Feykir


Feykir - 28.02.2018, Qupperneq 11

Feykir - 28.02.2018, Qupperneq 11
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS: Sókn. Feykir spyr... Hvernig líst þér á lögin í Söngvakeppni Sjónvarpsins? Spurt á Facebook UMSJÓN palli@feykir.is „Þau eru nú ekki alveg að heilla mig en lagið sem hann Dagur syngur stendur upp úr og strákurinn alveg stórkostlegur söngvari.“ Agnes Benediktsdóttir „Mér finnst þau misgóð, ætla að halda með Kúst og fæjó, þær í Heimilistónum eru svo dásamlegar.“ Dagný Rósa Úlfarsdóttir KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Krossgáta Tilvitnun vikunnar Líkt og kletturinn lætur vindinn ekki á sig fá, lætur greint fólk hrós og skammir ekki á sig fá. – Buddha Sósa: Paprikusmurostur settur í pott ásamt smá matreiðslurjóma látið bráðna við vægan hita. Matreiðslurjóma bætt út í eftir þörfum til að þynna. Meðlæti: Sætar kartöflur skornar í bita og settar í eldfast mót með olíu, kryddað með timían og rósmarín. Salat með káli, gúrkum, vínberjum, papriku, raðlauk og tómötum. Doritos snakk (blár poki) gróf- mulið út í og fetaostur settur út í rétt áður en salatið er borið fram. EFTIRRÉTTUR Kakósúpa Aðferð: Útbúið Vilko kakósúpu eftir leiðbeiningum á pakka. Snæðið með Emmes vanilluís út á. Við skorum á þau eldhressu Þorgeir Gunnarsson og Sigríði Margréti Ingimarsdóttir. Verði ykkur að góðu! Kjúklinga- rétturinn okkar Matgæðingar vikunnar eru mæðgurnar Helga Rósa Pálsdóttir og Arndís Lilja Geirsdóttir. Þær fluttu í Skagafjörðinn frá Neskaupstað eftir að Helga Rósa fór í Hólaskóla. „Það var ekki aftur snúið heim eftir það,“ segir hún. „Ég vinn í Verslunin Eyri , Arndís Lilja er í Árskóla. Hún er í Knapamerki 1 og stundar fótbolta en annars lifum við mæðgur og hrærumst í hestum.“ Mæðgurnar gefa okkur uppskrift að kjúklingarétti sem er í uppáhaldi hjá þeim og á eftir þykir þeim gott að fá sér kakósúpu með ís. AÐALRÉTTUR 1 Einfaldar og góðar kjúklingabringur 4 vænar kjúklingabringur sólþurrkaðir tómatar rautt pestó paprikusmurostur matreiðslurjómi Aðferð: Takið kjúklingabringur og leggið flatar á bretti. Skerið inn í hliðina á bringunum, aðeins lengra en inn að miðju þannig að þær haldist saman. Opnið bringurnar og penslið rauðu pestói innan og utan á þær. Skerið sólþurrkaða tómata í smátt og raðið inn í. Lokið bringunum og raðið í eldfast mót. Hitið í ofni á 180° í ca. 40 mín. Helga Rósa og Arndís Lilja. MYND ÚR EINKASAFNI „Sæmileg.“ Bjarki Haraldsson „Hef heyrt betri lög. Senda bara Geirmund með eina skagfirska sveiflu.“ Árni Jónsson ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is Helga Rósa og Arndís Lilja á Sauðárkróki Sudoku Kjúklingabringur. Myndin tengist ekki réttinum hér að ofan. MYND AF NETINU 09/2018 11 Ótrúlegt – en kannski satt.. Leonardo da Vinci (15. apríl 1452 – 2. maí 1519) var málari, myndhöggvari, arkitekt, vísindamaður, stærðfræðingur, verkfræðingur og uppfinningamaður sem kom inn á ýmis svið, svo sem líffærafræði, tónlist, náttúrufræði, rúmfræði, kortagerð og grasafræði. Ótrúlegt, en kannski satt, þá gat hann skrifað með annarri hendi á meðan hann teiknaði með hinni. Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Söfnuð kallar sveit mín börn. Sögð í tafli besta vörn. Fjöldi gesta á fundarstað. Feigur hákarl dregst mér að. FEYKIFÍN AFÞREYING

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.