Feykir - 18.04.2018, Síða 2
Sumarið er tíminn, söng Bubbi Morthens á sínum tíma og
er það sannarlega rétt hjá honum. Við Íslendingar búum
svo vel að hafa það skráð í Almanakið hvenær sumarið
hefst og hvenær því lýkur því
annars er hætta á því að við
áttum okkur ekki á því
hvenær við ættum að rífa
grillið út úr skúrnum eða
draga það fram undan
draslinu sem hrúgað var upp
sl. haust.
En hvað um það.
Sumarið er tíminn, þegar
hjartað verður grænt, söng Bubbi. Ég veit ekki alveg af
hverju hjartað verður grænt en ég vil túlka það þannig að
það samsami sig grasinu og þá er ég ekki að tala um kíló af
grasi sem hann söng um í öðru lagi. Nei, ég er að tala um
þann gróður sem vex á okkar ágætu eyju. Gróðurinn sem
fæðir búpeninginn, kindur, kýr og hross.
Hversu ánægður getur maður verið með íslenska grasið.
Ég var staddur á útskrift Farskólans á Matarsmiðjunni
Beint frá býli sl. mánudag þar sem ræðumaður var að segja
frá heimsókn erlends ostagerðamanns til Íslands sem hélt
því fram að hér á landi væri besta hráefni í heimi til
matvælavinnslu, s.s. mjólkurafurðir og kjötvörur. Taldi
hann m.a. að sá hreinleiki sem íslensk náttúra býður upp á,
og grasið sem skepnurnar éta hvort sem það er beint af
jörðinni eða verkað hey, væri undirstaða gæðanna.
Sumarið er tíminn
þegar kvenfólk springur út
og þær ilma
af dulúð og sól, ójá.
Ég þori ekki að fara út í þá sálma svo ég held mig við heyið,
og kannski góða meltingu og velferð húsdýranna. Mér
finnst að við ættum að vera dugleg að tala íslensku
matvörurnar okkar upp og hvetja erlenda gesti okkar til að
éta sem mest af íslensku gæðafæði. Lambakjötið kemur
fyrst upp í hugann en folaldakjötið ætti líka að vera
áberandi. Það hlýtur að vera ævintýri fyrir fólk sem aldrei
hefur bragðað folald að smakka folaldakjöt, steikt eða
grillað.
Grasbít á grillið verður mottóið í sumar!
Páll Friðriksson
í sumarskapi.
LEIÐARI
Gleðilegt sumar!
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Margir bátar voru á sjó í síðustu viku og er
heildaraflinn á Norðurlandi vestra fyrir vikuna
1.061.339 kíló.
Á Skagaströnd lönduðu 20 bátar rúmum 148
tonnum, 14 skip og bátar lönduðu á Sauðárkróki
rúmum 860 tonnum, þar af tæpum 560 tonnum
af rækju úr norska skipinu Silver Framnes. Tæp
tíu tonn komu á land á Hofsósi af fjórum bátum
og á Blönduósi landaði Onni tæpum 42 tonnum.
/FE
Aflatölur á Norðurlandi vestra 8. – 14. apríl 2018
20 bátar lönduðu á Skagaströnd
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
BLÖNDUÓS
Onni HU 36 Dragnót 41.689
Alls á Blönduósi 41.689
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Grásleppunet 5.545
Bergur sterki HU 17 Grásleppunet 10.358
Blíðfari HU 52 Handfæri 834
Bragi Magg HU 70 Handfæri 6.949
Dagrún HU 121 Grásleppunet 8.720
Dísa HU 91 Handfæri, grásl.net 5.229
Fengsæll HU 56 Grásleppunet 4.171
Geiri HU 69 Handfæri 3.964
Hafdís HU 85 Grásleppunet 2.129
Hafrún HU 12 Dragnót 42.517
Húni HU 62 Handfæri 5.813
Jenný HU 40 Handfæri 2.624
Kambur HU 24 Grásleppunet 7.839
Loftur HU 717 Handfæri 1.425
Már HU 545 Grásleppunet 4.142
Ólafur Magnússon HU 54 Grásleppunet 1.975
Svalur HU 124 Handfæri 152
Sæfari HU 212 Grásleppunet 8.500
