Feykir - 18.04.2018, Page 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
Úrslitakeppni Dominos-deildarinnar í körfubolta
Stólarnir í úrslit eftir rosa leik við ÍR
Tindastólsmönnum tókst
ætlunarverkið. Strákarnir okkar
eru komnir í úrslitin eftir að
hafa slegið ÍR út í snargeggj-
uðum körfuboltaleik í Síkinu sl.
föstudagskvöld. Þetta var
leikurinn þar sem spennan og
stemningin braut alla skala –
hér var botnstillingin ekki tíu,
heldur ellefu. Dramatíkin var
ekki síðri og menn eiga
örugglega eftir að tala lengi um
Troðsluna© frá Davenport í
Skagafirði. Maður lifandi!
Lokatölur voru 90-87 í leik þar
sem úrslitin réðust ekki fyrr en á
síðustu sekúndunni.
Það var logn og vorblíða á Króknum
þegar stuðningsmenn beggja liða brenndu
í Síkið til að verða vitni að og taka þátt í
fjórða leiknum í rimmu liðanna í undan-
úrslitum Dominos-deildarinnar. Það var
þó ljóst löngu áður en leikurinn hófst að
það yrði engin lognmolla í Síkinu. Stólarnir
höfðu gert góða ferð suður tveimur dögum
áður og unnu ÍR í Seljaskóla, 69-84, með
góðum leik. Með sigri í fjórða leiknum
voru Stólarnir því á leið í úrslit.
Leikurinn fór fjörlega af stað og líkt og í
fyrri leikjum voru það Hester, Arnar og
Pétur sem fóru fyrir Stólunum sem komust
í 11-6. Ryan Taylor var greinilega betur
stemmdur í liði ÍR en í leiknum í Hertz-
hellinum í leiknum á undan og hann fór
fyrir sínum mönnum. Staðan var 26-27 að
loknum leikhlutanum. Stólarnir náðu upp
betri vörn í öðrum leikhluta og náðu smá
saman yfirhöndinni. Hannes Ingi átti
síðasta orðið í fyrri hálfleik þegar hann
laumaði niður þristi og staðan 52-45.
Sjö stiga forystan var fljót að gufa upp í
byrjun þriðja leikhluta því Sigurkarl gerði
fyrstu þrjár körfurnar og minnkaði
muninn í eitt stig. Þá smellti Hester í þrist
og í raun voru bæði lið sterk í þriðja
leikhluta, Stólarnir þó alltaf með forystu. Á
lokamínútu leikhlutans gerði Hákon
Hjálmars þristi fyrir ÍR en Pétur svaraði
smekklegum flautuþristi. Staðan 76-69
fyrir lokaátökin.
Hester meiðist á ökkla
ÍR-ingar lögðu mikla áherslu á að halda
Pétri og Arnari sem mest frá boltanum eða
körfunni í fjórða leikhluta. Þetta riðlaði að
sjálfsögðu sóknarleik Tindastóls sem varð
strembnari eftir því sem á leið. Þegar sex
mínútur voru eftir urðu Stólarnir síðan
fyrir áfalli þegar Hester virtist snúa sig á
ökkla þegar hann lenti ofan á Axel og í
kjölfarið slengdi Taylor niður þristi og kom
ÍR yfir, 78-80. Það varð fljótt ljóst að Hester
gæti ekki tekið frekari þátt í leiknum og því
fékk Chris Davenport tækifæri til að láta
ljós sitt skína, en hann hefur nú ekki reynst
sérlega happadrjúgur fyrir lið Stólanna.
Nú leist stuðningsmönnum Tindastóls
ekki á blikuna. Danero bætti við öðrum
þristi og munurinn orðinn fimm stig, 78-
83, og rúmar fimm mínútur voru eftir. Nú
stöppuðu Stólarnir í sig stálinu og börðust
sem aldrei fyrr. Taylor braut óíþróttamanns-
lega á Arnari sem setti bæði vítin niður og
í framhaldinu fylgdi Davenport eftir skoti
Axels og blakaði í körfuna. Munurinn eitt
stig og nú var baráttan og spennan orðin
þannig að það gat ekki nokkur maður setið
í Síkinu. Taylor klúðraði tveimur vítum og
Viðar kom Stólunum aftur yfir, 84-83.
