Feykir - 22.08.2018, Side 11
mjög góður og hollur matur!
RÉTTUR 2
Russischer Zupfkuchen
Seinni uppskriftin er af köku sem
kallast „Russischer Zupfkuchen“
eða rússnesk „klípu“kaka en hún
kemur samt ekki frá Rússlandi,
það hljómaði bara svo vel þegar
þessi uppskrift kom fram í
kökusamkeppni. Eins og með fyrri
uppskriftina er hún upprunalega
með kvark en ég nota bara skyr í
staðinn.
Deig:
1 egg
150 g sykur
250 g smjörlíki
400 g hveiti
15 g lyftiduft
50 g kakóduft
Fylling:
3 egg
200 g sykur
vanillusykur/vanilludropar
250 g smjör
½ poki vanillubúðingsduft (eins
og fyrir 500 ml mjólk)
500 g skyr
Aðferð: Deigið er hrært saman, fyrst
egg og sykur, svo er smjörlíki bætt við
og loks þurrefnum. Helmingur er
settur í botn og upp með hliðinni á
stóru, kringlóttu kökuformi, hinn
helmingurinn er geymdur til að setja
ofan á.
Fyllingin er einnig hrærð saman, egg
og sykur fyrst, svo er hinu bætt við.
Þessu er svo hellt ofan á botninn og
loks er hinn helmingurinn af deiginu
settur ofan á. Það er gert með því að
taka klípu og klípu af deigi og setja á
fyllinguna. Það heitir „Zupfen“ á
þýsku og þaðan kemur nafnið á
kökunni.
Kakan er svo bökuð við 200°C í 50
mínútur, passið samt að hún verði
ekki of dökk. Hún þarf að vera orðin
köld þegar hún er borðuð.
Verði ykkur að góðu!
Ég ætla að skora á Oliviu Weaving á
Hlaðhamri að koma með uppskriftir
næst.
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU OG LÍKAMSRÆKT FEYKIS::Fall.
Feykir spyr...
Hvað finnst þér
það besta við
haustið?
Spurt á Facebook
UMSJÓN Lee Ann
„Veðrið, því það er svo rólegt og
ekki of kalt. “
Guðbjörg Pálína Sigurðardóttir
„Það besta við haustið eru
réttarböllin.“
Guðmundur Steinar Aron
Kristínarson
„Mér finnst myrkrið og
stjörnurnar það besta við
haustið. “
Svava Björk Vilhjálmsdóttir
„Göngur og réttir. “
Valgeir Ívar Hannesson
Tilvitnun vikunnar
„Visku má öðlast með þjáningu. Gegnum missi og mistök lærist
okkur hvað raunverulega skiptir máli í lífinu.“ – Pam Brown
Það er þýski Miðfirðingurinn Henrike Wappler sem gefur okkur
uppskriftir að þessu sinni. Henrike, sem er frá Bautzen í Saxlandi
sem tilheyrir hinu gamla Austur-Þýskalandi, kom til Íslands árið
1999 og er hér enn.
Hún er félagsráðgjafi að mennt og starfar sem slíkur hjá
fjölskyldusviði Húnaþings vestra og einnig Skagafjarðar. Henrike er
gift Friðrik Jóhannssyni, bónda á Brekkulæk í Miðfirði, þar sem
þau búa með börnum sínum þremur. „Ég er stödd í Bautzen, í
sumarfríi hjá fjölskyldunni minni, og ætla því að koma með tvær
uppskriftir héðan frá Þýskalandi,“ segir Henrike.
RÉTTUR 1
Pellkartoffeln mit
Kräuterquark
(skrældar kartöflur með
kryddkvark)
Fyrst er það uppskrift að
hádegismat sem var fyrr á tímum
borðaður nokkrum sinnum í viku
og er í uppáhaldi hjá mér. Það er
„Pellkartoffeln mit Kräuterquark“
sem eru skrældar kartöflur með
kryddkvark. Þar sem kvark fæst
ekki á Íslandi nota ég skyr og
gengur það vel.
kartöflur – eins margar og þarf
skyr – t.d. 250 g
mjólk til að hræra í skyrið
salt, pipar, paprika
ferskar kryddjurtir eins og steinselja,
graslaukur og dill
saxaður laukur
hörfræolía
smjör
Aðferð: Kartöflur eru soðnar með
hýði, sem er ekki algeng í Þýskalandi,
og ef það eru nýjar kartöflur má svo
gjarnan borða þær með hýðinu.
Mjólkin er svo hrærð út í skyrið eins
og gert er fyrir sætt skyr. Svo er það
kryddað með salti, pipar, papriku og
ferskum kryddjurtum sem til eru
hverju sinni. Einnig er söxuðum lauk
bætt við. Hörfræolía fæst núna í
góðum matvörubúðum eins og KVH
(á Hvammstanga) en fyrstu árin mín
á Íslandi kom ég með hana frá
Þýskalandi. Það eru ekki allir hrifnir
af hörfræoliu (Friðrik mínum finnst
hún líklega jafn slæm og mér lýsi), en
ég lauma gjarnan einni matskeið í
skyrið, það tekur enginn eftir því.
Og meira þarf ekki að gera! Við
borðum kartöflurnar heitar, tökum
hýðið af eða ekki, stráum salti yfir og
höfum (kalda) skyrblöndu með. Ég
set slatta af hörfræolíu yfir
kartöflurnar en þau sem vilja það
ekki nota bara smjörklípu. Þetta er
Su
do
ku
Kartöflur með kryddskyri
og rússnesk klípukaka
( MATGÆÐINGAR VIKUNNAR ) frida@feykir.is
Henrike Wappler matreiðir
Henrike Wappler ásamt fjölskyldu. Mynd úr einkasafni
31/2018 11
Ótrúlegt – en kannski satt..
Los Angeles er borg í Suður- Kaliforníu í Bandaríkjunum og búa
þar um 3.847.400 manns en á öllu LA svæðinu yfir 18 milljónir.
Ótrúlegt, en kannski satt, þá er upprunalegt heiti borgarinnar
El Pueblo de Nuestra Señora la Reina de los Ángeles del Río
Porciúncula. Algengt er að skammstafa nafn borgarinnar í LA
og næst þá að stytta það um 96,37%.
Vísnagátur Sigurkarls Stefánssonar
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum.
Ath. Í síðasta blaði var lausnarorðið ekki
rétt. Rétt lausn er: Fjöður.
Komin er að mér konan mörg.
Kunn við mér er engin björg.
Fjárbónda ég fell í skaut.
Fótakefli á lærdómsbraut.
FEYKIFÍN AFÞREYING