Feykir - 03.10.2018, Síða 3
Margt að gerast hjá Farskólanum
Ýmis námskeið í boði fyrir
matvælaframleiðendur
Nemendur á námskeiði í úrbeiningu ásamt leiðbeinanda. Vörusmiðja BioPol er einkar hentug fyrir hvers konar matvælaframleiðslu.
MYND: HALLDÓR B. GUNNLAUGSSON
Nýlega hófst á vegum
Farskólans og námskeiðsröð
í fullvinnslu ýmiss konar
landbúnaðarafurða.
Námskeiðin eru öll haldin
í Matarsmiðju BioPol á
Skagaströnd og eru styrkt
og niðurgreidd af SSNV,
Samtökum sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra.
Fyrirhugað er að halda nokkur
mismunandi dagsnámskeið og
verður hægt að sækja stök
námskeið eða alla nám-
skeiðsröðina sé þess óskað. Nú
þegar hafa nokkrir hópar farið í
gegnum námskeið í úrbeiningu
og er fullbókað á það næsta sem
haldið er á morgun fimmtudag.
Námskeiðin sem boðið er
upp á eru: Úrbeining á kind, heit-
og kaldreyking á villibráð, pate-
og kæfugerð, fars-, pylsu- og
bjúgnagerð, hrápylsugerð, söltun
og reyking og að þurrka og grafa
kjöt.
Í fyrravetur stóð Farskólinn
fyrir námskeiðinu „Matarsmiðja
– Beint frá býli“ í Skagafirði.
Námskeiðið mæltist mjög vel
fyrir og nú á að endurtaka leikinn
í Húnavatnssýslum. Á nám-
skeiðið kemur fjöldi gestafyrir-
lesara, farið verður yfir hrein-
lætis- og örverufræði, úrbeiningu
og vinnslu, geymsluþol, merk-
ingar, vöruþróun, uppskrifta-
gerð, gæðamál, lög og reglur og
sölu- og markaðsmál. Mikil
áhersla verður lögð á verklega
þáttinn og farið yfir framleiðslu á
vörum úr kindakjöti. Þá fá
þátttakendur einn vinnsludag í
Vörusmiðju BioPol á Skaga-
strönd endurgjaldslaust.
Námskeiðið verður haldið
miðsvæðis í Húnavatnssýslum
og er áætlað að það hefjist í lok
október. Lágmarksfjöldi á
námskeiðið er tíu þátttakendur.
SSNV er einnig bakhjarl þessa
námskeiðs. /FE
60áraDanslagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks 1957-1971
Langar þig í Salinn?
Enn höldum við áfram með
getraunaleikinn okkar um
það hver sé á myndinni.
Leikurinn er í samstarfi við
tónleikahaldara danslaga-
keppninnar á Króknum, sem
slógu í gegn á Sæluvikunni á
Sauðárkróki 2017 og síðasta
vetur í Salnum Kópavogi.
Verða þeir endurfluttir
í Salnum Kópavogi 2.
nóvember klukkan 20:30.
Þeir voru margir sem þekktu
kappann í síðasta blaði en þar
var á ferðinni Gunnar Páll
Ingólfsson sem spilaði með
hljómsveit Hauks Þorsteins-
sonar, var kjötiðnaðarmaður á
Króknum og samdi trúlega eitt
þekktasta lagið sem þátt tók
í danslagakeppnum Kvenfé-
lagsins, Útlagann, við texta
Davíðs Stefánssonar.
Dregið var úr réttum
svörum og kom nafn Ingi-
bjargar Jóhannesdóttur, Ketu í
Hegranesi, upp úr hattinum.
Getur hún komið á skrifstofu
Feykis og nálgast tvo miða á
tónleikana.
Hver er konan?
Nú spyrjum við á ný: Hver er
konan á myndinni?
Hún átti nokkur lög í keppn-
unum, líkt og pabbi hennar,
sem er kannski eitt af þekktari
tónskáldum Skagafjarðar.
Þessi kona átti sigurlag í
keppninni, Júnínótt, og eftir að
tilkynnt var hver væri höfundur,
gekk sú saga um bæinn að
það gæti bara ekki verið að
hún ætti lagið, svo fallegt væri
það - pabbi hennar hlyti bara
að vera höfundurinn.
En hún átti svo sannarlega
lagið, og mörg önnur falleg í
keppnunum, og verður m.a
flutt lag eftir hana í Salnum
þann 2. nóvember nk.
Svör skulu berast eigi síðar
en mánudaginn 8. október nk.
á netfangið palli@feykir.is. /PF
Hver er konan?
Verið velkomin á
KS daga
11. og 12. október 2018
Komdu og gerðu góð kaup!
Hvatapeningar hjá Svf. Skagafirði
Kanna samspil hvata-
peninga og æfingagjalda
Formaður félags- og tómstundanefndar Svf. Skagafjarðar og
frístundastjóri kynntu niðurstöður fundar með formanni og
framkvæmdastjóra UMSS um samspil hvatapeninga annars vegar
og æfingagjalda íþróttafélaganna hins vegar á fundi nefndar-
innar í gær.
Málið verður unnið áfram og var samþykkt að leggja tillögu fyrir
nefndina við seinni umræðu fjárhagsáætlunar en það er vilji
nefndarinnar að gera betur í þeim málum er varða hvatapeninga til
skagfirskra ungmenna. /PF
37/2018 3