skagafjarðar í fjölda ára. Síðastliðið föstudagskvöld var haldið kaffisamsæti, Önnu til heiðurs, í Félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi. Þar komu saman prestar og góður hópur sóknarbarna til að þakka Önnu samfylgdina í áranna rás, flutt voru erindi og þakkir færðar. Pálmi Rögn- valdsson, sem um langt skeið var sóknarnefndar- formaður á Hofsósi, flutti þakkarræðu og gerði meðal annars að umtalsefni umhyggju Önnu fyrir kór- félögunum og kirkjunum sem hún hefði starfað við, oft við erfiðar starfsaðstæður í illa upphituðum og köldum kirkjum. Gísli Gunnarsson í Glaumbæ sem lengi var sóknarprestur í Fljótum rifjaði upp samstarf þeirra og færði Önnu bókargjöf. Þá færðu kórar kirknanna Önnu gjöf og einnig formenn sóknar-nefndanna fjögurra fyrir hönd sóknanna. Einnig ávarpaði Ingunn Marín Ingvarsdóttir, 9 ára, Önnu og þakkaði henni fyrir samveruna í kirkjunni. Anna verður í viðtali í Feyki innan skamms. /FE Skapti á Hafsteinsstöðum og Oddi. MYND: is-landsmot.is Halldór Gunnar Hálfdansson og Halla Rut Stefánsdóttir afhentu Önnu gjöf frá kirkjukórum sóknanna Formenn sóknarnefndanna færðu Önnu gjöf. Frá vinstri: Elinborg Hilmarsdóttir úr Fellssókn, Rúnar Páll Hreinsson úr Hofssókn, Anna, Sigurður Steingrímsson úr Barðssókn og Kristín Bjarnadóttir úr Hofsósssókn. MYNDIR: FE Gísli Gunnarsson færði Önnu bókargjöf. Dans og nýsköpun Grunnskólinn austan Vatna Nemendur Grunnskólans austan Vatna höfðu í nógu að snúast í síðustu viku en nemendur frá öllum starfsstöðvunum þremur voru þá samankomnir í skólanum á Hofsósi og unnu saman í nýsköpunar- vinnu. Inn á milli réttu nemendur úr sér og skelltu sér á dansnámskeið hjá Ingunni danskennara sem kenndi þeim vínarkrus og vals og ræl í bland við nýrri spor. Leikskólabörnin á Tröllaborg fengu líka dans- kennslu og sýndu frábæra takta eins og hinir eldri á danssýningu í Höfðaborg sl. fimmtudag en við sama tækifæri var foreldrum og öðrum áhugasömum boðið að sjá afrakstur nýsköpunarnámsins hjá krökkunum. /FE www.skagafjordur.is MAT Á UMHVERFISÁHRIFUM Ákvörðun um matsskyldu - Hulduland í Hegranesi - Nytjaskógrækt Sveitarfélagið Skagafjörður hefur tekið ákvörðun um að nytjaskógrækt í landi Huldulands í Hegranesi sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skal framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Um er að ræða nytjaskógrækt á um 21,7 ha í landi jarðarinnar Huldulands í Hegranesi, landnúmer jarðarinnar er 223299. Ákvörðunin liggur frammi hjá Sveitarfélaginu Skagafirði og á vefsíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is. Einnig á vefsíðu Skipulagsstofnunar www.skipulag.is. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 106/2000 má kæra ákvörðunina til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er til 1. apríl 2018 Sauðárkróki 22. febrúar 2018 Skipulags- og byggingarfulltrúi, Jón Örn Berndsen Dansað af lífi og sál. Nemendur Leikskólans Tröllaborgar á danssýn- ingu. MYND FE

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.