Sigurkarl klikkaði á þristi fyrir ÍR og Pétur
skóflaði niður smart körfu eftir gegnum-
brot. Næstu sóknir liðanna
fóru forgörðum en loks var Taylor
sendur aftur á vítalínuna og hann
setti aðeins niður annað skotið sitt
og munurinn tvö stig og innan við
mínúta eftir.
Troðslan© ógleymanlega
Þá var komið að meistarastykk-
inu. Staðan var 86-84 og Stólarnir
þurftu nauðsynlega að auka mun-
inn. Arnar fékk boltann og hann
skellti sér í þriggja stiga skot. Það
small á hringnum og boltinn
skaust hátt til hægri. Þá kom
Davenport skeiðandi að körfunni
og virtist flestum sem hann ætti ekki
nokkurn séns á að ná í boltann, kappinn
stökk upp, teygði út hægri hendina, greip
boltann og tróð með slíkum tilþrifum að
Síkið trylltist. Davenport hafði dúkkað upp
með ásinn á ögurstundu og trompað
Stólana inn í úrslitin!
En leikurinn var ekki búinn. Það voru
enn 35 sekúndur eftir Danero minnkaði
muninn strax í eitt stig en Arnar svaraði
með tveimur vítum þegar sjö sekúndur
voru eftir. Matti náði ágætu 3ja stiga skoti
fyrir ÍR á síðustu sekúndu leiksins til að
jafna en boltinn vildi ekki niður. Fólk dró
andann.
Stólarnir í úrslitaeinvígið
Lið Tindastóls er því komið í úrslitaeinvígið
í annað sinn á fjórum árum. Leikur liðanna
í kvöld var frábær og bæði lið eiga mikið
hrós skilið fyrir leiki sína í einvíginu sem
voru harðir en heiðarlegir. Leikurinn í
kvöld var spennandi og jafn allan tímann,
allir leikmenn gáfu allt sem þeir áttu og
margir stigu upp þegar á þurfti að halda.
/ÓAB
Áhorfendur kátir í Síkinu í leikslok. MYND: HJALTI ÁRNA
Chris Davenport kom, sá og sigraði. Augnalikið eftir Troðsluna©. MYND: HJALTI ÁRNA
Tindastóll – KR
Fyrsti
leikurinn
í Síkinu á
föstudag
Það varð ljóst á laugar-
dagskvöldið hverjir verða
andstæðingar Tindastóls í
einvíginu um Íslands-
meistaratitilinn í körfubolta
tímabilið 2017-2018. Þá
höfðu KR-ingar betur í
einvígi sínu við deildar-
meistara Hauka úr
Hafnarfirði.
Líkt og í einvígi Tindastóls
og ÍR þurfti fjóra leiki til að
leiða einvígið til lykta.
Haukar unnu fyrsta leik
liðanna en köstuðu svo frá
sér sigri á lokamínútu annars
leiks liðanna og í næstu
tveimur reyndust Vesturbæ-
ingar sterkari og sannarlega
reynslunni ríkari en and-
stæðingarnir í Haukum.
Fyrsti leikur Tindastóls
og KR verður á Króknum
nk. föstudag. Bæði liðin
verða að nota hvíldina vel því
nokkur meiðsli eru að hrjá
leikmenn; Hester og Arnar
hjá Stólunum og í liði KR er
Jón Arnór tæpur en Brynjar
Þór virðist vera búinn að
jafna sig af handarbroti.
KR-ingar hafa hinsvegar
styrkt liðið sitt í miðri úrslita-
keppni og hafa kallað Helga
Magnússon heim frá Banda-
ríkjunum og þá hafa þeir
bætt við sig öðrum Kana,
Marcus Walker, sem lék með
Vesturbæingum fyrir sjö
árum en er enn skráður í KR.
Ef bæði lið ná að sleikja
sárin áður en rimman byrjar
þá má sannarlega búast við
hörkuleikjum. Annar leikjur-
inn í rimmunni verður í
Frostaskjóli á sunnudaginn,
sá þriðji verð-ur í Síkinu
miðvikudaginn 25. apríl. Ef
úrslit hafa ekki ráðist í
þremur leikjum verður aftur
spilað í Vesturbænum laug-
ardaginn 28. apríl og til
þrauta í Síkinu 1. maí. /ÓAB
15/2018 5