Feykir - 21.11.2018, Blaðsíða 9
Út er komin bókin Hvítabirnir
á Íslandi eftir Rósu Rut
Þórisdóttur mannfræðing. Þessi
mikla og fróðlega bók tekur
fyrir landgöngur hvítabjarna frá
landnámi til okkar tíma. Bókin
byggir á áratuga heimilda-
söfnun föður hennar, Þóris
Haraldssonar líffræðikennara
við Menntaskólann á Akureyri,
sem lést í byrjun árs 2014. Auk
sagna af eiginlegum landgöng-
um er að finna í bókinni,
þjóðsögur, munnmælasögur,
kvæði og annan fróðleik sem
tengjast hvítabjörnum á Íslandi
í gegnum tíðina.
Bókin varpar ljósi á hversu
tíðar hvítabjarnarkomur hafa
í raun verið í gegnum tíð-
ina og frásagnirnar hversu
skæðar skepnur um er að
ræða. Til að mynda er sagt
að bærinn að Dröngum í
Árneshreppi hafi tvisvar farið
í eyði vegna bjarndýra og
bærinn Þeistareykir, norður
af Mývatnssveit, þrisvar sinn-
um. Bæirnir Möðrudalur og
Kjólsstaðir á Efra-Fjalli eru
einnig sagðir hafa farið í eyði
af sömu ástæðum.
Hvítabirnir hafa þá
sérstöðu á Íslandi að vera
einu mannskæðu rándýrin
sem hingað geta komist af
sjálfsdáðum. Vegna þessa
hafa þeir valdið mönnum
hugarangri og andvökunóttum
öld eftir öld. Blessunarlega fer
fáum sögum af því að dýrin
hafi skaðað fólk hér á landi
þó að stundum hafi litlu mátt
muna. Slíkar sögur eru þó
sannarlega til og hafa varðveist
frá kynslóð til kynslóðar. Vitað
er um a.m.k. 30 Íslendinga sem
birnir hafa orðið að aldurtila,
beint eða óbeint. Sá seinasti
var Hjálmar bóndi í Höfn
í Hornvík sem barðist við
hvítabjörn með hákarlalensu
að vopni í kringum 1850. Í
bardaganum tókst bjarndýrinu
að bíta illa í handlegginn á
Hjálmari. Sárið var svo mikið
að hann lést af því nokkru
síðar.
En þá til Skagafjarðar
Bjarndýrasögum af svæðinu
er ekki ábótavant í bókinni og
sérstaklega hefur Rögnvaldur
Steinsson á Hrauni á Skaga
verið ötull við að taka þær
saman og skráð hjá sér talsvert
af seinni tíma frásögnum af
landgöngu bjarndýra á Skaga.
Fyrri tíma sögur er meðal
annars að finna í Skarðsárannál
Björns Jónssonar frá Skarðsá
(1574-1655). Þar segir meðal
annars frá mannskæðu og
grimmu bjarndýri, rauð-
kinnung, sem kom á land
við Ásbúðartanga á Skaga
árið 1518. Dýrið var soltið
og deyddi átta manneskjur,
fátækar konur með börn sem
fóru þar um og vissu ekki að
dýrið hafði komið sér fyrir í
Bjargaskarði á Ketubjörgum.
Áður en þetta gerðist hafði
dýrið brotið niður alla hjalla á
Skaga utan við Ketu til að leita
sér að æti. Nánari lýsingar af
þessari viðureign er að finna í
bókinni.
Vatnsfjarðarannáll yngri,
Seiluannáll og Vallholtsannáll
minnast allir á bjarndýrið
sem gekk á land árið 1657.
Veturinn hafði verið góður og
þó svo vorið hafi verið heldur
kalt er hvergi minnst á hafís í
annálum. Þetta ár gerðist hins
vegar sá sjaldgæfi atburður að
bjarndýr var fellt í Svartárdal,
sem er langt frá sjó. Dýrið
var komið inn í fjárhús á
Eiríksstöðum, sem eru miðja
vegu milli Bólstaðarhlíðar og
Bergsstaða, þegar það var fellt
þar af heimamönnum. Þetta
bjarndýr var talið gamalt, það
var hvítt að lit og var á stærð
við naut.
Sum ár hafa verið metár
hvað landgöngur varðar. Til
að mynda hafði, undir lok
árs 1878, frést af því að 14
bjarndýr hefðu sést á ísnum
fram af Skaga og sum þeirra
komið á land á Skaga, einnig
fréttist af tveimur eða þremur
bjarndýrum á Reykjaströnd.
Jónas Hálfdánarson segir frá
því í viðtali að dýrin hefðu
gengið á land norðarlega á
Skaganum, milli Hrauns og
Ketu. Einhver dýranna gerðu
minni háttar skaða í hákarls-
og fiskihjöllum og á einum
bæ var hurð mölvuð frá húsi
eða kofa þar sem selur hafði
nýverið verið gerður til. Strax
og fréttir bárust af landgöngu
bjarndýranna á Skaga sendi
Sigurður Víglundsson eftir
kúluriffli að Ási í Hegranesi.
