Bæjarbót - 01.02.1989, Blaðsíða 10

Bæjarbót - 01.02.1989, Blaðsíða 10
10 Bæjarbót, óháð fréttablað Febrúar 1989 Frá sjávarútvegsráðuneytinu: Skýrsla um sfldveiðar 1988 Vegna viðbótarsamninga við Rússa um kaup á 30.000 tunn- um af saltsíld ákvað ráðuneytið að leyfa veiðar á 4 þús. lestum af síld í janúar 1988. Veiðar hófust þann 10. janúar og stunduðu 10 skip veiðarnar. Veiðikvóti hvers skips í þessari sérstöku úthlutun nam því u.þ.b. 400 lestum er kom að tveimur þriðju hlutum til frá- dráttar við úthlutun haustið 1988. Veiðarnar gengu að óskum og var síldin í góðu ástandi til sölt- unar bæði varðandi fituinnihald og átu. Alls veiddust 4.107 lestir af síld og kom 2/3 þess magns til kvóta er síðar var dregið frá út- hlutun veiðikvóta viðkomandi skipa við úthlutun síldarkvóta í október s.l. í haust úthlutaði sjávar- útvegsráðuneytið síldveiði- leyfum til 89 skipa. Leyfið gilti frá kl. 18:00 9. október s.l. þar til afli skips nam úthlutuðum veiðikvóta þó ekki lengur en til 15. desember. Þar sem nokkur skip höfðu þá ekki enn lokið við að veiða upp í kvóta sína, fram- lengdi ráðuneytið veiðitímabil- inu til 20. desember. Þá áttu enn 2 skip ólokið veiðunum á sam- tals 1130 lestum af síld og var þeim gefinn kostur á að ljúka sínum veiðum til vinnslu nú í janúar. Eins og áður er getið úthlut- aði ráðuneytið 89 skipum leyfi til síldveiða í ár sem er tveimur skipum færra en árið áður. í haust nam úthlutunin 86.433 lestum en áður hafði ráðuneytið úthlutað 4.000 lestum í ársbyrj- un og því er heildarúthlutun árs- ins 1988 alls 90.433 lestir af síld og er það 24% aukning frá fyrra ári. Að þessu sinni nam kvóti hvers skips 1.000 lestum að und- anskildum þremur skipum er höfðu óreglulega kvóta. Sömu reglur giltu um veiðarn- ar og undanfarin ár að öðru leyti en því að hverju skipi var aðeins heimilt að landa til bræðslu 40% af kvóta skipsins og a.m.k. 60% nýtt til manneldis. Þó var heim- ilt með samþykki ráðuneytisins að víkja frá þessum takmörkun- um á bræðsluveiðum. Ráðuneytið ákvað að veita nokkrum loðnuskipum heimild til veiða á síld og máttu veiðarn- ar hefjast 20. september. Þetta var gert í því skyni að auka fjöl- breytni í vinnslu og sölu síldar enda voru leyfin bundin þeim skilyrðum, að öll nýtanleg síld yrði fryst um borð í veiðiskipun- um. Aðeins eitt skip sótti um slíkt leyfi, flakaði síldina og frysti um borð. Segja má að vel hafi tekist til með vinnsluna um borð, öll síld nýttist í vinnslunni og frysti- getan var um 15 lestir á sólar- hring. En sökum óhagstæðra viðskiptasamninga hætti skipið veiðum og vinnslu á síld fyrr en ætlað var. Af þeim 89 skipum sem út- hlutað var leyfum til síldveiða s.l. haust fór 61 skip til veiðanna og er það 6 skipum fleira en árið áður. Samtals nam afli skipanna 84.770 lestum (brúttó 89.292 lestir þ.e. síld og ís) og því er heildaraflinn samtals 88.877 lestir af síld á árinu (brúttó 93.615 þ.e. síld og ís), sem er 17.255 lesta aukning frá fyrra ári eða 24,1%. Til vinnslu fóru 69.474 lestir af heildaraflanum 1988 sem er 78,2% en 19.403 lestir fóru til bræðslu eða 21,8% heildarafl- ans. Þegar