Feykir


Feykir - 28.02.2018, Síða 5

Feykir - 28.02.2018, Síða 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is Fótbolti Rúnar Már með glæsi- mark fyrir St. Gallen Knattspyrnukappinn og landsliðsmaðurinn skagfirski, Rúnar Már Sigurjónsson, skoraði glæsilegt mark, beint úr aukaspyrnu, nú um helgina í 3-0 sigri St. Gallen í svissnesku deildar- keppninni. Rúnar, sem er félags- bundinn Grasshoppers í Sviss, hafði vistaskipti nú í janúarglugganum og spilar með liði St. Gallen sem er að berjast um sæti í Evrópu- deildinni á næstu leiktíð. St. Gallen og Grasshoppers eru bæði í baráttunni í efri hluta deildarinnar en Rúnar virðist búinn að koma sér vel fyrir hjá sínu nýja liði og tryggja sér sæti í byrjunar- liðinu. Í frétt á Fótbolti.net kemur fram að St. Gallen sé að spila leikkerfið 3-5-2 og Rúnar sé þar sem djúpur miðjumaður og geri sterkt tilkall til landsliðssætis fyrir Heimsmeistaramótið sem fram fer í Rússlandi í sumar eins og alþjóð veit. /ÓAB Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum innanhúss Ísak Óli Íslands- meistari í 60m grind Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum innanhúss fór fram um síðustu helgi í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í Reykjavík. Á mótinu keppti fremsta frjálsíþróttafólk landsins og var hörkukeppni í flestum greinum. Á heimasíðu Tindastóls segir að sex Skagfirðingar hafi verið á meðal keppenda, þau Hrafnhildur Gunnarsdóttir, Ísak Óli Traustason, Jóhann Björn Sigurbjörnsson, Svein- björn Óli Svavarsson, Vignir Gunnarsson og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir. Jóhann Björn Sigurbjörns- son náði 2. sætinu í 60m hlaupi, Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir varð í 2.-3. sæti í hástökki, Sveinbjörn Óli Svavarsson 7. sæti í 60m hlaupi og 5. sæti í 200m hlaupi, Hrafnhildur Gunnarsdóttir 8. sæti í kúlu- varpi sem og bróðir hennar Vignir Gunnarsson sem einnig endaði í 8. sæti í kúluvarpi. Ísak Óli Traustason endaði í 6. sæti í stangarstökki, 2. sæti í langstökki og sigraði í 60m grindahlaupi á 8,26 sek sem er persónulegt met. UMSS hafnaði í 4. sæti í verðlaunum talið, af 12 félögum og samböndum sem kepptu á mótinu, og í 6. sæti í heildar- stigakeppninni. /PF Íslenska landsliðið í körfubolta. Pétur er lengst til vinstri í neðri röð, við hlið Loga Gunnars sem spilaði síðasta landsleik sinn eftir hreint magnaðan 147 leikja landsliðsferil. MYND AF VEF KKÍ.IS Undankeppni HM í körfubolta Pétur sýndi góða takta gegn Tékkum Pétur Rúnar Birgisson, 22 ára leikmaður Tindastóls, lék sína fyrstu landsleiki um helgina þegar Ísland gerði sér lítið fyrir og lagði sterk landslið Finna og Tékka í frábærum og æsispennandi landsleikjum í Laugardalshöllinni. Pétur kom ekkert við sögu í fyrri leiknum gegn Finnum en hann fékk að láta til sín taka í naglbít gegn Tékkum í gær og stóð sig með mikilli prýði. Pétur kom inn á undir lok fyrsta leikhluta, í stöðunni 14- 13, og átti á þeim rúmlega tveggja mínútna kafla eina stoðsendingu og stolinn bolta og hefði átt aðra stoðsendingu ef Acoxinn hefði ekki klikkað á íleggju. Þegar fyrsta leikhluta lauk var staðan 19-14. Leikirnir voru tveir af sex leikjum Íslands í undankeppni HM í körfubolta sem fram fer í Kína 2019 og því gríðarlega Rúnar Már Sigurjónsson. MYND AF NETINU www.skagafjordur.is Opinn kynningarfundur á vinnslutillögu að breytingum á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021 Unnin hefur verið vinnslutillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélags- ins Skagafjarðar 2009-2021 sem samþykkt var þann 25. maí 2012. Vinnslutillagan samanstendur af greinargerð ásamt umhverfisskýrslu, þéttbýlis- uppdrætti og sveitarfélagsuppdrætti. Breytingarnar er í sex liðum sem snúa að: (A) Legu Blöndulínu 3, (B) Sauðár- krókslínu 2, (C) Frestun skipulags vegna virkjunarkosta, (D) urðunarsvæði við Brimnes er fellt úr skipulagi, (E) nýju tengivirki og jarðstrengjum í þéttbýli Sauðárkróks og (F) nýjum efnistökusvæðum. Tillagan verður kynnt á opnum fundi að Sæmundargötu 7a á Sauðárkróki fimmtu- daginn 1. mars 2018 kl. 17:00–18:30. Skipulags- og byggingarfulltrúi Skagafjarðar mikilvægir upp á stöðu Íslands í riðlinum og þar með möguleikum á að komast áfram í milliriðil. Fyrir leikinn hafði Ísland tapað fyrir Tékkum á útivelli og sömuleiðis lotið í parket gegn Búlgörum í grátlegum ósigri hér heima. Það var því að duga eða drepast og óhætt að segja að það hafi verið frábært að fylgjast með baráttuglöðum Íslendingum leggja þessa sterku andstæðinga að velli. Fyrri leikurinn fór 81- 76 en sá síðari 76-75 en það var Martin Hermannsson sem fór fyrir liði Íslands og gerði 26 stig í báðum leikjunum. Feykir óskar Pétri Rúnari til hamingju með áfangann. /ÓAB Þrekmótaröðin Guðrún Helga sigraði í kvennaflokki Þrekmótaröðin 2018 fór fram um þar síðustu helgi í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi. Tveir keppendur úr Skagafirði náðu afburða góðum árangri, þau Guðrún Helga Tryggvadóttir Þreksporti og Ægir Björn Gunnsteinsson Crossfit 550. Feykir sagði frá árangri Ægis í síðasta blaði þar sem hann náði að landa 4. sætinu í karlaflokki, 29 ára og yngri og 5. sætinu í opnum flokki karla. Guðrún Helga, eigandi og einka- þjálfari í Þreksport, gerði sér lítið fyrir og sigraði í kvennaflokki, 30- 39 ára og 4. sæti í opnum flokki kvenna. Sannarlega glæsilegur árangur hjá þeim Guðrúnu og Ægi en alls voru skráð 83 lið, 35 pör og 50 einstakl- ingar. /PF Íslandsmeistarinn í 60m grindahlaupi karla. MYND: FRÍ 09/2018 5

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.