Feykir


Feykir - 18.07.2018, Blaðsíða 11

Feykir - 18.07.2018, Blaðsíða 11
keypt sé lífræn eplamús, hún er einfaldlegra betri. RÉTTUR 2 Käsekuchen Hitið ofnin Í 180°C. Botn: 65 g smjörlíki 1 egg 65 g sykur 1 matskeið mjólk 1 teskeið lyftiduft 150 g hveiti eða aðeins meira. Aðferð: Búið til deig. Smyrjið lausbotna en hátt kökuform og klæðið það með deiginu. Ostafylling: 1 kg Quark, hér notum við óhrært skyr 5 egg 2 bréf vanillubúðingur (Dr Oetker eða sambærilegt) 375 g sykur 2½ dl mjólk 250 g smjörlíki Aðferð: Hrærið saman sykrinum, smjörlíkinu og eggjunum. Þá er skyrinu bætt við, svo búðingsduftinu og loks mjólk. Þetta er eiginlega mjög þunnt en fer ofan á botnin. Bakið í um klukkustund. Nú er bökunarpappír tekinn fram, gerð smá göt á hann og lagður ofan á kökuna. Svo á að leggja kökugrind ofan á þetta allt saman, hvolfa og láta kólna alveg. Verði ykkur að góðu! Þegar Feykir fór í prentun lá ekki ljóst fyrir hvern Gudrun skoraði á. SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS::Slag. Feykir spyr... Hverju ætlar þú ekki að missa af á Húnavöku? Spurt á Blönduósi UMSJÓN Lee Ann „Ég ætla ekki að missa af afmælisdeginum mínum og kíki kannski í Bröns á Borgin restaurant. Líklegt að ég kíki jafnvel á fótboltaleikinn á föstudagskvöldinu.“ Edda Brynleifsdóttir „Stóra kótelettukvöldinu í félagsheimilinu, kvöldvökunni í Fagrahvammi og svo athöfn í kirkjugarðinum á sunnudaginn þar sem afhjúpað verður upplýsingaskilti um sögu kirkjugarðsins.“ Valdimar Guðmannson „Orgeltónleikum Eyþórs Franzsonar Wechner í kirkjunni á laugardaginn. Snillingur þar á ferð. Síðan ætla ég að sjá leikhópinn Lottu með krökkunum á sunnudaginn en við höfum alltaf haft gaman af þeim.“ Katharina Schneider „Það er alltaf stuð á kvöldvökunni á laugardeginum fyrir alla fjölskylduna.“ Þorgils Magnússon KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson Krossgáta Tilvitnun vikunnar Dæmið mig ekki af árangri mínum, dæmið mig af því hversu oft ég féll en reis upp aftur. – Nelson Mandela Það er ekki komið að tómum kofanum hvað matargerð snertir hjá matgæðingnum Gudrunu Kloes á Laugarbakka. „Sem stendur vinn ég að bók um íslenska matargerð, kokka, frumkvöðla á sviði matargerðar o.fl. fyrir þýska forlagið Christian, sjá www.christian-verlag. Bókin verður á þýsku og mun koma út í haust. Einnig gef ég út og dreifi bók dóttur minnar, Maike Hanneck, um matargerð á Íslandi, ISLAND- KOCHBUCH. Bókin hefur verið á markaði síðan 2004 og er einnig til á frönsku, CUISINER ISLANDAIS, síðan 2006. Ég hef verið búsett á Íslandi í meira en 30 ár, kannski að verða 40 ár, ég man það ekki alveg! Hér hef ég unnið við ýmis störf, m.a. sem þýðandi og atvinnuráðgjafi. Mér liður mjög vel hér, en ég er ennþá mikill Þjóðverji í mér og held sérstaklega upp á heimasvæðið mitt Rheinhessen, en þaðan eru uppskriftirnar hér fyrir neðan,“ segir Gudrun. „Fyrstu uppskriftina notaði ég við kennslu þegar ég kenndi nemendum í Grunnskóla Húnaþings vestra þýsku. Hún er um kartöflu- klatta, KARTOFFELPUFFER. Liður í kennslunni var þýsk matargerð og fór kennslan fram í heimilisfræðistofu. Krakkarnir tóku virkan þátt í undirbúningi en voru í fyrstu svolítið uggandi á meðan þau voru að rífa niður kartöflur og lauk. Þetta var jú eitthvað nýtt. En svo borðuðu þau allt upp til agna með bestu lyst. RÉTTUR 1 Kartoffelpuffer 2 stórar kartöflur á mann, skrældar - þó ekki bökunarkartöflur 1 stór laukur 2 egg salt og pipar majóran hveiti eftir þörfum smjörlíki til steikingar Aðferð: Rífið niður kartöflur og laukinn. Í skólanum gerðum við þetta með rifjárni. Bætið eggjum út í, kryddið og hrærið. Svo er hveiti bætt við, ein matskeið fyrir hverja kartöflu. Hrærið aftur. Steikið klattana báðum megin á heitri pönnu í smörlíki. Ekki nota olíu, annars verður þetta bara gums. Með þessu er borðuð eplamús (sem heitir applesauce á ensku og er til í krukkum í búðum.) Lagt er til að Su do ku Kartoffelpuffer og Käsekuchen ( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is Gudrun Kloes á Laugarbakka matreiðir Gudrun Kloes. MYND: KARL LUDWIG WETZIG 28/2018 11 Ótrúlegt – en kannski satt.. Fílar eru stærstu landdýr jarðar og finnast bæði í Afríku og Asíu. Fílarnir í þessum tveimur heimsálfum eru mjög keimlíkir, með langan rana og stór eyru, en töluverðan mun er þó hægt að finna hjá þeim. Asíufíllinn er t.d. mun minni en sá sem býr í Afríku, með fjórar tær á afturfótum meðan sá afríski er aðeins með þrjár. Ótrúlegt, en kannski satt, þá eru fílar einu landdýrin sem ekki geta hoppað. Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum. Ég er vopnaviðskipti. Veðrabrigði að haustlagi. Flík sem aftrar aðslagi. Efni í þorra góðmeti. FEYKIFÍN AFÞREYING

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.