Feykir - 25.07.2018, Side 2
Ég naut þeirra forréttinda að alast upp á Blönduósi, frá sjö
ára aldri, þar sem ég lék mér óhult allan daginn og skilaði
mér svo heim þegar ég var orðin svöng eða þreytt. Móðir
mín átti pínu erfitt með að aðlagast þessu eftir að hafa
búið erlendis og í Reykjavík og á tímabili var ég líklegast
eina sjö ára barnið á Blönduósi
sem var sett í pössun á morgn-
ana áður en skólinn byrjaði
eftir hádegi.
Þegar ég fluttist svo í burtu
frá Blönduósi til að mennta mig
var ég alveg handviss um að ég
myndi aldrei flytja aftur heim.
Ég sá enga framtíð þar. En svo
eignaðist ég barn og allt
breyttist. Eftir að ég fluttist aftur
heim árið 2014 eftir háskólanám
hefur það ítrekað gerst að fólk
geri athugasemdir við búsetu mína. Ég fæ reglulega
spurninguna „Býrðu í alvörunni á Blönduósi?“ og svo fylgir
í framhaldinu „ætlar þú ekkert að flytja í bæinn bráðlega?“
Ég hef oft svarað þessu með spurningunni: „Af hverju ætti
ég að vilja það?“ Á Blönduósi hef ég allt sem ég þarf. Foreldra
mína og vini og það stuðningsnet sem ég þarf. Frábæran
grunnskóla, bestu sundlaug landsins, góða vinnu og stutt er í
allar áttir. Sonur minn getur leikið sér óhultur eins og ég gerði.
Við mæðginin erum dugleg að ferðast saman og sækja
viðburði, hvort sem það er á tónleika, bíó eða aðra afþreyingu.
Við erum heppin með það að veðrið hefur svona nokkurn
veginn verið til friðs þannig að við höfum komist þangað sem
við viljum fara. Við höfum því allt sem við þurfum.
Þrátt fyrir að það geti stundum reynt á að búa í litlu
samfélagi, þá eru kostirnir miklu fleiri heldur en gallarnir.
Ef eitthvað kemur upp á, lítið eða stórt, þá eru allir
reiðubúnir til að aðstoða. Hvort sem það eru flutningar,
undirbúningur fyrir viðburði, bakstur fyrir erfidrykkjur
eða annað. Samtakamáttur íbúa í litlum sveitarfélögum er
nefnilega alveg ótrúlegur. Þegar það þarf að gera eitthvað,
þá er það bara gert.
Þess vegna vil ég hvergi annarstaðar búa.
Lee Ann Maginnis,
blaðamaður
LEIÐARI
Býrðu í alvörunni á Blönduósi?
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Lee Ann Maginnis, bladamadur@feykir.is & 867 3799, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk.
Lausasöluverð: 650 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Í síðustu viku lögðu 33 bátar upp á Skaga-
strönd og var afli þeirra rétt um 109 tonn.
Á Sauðárkróki var landað rúmum 719
tonnum af 14 skipum og bátum, þar af um
295 tonnum af rækju sem Silver Framnes
flutti hingað. Á Hofsósi lönduðu fjórir bátar
12,7 tonnum. Heildarafli síðustu viku á
Norðurlandi vestra var 840.968 kíló. /FE
Aflatölur 15. – 21. júlí 2018 á Norðurlandi vestra
719 tonnum landað á Sauðárkróki
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SKAGASTRÖND
Arndís HU 42 Handfæri 1.224
Auður HU 94 Handfæri 8.983
Beggi á Varmalæk HU 219 Handfæri 1.634
Bergur sterki HU 17 Handfæri 542
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 2.430
Blíðfari HU 52 Handfæri 2.407
Blær HU 77 Landbeitt lína 805
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 2.294
Dísa HU 91 Handfæri 785
Dóra ST 225 Handfæri 5.672
Elín ÞH 82 Handfæri 2.482
Fengsæll HU 556 Handfæri 1.831
Garpur HU 58 Handfæri 1.418
Geiri HU 69 Handfæri 2.486
Guðmundur á Hópi HU 203Lína 7.269
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 2.342
Gyðjan HU 44 Handfæri 1.164
Hafdís HU 85 Handfæri 1.664
