Feykir - 28.02.2018, Blaðsíða 6
Rakel framkvæmdastjóri hjá
Safnaráði og hjónin stofnuðu
fyrirtækið Vín og matur sem
flutti inn vín og ólífuolíu frá Ítalíu
en fyrrverandi maður hennar er
mikill vínáhugamaður. „Okkur
langaði alltaf til þess að opna
einhvers konar matarmarkað, í
líkingu við það sem við höfðum
kynnst þarna úti, en það var
einhvern veginn ekki jarðvegur
fyrir það þegar við komum
heim um áramótin 2002-3. Svo
þegar hrunið kom fann maður
hvað aðstæður breyttust og allt
í einu var kominn jarðvegur
fyrir þetta, fólk vildi styðja
íslenskt og styrkja framleiðsluna
okkar hér og allt annar tónn
var í samfélaginu. Við fundum
húsnæði í hverfinu okkar
sem hafði verið sjoppa áður
og fengum það á mjög góðu
verði. Við stukkum á það og
fórum svo í Góða hirðinn og
keyptum borð og stóla og
það sem þurfti til og lögðum
algjört lágmark í innréttingar
en vildum hafa áhersluna á
vöruna sem við vorum að
bjóða. Við fórum svo hringferð
um landið og mynduðum
tengsl við bændur sem voru
Rakel lærði stjórnmálafræði við
HÍ og í framhaldi af því lagði
hún stund á nám í safnafræði
við Harvard í Boston þar sem
hún tók líka gráðu í Master
of liberal arts með áherslu á
sögu lista og arkitektúrs. Áður
en Rakel fór til Boston hafði
fjölskyldan búið eitt ár á Ítalíu
þar sem eiginmaður hennar
var við nám í tónsmíðum hjá
Atla Ingólfssyni en Rakel var
sjálf heima með lítið barn. Eftir
þrjú ár í Boston lá leiðin aftur
til Ítalíu þar sem fjölskyldan
bjó úti í sveit, 15 km suður
af Flórens. Þar vann maður
Rakelar að doktorsverkefni sínu
og hún lauk meistararitgerð um
höggmyndir sem gerðar voru
fyrir dómkirkjuna í Flórens.
Kynntist bændamörk-
uðum í Boston og
Flórens
Á þessum árum vandist
fjölskyldan því að fara á
bændamarkaði, bæði á Ítalíu
og í Boston, og kaupa vörur
beint frá býli. „Ég var mikið
að lesa mér til um næringu og
fékk mikinn áhuga á að stunda
heilbrigðan lífsstíl hvað varðar
matarræði og borða hreint
fæði. Ítalska matargerðarlistin
gengur mikið út á að nota gott
hráefni, bara einfalt en gott.
Gott kjöt og gott grænmeti og
svo matreiðir þú eitthvað úr því
og það þarf ekki að vera flókið
því hráefnið er svo gott. Þú þarft
ekkert að vera að krydda það
óþarflega til að fá bragð, heldur
að láta hráefnið njóta sín. Nota
ferskt og gott hráefni, og láta
bragðið og litinn njóta sín. Það
held ég að sé eitthvað sem er
við bændamarkaði, maður fór
á markaðina og varð einhvern
veginn uppnuminn af því hvað
allt var fallegt, grænmetið og
ávextirnir, ostarnir og pylsurnar,
allt svo girnilegt og freistandi.
Það var svo gaman að fara og
versla. Og það er svo stór hluti af
þessu, að njóta þess frá upphafi
að ná í matinn og setja hann á
borðið. Hann er svo girnilegur
og þig byrjar að dreyma um hvað
þú ætlar að gera gott úr honum
fyrir fjölskylduna,“ segir Rakel
dreymin og blaðamaður hrífst
með og fær vatn í munninn.
Eftir dvölina á Ítalíu gerðist
VIÐTAL
Fríða Eyjólfsdóttir
Í umfjöllun um námskeið Farskólans, Opin smiðja – Beint frá býli, í síðasta
tölublaði Feykis var greint frá því að til standi að opna matarmarkað í gamla
pakkhúsinu á Hofsósi í sumar á vegum Matís. Umsjón með því verkefni hefur
starfsmaður Matís sem nú er búsettur á Hofsósi, Rakel Halldórsdóttir sem
stofnaði og rak verslunina Frú Laugu um árabil ásamt fyrrverandi eiginmanni
sínum. Feykir leit við hjá Rakel í Frændgarði, einu af húsum Vesturfarasetursins
á Hofsósi, þar sem hún hefur skrifstofuaðstöðu.
Rakel í Frændgarði þar sem hún hefur skrifstofuaðstöðu. MYNDIR: FE
Rakel Halldórsdóttir er starfsmaður Matís
Hefjum nýjar hefðir og
viðhöldum gömlum
að gera eitthvað skemmtilegt
og það gekk mjög vel. Svo
opnuðum við bændamarkað
með vörur beint frá býli út frá
okkar hugmyndum um heilsu
og heilbrigt matarræði. Það var
ekki síst fyrir okkar eigin lífsstíl
sem við ákváðum að opna Frú
Laugu. Og þetta var aldrei gert
í einhvers konar gróðaskyni,
heldur af ástríðu og af því að
okkur langaði til þess að þetta
væri aðgengilegt, ekki síst fyrir
okkur sjálf og börnin okkar. En
svo þegar við opnuðum þá kom
í ljós að fjöldi fólks vildi nálgast
svona vörur og hafði þótt það
erfitt áður. Þetta fékk mjög
góðar undirtektir.“
Með mörg verkefni á
sinni könnu hjá Matís
Eftir að leiðir hjónanna skildu
og þau hættu með verslunina
hóf Rakel störf hjá Matís við
verkefni tengd því sem hún
var að gera í Frú Laugu. „Ég
byrjaði á að gera gagnagrunn
yfir alla frumframleiðslu í
landinu. Matís vinnur út frá
sjálfbærnimarkmiðum Sam-
einuðu þjóðanna sem voru sett
til ársins 2030. Þau ganga út á að
auka sjálfbærni allra samfélaga
og grunnurinn að okkar sam-
félagi er frumframleiðslan sem
gerir okkur kleift að vera sjálf-
bær. Það að hafa tök á því að
ná utan um þetta í heildarskrá
er náttúrulega svolítið sérstakt
og kemur til af því að landið er
lítið og fámennt. Ég er að vinna
í þessum gagnagrunni núna og
það er komin nokkur mynd á
þetta. Hugmyndin er að opna
vefsíðu þar sem þetta verður
sett í myndrænt form þar
sem þú hefur kort af landinu
og getur séð dreifinguna á
frumframleiðslunni, bæði það
sem kemur af landi og úr sjó.
Við vonumst til að geta gert
þetta aðgengilegt almenningi
í vor og þetta verður grund-
völlur stefnumótunar og hægt
að nota fyrir alls kyns upp-
lýsingamiðlun sem og fyrir
ferðamennsku. Það verður
vonandi hægt að þróa þetta
þannig að hægt verði að nota
grunninn sem eins konar fókus
á ákveðin landsvæði, þú getir
fengið sjónarhorn inn á ákveðið
svæði og þá ertu með alla
framleiðendur þar og nánari
upplýsingar um framleiðslu
þeirra. Til að mynda í tengslum
við þennan matarmarkað sem
við erum að hugsa um, að
framleiðendur geti hugsanlega
verið með eins konar sölusíðu,
bara fyrir þetta svæði og boðið
sína vöru þar, tilgreint hvað
6 09/2018