Feykir - 10.10.2018, Blaðsíða 5
F ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.is
Ísland gegn Frakklandi og Sviss
Þrír Skagfirðingar í
íslenska landsliðshópnum
Erik Hamren, landsliðsþjálfari
A karla í fótbolta, hefur
tilkynnt hópinn sem mætir
Frakklandi í vináttuleik á
morgun fimmtudag og
Sviss í Þjóðadeild UEFA nk.
mánudag. Þrír grjótharðir
Skagfirðingar eru í liðinu;
Hólmar, Kári og Rúnar.
Á vef KSÍ segir að miðasala á
leik Íslands og Sviss í Þjóðadeild
UEFA mánudaginn 15. október
sé í fullum gangi á tix.is en um
gríðarlega mikilvægan leik er að
ræða. Sigur gæti þýtt að Ísland
verði í efsta styrkleikaflokki
fyrir undankeppni EM 2020.
10 af 12 efstu liðum A deildar
Þjóðadeildarinnar skipa efsta
styrkleikaflokk fyrir dráttinn í
undankeppni EM 2020 og því til
mikils að vinna.
Þrír Skagfirðingar voru
valdir í hópinn en það eru þeir
Hólmar Örn Eyjólfsson, Kári
Árnason og Rúnar Már Sigur-
jónsson.
Hólmar Örn er sonur Eyjólfs
Sverrissonar sem gerði garð-
inn frægan í Þýska boltanum
og Önnu Pálu Gísladóttur
Kristjánssonar og Díu Ragnars.
Kári Árnason, sem hætti við að
hætta eftir HM í Rússlandi, er
hálfur Hofsósingur, en hann er
sonur Fanneyjar Friðbjörns-
dóttur hjúkrunarfræðings sem
fædd er og uppalinn á Hofsósi.
Rúnar Már er sá eini af þeim
þremur sem alinn er upp hjá
Tindastóli, sonur Sigga Magga
Alla Robb og Sigurlaugar
Konráðs.
Á vef Skagfirðingafélagsins
var þess getið fyrir EM 2016 að
móðurafi Gylfa Þórs Sigurðs-
sonar, Ólafur Gíslason, hafi alist
upp á bænum Undhóli í
Óslandshlíð. Var hann m.a. í
Bændaskólanum á Hólum og
mikill afreksmaður í íþróttum
og hefði þar af leiðandi ágætis
tengingu við Skagafjörðinn. /PF
Dominos-deildin í körfuknattleik hófst sl.
fimmtudagskvöld og lið Tindastóls fékk Þór
Þorlákshöfn í heimsókn en liðunum er spáð
misjöfnu gengi í vetur. Stólarnir náðu frá-
bærum kafla í fyrri hálfleik þar sem þeir
bjuggu til heilbrigt forskot og það náðu
gestirnir aldrei að brúa þó svo að þeir næðu
að vinna sig inn í leikinn á ný. Lokatölur
85-68 í leik þar sem Urald King og Dino
Butorac voru atkvæðamestir í liði
Tindastóls.
Það var jafnræði með liðunum fyrstu fimm
mínúturnar og Þórsarar litu ágætlega út með
kanann Kinu Rochford og Gitautas Matulis í
fínu stuði. Staðan var 10-11 fyrir Þór þegar
fjórar og hálf mínúta var liðin af leiknum en
þá kom magnaður kafli hjá liði Tindastóls þar
sem vörn og sókn var eins og sköpuð af
himnameistaranum.
Jafnræði var með liðunum í þriðja leikhluta
en um hann miðjan minnkaði Matulis muninn
fyrir gestina í sjö stig og þá tók Martin leikhlé.
Það virtist stöðva lekann því Stólarnir breikk-
uðu bilið aðeins, en yfirleitt munaði 10-12
stigum á liðunum fram að fjórða leikhluta.
Staðan var 64-53 að loknum þriðja leikhluta.
Þristur frá Dino snemma í fjórða leikhluta
og körfur frá Urald og Danero í framhaldinu
komu muninum í 18 stig, 73-55, og eftir það
var alveg kristaltært hvort liðið tæki stigin tvö
sem í boði voru og Tindastólsmenn sigldu
sigrinum í höfn í rólegheitunum.
