Bæjarbót - 01.02.1989, Blaðsíða 1
Kjörbókin
er á toppnum!
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Hitaveita Suðurnesja:
Selur vatnið með
70% afslætti til
íþróttahúsa og
sundlauga
Á fundi stjórnar Hitaveitu
Suðurnesja þann 16. febrúar var
samþykkt að sundstaðir og
íþróttahús í eigu sveitarfélag-
anna fái að greiða 30% af gild-
andi verðskrá fyrir heita vatnið.
Tillaga um þetta var upphaflega
flutt af Jóni G. Stefánssyni bæj-
arstjóra og Hannesi Einarssyni
bæjarfulltrúa í Keflavík.
í íþróttamannvirkjum er mik-
il vatnsnotkun og því léttir þessi
samþykkt verulega undir með
rekstri þeirra. Sem dæmi má
nefna að gera má ráð fyrir að út-
gjöld íþróttahúss Grindavíkur
lækki um u.þ.b. 200 þúsund á
ári. Einnig verður nokkur lækk-
un á kostnaði við sundlaugina,
en hlutfallslega minni, þar sem
hún nýtir að mestu leyti affall
frá skólanum.
Loðnupökkun fyrir lúðueldið
Flutningur á raforku:
Jarðstrengur úr Svartsengi
til Grindavíkur á þessu ári
- tryggir afhendingaröryggi eins og best verður á kosið
Á fundi í stjórn Hitaveitu
Suðurnesja þann 16. febrúar var
samþykkt að leggja jarðstreng
úr Svartsengi til Grindavíkur á
þessu ári. Kostnaður er áætlað-
ur um 12 milljónir. Jón Gunnar
Stefánsson bæjarstjóri er stjórn-
armaður hjá Hitaveitunni og
hann var inntur nánar eftir
þessu máli.
„Ég tók þetta mál upp á fundi
3. feþrúar og þá var ákveðið að
fresta afgreiðslu framkvæmda-
og fjárhagsáætlana þar til málið
hefði verið kannað nánar. Hinar
tíðu rafmagnstruflanir að und-
anförnu eru ákaflega þreytandi
og jafnvel skaðlegar og því sjálf-
sagt að reyna að auka afhend-
ingaröryggið á rafmagninu sem
mest. Nú hefur stjórn Hitaveit-
unnar samþykkt að ráðast í
þessa framkvæmd á þessu ári og
að henni lokinni á flutningur
raforkunnar til Grindvíkinga að
vera með því besta sem gerist á
íslandi“ sagði Jón Gunnar bæj-
arstjóri.
Þess má geta að línan sem nú
er notuð er af mörgum talin því
sem næst ónýt a.m.k. þolir hún
ekki válynd veður eins og verið
hafa í vetur.
Iþróttir eru á bls. 11