Hann var talinn einn af betri
skotmönnum Skagans á
þessum tíma en það voru ekki
til nein vopn til að taka með
réttum hætti á móti þessum
dýrum. Einhver dýranna voru
unnin, hin hurfu aftur til hafs.
Um þetta og margt fleira má
lesa í þessari einstöku bók,
Hvítabirnir á Íslandi.
Bókaútgáfan Hólar
Hvítabirnir í Skagafirði!
UMFJÖLLUN
Páll Friðriksson
Uppskeruhátíð Skagfirðings
Sina Scholz er knapi
ársins hjá Skagfirðingi
Árshátíð og uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Skagfirðings
var haldin laugardaginn 3. nóvember í Melsgili í fyrrum Staðar-
hreppi. Margir voru sæmdir verðlaunum fyrir góðan árangur á
keppnisvellinum og félagi ársins var valinn í fyrsta sinn. Veislu-
stjóri kvöldsins var Ingimar Ingimarsson á Ytra- Skörðugili.
Á heimasíðu Skagfirðings kemur fram að veitt hafi verið verðlaun
fyrir afreksknapa ársins, Stefán Logi Haraldsson stjórnarmaður LH og
Skagfirðingur flutti ávarp og gefnir voru folatollar undir fjóra gæðinga,
Kná frá Ytra – Vallholti, Nóa frá Saurbæ, Glúm frá Dallandi og Skutul
frá Hafsteinsstöðum. Helga Sig. framreiddi þriggja rétta máltíð og
hljómsveitin Staksteinar léku fyrir söng og dansi fram á nótt.
Knapi ársins er Sina Scholz en hún náði frábærum árangri með
hestinn sinn, Nóa frá Saurbæ, en þau voru meðal annars í A-úrslitum
í A-flokkI á Landsmóti, sigruðu Í B-úrslitum og lentu í 6. sæti í
fimmgangi á Íslandsmóti ásamt því að sigra í A-flokki á Félagsmóti
Skagfirðings og fimmgangi á íþróttamóti UMSS.
Félagsmaður ársins var kosinn í fyrsta skipti þar sem allir félagsmenn
Skagfirðings gátu kosið þann sem vann ötullega fyrir félagið á árinu.
Í ár var félagi ársins Unnur Rún Sigurpálsdóttir.
Íþróttaknapi ársins þetta árið er Mette Mannseth en hún náði
frábærum árangri á íþróttamóti UMSS í vor. Tilnefnd til íþróttaknapa
voru, auk Mette, Sina Scholz og Rósanna Valdimarsdóttir.
Gæðingaknapi ársins er Skapti Steinbjörnsson, annað árið í röð.
Hann sigraði í B-flokki og lenti í 2. sæti í A-flokki á Fákaflugi og
félagsmóti Skagfirðings. Auk Skapta voru þau Sina Scholz og Egill
Þórir Bjarnason tilnefnd.
Skeiðknapi ársins er Elvar Einarsson en hann var meðal annars í 7.
sæti á Landsmóti og sigraði í 250 og 150 metra skeiði á íþróttamóti
UMSS. Aðrir sem tilnefnd voru: Finnbogi Bjarnason og Þórarinn Ey-
mundsson. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem þessi verðlaun eru veitt.
Í áhugamannaflokki voru tilnefnd Sveinn Brynjar Friðriksson, Sveinn
Einarsson og Birna Sigurbjörnsdóttir sem varð hlutskörpust. Birna
sigraði í tölti og varð í öðru sæti í sínum flokki á íþróttamóti UMSS
ásamt góðum árangri í Skagfirsku mótaröðinni í vetur.
Í ungmennaflokki voru Guðmar Freyr Magnússon, Unnur Rún
Sigurpálsdóttir og Viktoría Eik Elvarsdóttir tilnefnd. Í þessum flokki
var mjótt á munum en Viktoría Eik var valin knapi ársins en hún
var í úrslitum á Landsmóti og Íslandsmóti og náði góðum árangri á
íþróttamóti UMSS.
Fleiri myndir frá kvöldinu má nálgast á skagfirdingur.is. /PF
Sina Scholz tekur á móti viðurkenningu sem knapi ársins á uppskeruhátíð
Skagfirðings. MYND: SKAGFIRÐINGUR.IS
Ungmennin Viktoría Eik, Unnur Rún og Guðmar Freyr taka við verðlaunum sínum.
Viggó Jónsson og Jón Sigurjónsson hlaupa undan Þverárfjallsbirninum svokallaða sem
felldur var 3. júní 2008. MYND: PF
44/2018 9