Sem fyrr segir voru Urald King og Dino
Butorac bestir í liði Tindastóls. King var með
25 stig og 13 fráköst en Dino var ekki langt frá
þrefaldri tvennu; gerði 12 stig, átti ellefu
stoðsendingar og tók níu fráköst.
Annað kvöld mæta Stólarnir Valsmönnum
á Hlíðarenda en næsti heimaleikur er gegn
Haukum 18. október. /ÓAB
Dino Butorac átti fínan leik með Stólunum og var aðeins einu frákasti frá hinni eftirsóttu þreföldu tvennu. MYND: HJALTI ÁRNA
Dominos-deildin : Tindastóll – Þór Þorlákshöfn 85-68
Þórsarar sigraðir í Síkinu
Skagfirðingarnir í íslenska landsliðinu; Hólmar, Kári og Rúnar. MYNDIR AF KSÍ.IS
Körfuknattleiksdeild Tindastóls
Svavar Atli heiðraður
Í hálfleik í leik Tindastóls og
Þórs í síðustu viku var Svavar
Atli Birgisson, núverandi
slökkviliðsstjóri, heiðraður
fyrir einstakt framlag til
körfuboltans á Króknum.
Var honum afhentur blóm-
vöndur af því tilefni og
Tindastóls-treyjan hans hengd
upp í rjáfur í Síkinu. Svavar
spilaði með Stólunum um 400
leiki og er að auki stigahæstur
leikmanna félagsins en kappinn
lagði skóna á hilluna á síðasta
tímabili sökum anna í starfi –
kannski er hann bara í pásu?
Þá var þess minnst áður en
leikurinn hófst að hin eitilharða
stuðningskona Tindastóls,
Sigrún (Silló) Angantýsdóttir,
lést í sumar og var minning
hennar heiðruð með mínútu-
þögn og lófaklappi að henni
lokinni. /ÓAB
Svavar kampakátur. MYND: HJALTI ÁRNA
1. deild kvenna : Tindastóll – Þór Þorlákshöfn 85-68
Tap hjá Stólastúlkum í fyrsta leik
Tindastólsstúlkur sóttu heim Fjölni í
Grafarvogi sl. laugardag í 1. deild kvenna í
körfubolta en Tindastóll hefur ekki teflt
fram liði í meistaraflokki síðan tímabilið
2014-2015. Stelpurnar komu Fjölniskonum,
sem spáð er sigri í deildinni, á óvart með
hörkuleik framan af en reynslan og breiddin
hjá heimakonum sagði til sín þegar á leið og
þær grafvogsku unnu að lokum öruggan
sigur. Lokatölur 106-75.
Lið Fjölnis tók leikhlé snemma og réði
ráðum sínum. Á Karfan.is segir: „Tessondra
Williams, bandarískur leikmaður Tindastóls,
lenti fljótlega í villuvandræðum, var skipt út af
og Grafarvogsliðið gekk þá á lagið. Við lok
fyrsta leikhluta var staðan orðin 28-25,
heimamönnum í vil.
Liðin voru mikið að skiptast á körfum í
öðrum fjórðungnum en Tindastólsstelpurnar
þurftu alltaf að vinna harðar fyrir sínum
stigum en heimastúlkur. Í hálfleik var staðan
orðin 53-47 fyrir Fjölni. Í seinni hálfleik fór
dýpt bekkjarins hjá Fjölni að telja og Tindastóll
fór að dragast aftur úr. Munurinn hélt áfram
að aukast og svo fór að lokum að stelpurnar að
norðan sprungu alveg á limminu. Lokastaðan
varð því 106-75 fyrir Fjölni.“
Stigahæstar í liði Tindastóls voru Marín
Lind Ágústsdóttir sem gerði 22 stig, Tess var
með 20 stig en spilaði aðeins um 23 mínútur
vegna villuvandræða og þá var Þóranna Ósk
Sigurjónsdóttir með flest framlagsstig eða 17. Í
frásögn Körfunnar.is segir að hraðaupphlaup
eftir tapaða bolta Tindastólsstúlkna og stig
eftir sóknarfráköst hafi skilað Fjölnisstúlkum
sigri í leiknum.
Fyrsti heimaleikur Stólanna er nú á laugar-
dag kl. 16:30 þegar Grindavík mætir. /ÓAB
Úr leik Fjölnis og Tindastóls í Grafarvogi. MYND AF KARFAN.IS
38/2018 5
Feykir.isMeira sport á...