Sæunn HU 30 Handfæri 3.348
Vestri BA 63 Rækjuvarpa 22.069
Alls á Skagaströnd 148.303
SAUÐÁRKRÓKUR
Badda SK 113 Grásleppunet 4.169
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 10.135
Drangey SK 2 Botnvarpa 194.368
Fannar SK 11 Grásleppunet 7.882
Fálki ÞH 35 Grásleppunet 6.125
Gammur SK 12 Grásleppunet 1.603
Hafey SK 10 Grásleppunet 7.701
Kaldi SK 121 Grásleppunet 1.611
Már SK 90 Grásleppunet 5.797
Sigurborg SH 12 Rækjuvarpa 34.641
Silver Framnes NO 999 Rækjuvarpa 568.091
Sæfari SK 100 Grásleppunet 2.433
Vinur SK 22 Handfæri 597
Þorleifur EA 88 Þorskfiskinet 16.312
Alls á Sauðárkróki 861.465
HOFSÓS
Skáley SK 32 Grásleppunet 2.074
Skotta SK 138 Grásleppunet 772
Von SK 21 Grásleppunet 631
Þorgrímur SK 27 Grásleppunet 6.405
Alls á Hofsósi 9.882
Höfðingleg gjöf á sjúkrahúsið
Gáfu sjónvarpstæki á stofur og sal
Kiwanisklúbburinn Drangey í
Skagafirði verður 40 ára nú í
maí og af því tilefni gaf
klúbburinn glæsileg sjónvörp
til Heilbrigðisstofnunarinnar
á Sauðárkróki, fimm tæki á
stofur á sjúkradeild og stórt
tæki á Deild 2. Öll tækin
leysa af hólmi minni tæki sem
fyrir voru og í því felst munur-
inn og áhorfendur njóta
betur.
Herdís Clausen, yfirhjúkr-
unarfræðingur, tók við gjöfinni
fyrir helgi og þakkaði velvild
Kiwanisklúbbsins sem hefur
verið ötull að fjármagna tæki
og hluti fyrir sjúkrahúsið á
Sauðárkróki. Hún var að
vonum ánægð með framtakið
og upplýsti að mikill munur
væri fyrir heimilisfólk að hafa
fengið stærri tæki og þar með
aukið þeirra lífsgæði.
Gunnsteinn Björnsson, for-
seti Kiwanisklúbbsins, segir
stærstu gjöfina sem klúbburinn
hafi afhent sjúkrahúsinu sé
speglunartækið sem gefið var
fyrir um fjórum árum síðan.
„Það var verkefni upp á 19
milljónir. Jafnframt höfum við
greitt kostnað við speglun á 55
ára Skagfirðingum síðan en við
erum á fjórða ári núna af fimm
ára samningi. Annað sem má
nefna í sögu okkar er að báðir
bílarnir sem sambýlin hafa til
umráða eru gefnir af okkur,“
segir Gunnsteinn
Þess má geta að klúbburinn
var einn af þeim fyrstu sem
byrjuðu á að gefa reiðhjóla-
hjálma sem nú er orðið að
landsverkefni Kiwanis.
„Kiwanishreyfingin hefur
kjörorðið „Hjálpum börnum
heims“ og er það örugglega á
hverju ári, og oftast nokkrum
sinnum, að við styðjum við
foreldra sem eru með veik börn
án þess að geta þess sérstaklega.
Klúbburinn hefur notið mik-
illar velvildar almennings og
fyrirtækja í Skagafirði sem við
kunnum miklar þakkir fyrir,“
segir Gunnsteinn.
Hann segir að meðlimir
Kiwanisklúbbsins Drangeyjar
muni verða á atvinnulífssýn-
ingunni sem haldin verður í
byrjun maí á Sauðárkróki, og
kynna starfið og sögu klúbbs-
ins.
„En fyrir okkur skiptir
félagskapurinn mjög miklu
máli. Þetta er skemmtilegt starf
og hressilegur félagskapur sem
við vildum gjarnan stækka og
bjóðum öllum, sem hugnast að
taka þátt í skemmtilegu starfi
og félagskap, að hafa samband
við klúbbinn á drangey@
kiwanis.is,“ segir Gunnsteinn
að lokum. /PF
Frá afhendingu tækjanna sl. föstudag. Hér standa fyrir framan tækið í setustofu:
Kristrún Snjólfsdóttir, Herdís Klausen, Gunnsteinn Björnsson, Jónas Svavarsson, Bjarki
Tryggvason og Leó Viðar Leósson. MYND: PF
2 15/2018