litið er á þróunina í skiptingu síldaraflans milli vinnslu og bræðslu frá fyrra ári, sést glögglega að aukningin í heildarveiðinni fer öll til vinnslu. í haust barst mest af síld á land á Eskifirði 13.410 lestir br., á Höfn 11.145 lestir br., á Nes- kaupstað 11.030 lestir br. og í Grindavík 10.076 lestir. Til vinnslu barst hinsvegar mest að landi á Höfn 9.184 lestir br., í Grindavík 8.745 lestir br. og á Eskifirði 6.116 lestir. Alls Fj. Fj. Alls Til Til úthl. leyfa veiði i- afli vinnslu bræðslu tonn skip skipa tonn tonn % tonn % 1 9 85 50.000 140 89 46.530 45.734 98,3 796 1,7 19 8 6 64.084 91 51 62.637 51.291 81,9 11.347 18,1 19 87 72.930 91 55 71.622 49.739 69,4 21.883 30,6 1 9 88 90.433 89 61 88.877 69.474 78,2 19.403 21,8 Þau 28 skip sem ekki fóru til veiða framseldu öll sína kvóta alls 28.000 lestir og auk þess framseldu 15 skip hluta af sínum veiðikvótum alls 3.175 lestir. Af þeim 86.433 lestum sem úthlutað var s.l. haust veiddust 84.770 lestir. Ólokið var þá að veiða 1.663 lestir og munar þá hvað mest um þann kvóta er 2 skip áttu ólokið við alls 1.130 lestir og fengu leyfi til að veiða nú í janúar. Að þessu sinni veiddist allur aflinn í nót og virðist sem síld- veiðar í lagnet og reknet heyri fortíðinni til. Aðalveiðisvæðin voru nú sem fyrr innfjarðar og í fjarðar- mynnum, allt frá Seyðisfirði suður um Berufjörð. Einnig átti sér stað talsverð veiði við Ingólfshöfða en þar var síldin smærri en veiddist innfjarðar. Áberandi stærst var síldin er veiddist innfjarðar norðan Reyðarfjarðar. Að þessu sinni veiddist engin síld við ísafjarðardjúp. Hvað varðar almennt eftirlit með veiðunum er það helst að tíunda, að ekki var brýn þörf á eftirliti til sjós þar sem ekki varð vart við smásíld í afla skipanna. Hins vegar var spjótunum frek- ar beint að eftirliti með löndun- um skipanna eins og kostur var hverju sinni. Alls veiddu 28 skip umfram úthlutaða aflakvóta í ár samtals 630 lestir eða 23 lestir að meðal- tali á skip. Ekkert skip fór það mikið umfram úthlutaðan kvóta að ástæða þætti til upptöku ólöglegs afla. Örn Traustason ooo ooo oO ooo bo ooo o o Bekkjastofa Betu Hraunbraut 2 Sími 68492 Bekkirnir bæta líkamann! — betra líf! Gjaldheimta Suöurnesja Lögtaksúrskurður Að beiðni Gjaldheimtu Suðurnesja úrskurðast mér með, að lögtök geta farið fram vegna vangoldinnar staðgreiðslu opinberra gjalda í Keflavíkurbæ, Njarðvíkurbæ, Grindavíkurbæ, Vatnsleysustrandar- hreppi, Hafnahreppi, Miðneshreppi og Gerðahreppi, þ.e. vanskila- fé, álag og sektir ásamt kostnaði fyrir tímabilin 08., 09., 10., 11., og 12. 1988, ágrundvelli 1. tl. 1. gr. og 4. gr. laga nr. 29/1885 og 29. gr. laga nr. 45/1987, sbr. 14. gr. laga nr. 90/1987. Lögtök geta farið fram að liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tíma. Keflavík 9. febrúar 1989 Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík og Njarðvík Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu

x

Bæjarbót

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarbót
https://timarit.is/publication/1421

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.