Hafrún HU 12 Dragnót 24.388
Jenný HU 40 Handfæri 1.636
Kambur HU 24 Handfæri 2.018
Katrín GK 266 Landbeitt lína 7.218
Loftur HU 717 Handfæri 3.203
Lukka EA 777 Handfæri 1.597
Magnús HU 23 Handfæri 4.564
Már HU 545 Handfæri 1.699
Sandvík GK 73 Handfæri 2.803
Smári HU 7 Handfæri 2.306
Svalur HU 124 Handfæri 2.034
Sæfari HU 212 Landbeitt lína 846
Sæunn HU 30 Handfæri 2.485
Víðir EA 423 Handfæri 2.270
Víðir ÞH 210 Handfæri 2.423
Alls á Skagaströnd 108.922
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 17.916
Drangey SK 2 Botnvarpa 147.904
Gammur II SK 120 Handfæri 1.036
Gjávík SK 20 Handfæri 2.149
Hafborg EA 152 Dragnót 28.372
Kristín SK 77 Handfæri 2.212
Maró SK 33 Handfæri 2.273
Málmey SK 1 Botnvarpa 169.947
Már SK 90 Handfæri 559
Onni HU 36 Dragnót 16.752
Sigurborg SH 12 Rækjuvarpa 31.504
Silver Framnes NO 999 Rækjuvarpa 294.732
Steini G SK 14 Handfæri 1.093
Vinur SK 22 Handfæri 2.839
Alls á Sauðárkróki 719.288
HOFSÓS
Geisli SK 66 Handfæri 6.087
Skáley SK 32 Handfæri 3.203
Skotta SK 138 Handfæri 2.346
Þorgrímur SK 27 Handfæri 1.122
Alls á Hofsósi 12.758
Rauði krossinn í Skagafirði fær góða gjöf
Fékk fjórar kennslubrúður frá Blöndustöð
Nýverið færði Blöndustöð Landsvirkjunar
Rauða krossinum í Skagafirði fjórar
kennslubrúður (ungbörn) að gjöf. Var það
gert í þakklætisskyni fyrir góða þjónustu og
árangursríka skyndihjálparkennslu til margra ára
bæði fyrir unglinga í sumarvinnu og fastráðið
starfsfólk.
Guðmundur R. Stefánsson, stöðvarstjóri
Blöndustöðvar, afhenti gjöfina og veitti Karl
Lúðvíksson, skyndihjálparkennari, henni við-
töku og þakkaði velvildina. /FE
Sumarfrí í Nýprenti
Feykir og Sjónhorn
Mánudaginn 30. júlí lokar
Nýprent vegna sumarleyfa en
opnar aftur þann 13. ágúst.
Næstu blöð eftir sumarfrí
koma út miðvikudaginn 15.
ágúst n.k.
Efni verður sett inn á vefinn
www.feykir.is meðan á lokun-
inni stendur. Lee Ann Maginnis,
blaðamaður, mun standa vakt-
ina og hægt er að ná á hana í
gegnum netfangið bladamadur
@feykir.is eða í síma 867-3799.
/LAM
Listir og menning
Þriðja tölublað ICEVIEW komið út
Þriðja tölublað ICEVIEW er
komið út. Tímaritið fjallar um
verk rithöfunda og listamanna
sem ferðast til Íslands í
sköpunarhugleiðingum. Það
miðlar reynslu listamanna
af dvöl þeirra á Íslandi með
viðtölum og myndum af
listaverkum auk þess að birta
ritverk þeirra.
Tímaritinu er ætlað að brúa
það bil sem skapast getur milli
íbúa og gesta sem dvelja tíma-
bundið á landinu og þannig
skapa vettvang fyrir listamenn til
að koma list sinni á framfæri við
breiðan hóp unnenda. ICEVIEW
er meira en bara listatímarit fyrir
listamenn, útgáfunni er beint að
öllum íbúum landsins sem fá
tækifæri á að eiga samtal við
samfélög listamanna sem þróast
hafa á landinu.
Ritstjóri ICEVIEW er KT
Browne og aðstoðarritstjórar eru
Emilie P. Slater og Katharina
Schneider. nList, sem er útgef-
andi ICEVIEW, eru almenn
félagasamtök sem ekki eru rekin
í hagnaðarskyni. Með félaginu
hafa aðstandendur áhuga á að
kanna snertifleti lista og vísinda
með gagnrýninni hugsun og
þverfaglegri samvinnu. Útgáfa
nList leggur áherslu á breidd
tungumála og að samtvinna
texta og myndform til að koma
túlkun sinni á framfæri við
samfélag hugsuða. /LAM
Guðmundur R. Stefánsson, stöðvarstjóri, afhendir gjöfina og Karl
Lúðvíksson, skyndihjálparkennari, tekur við fyrir hönd Rauða
krossins í Skagafirði. AÐSEND MYND
2 29/2018