Bæjarbót - 01.02.1989, Page 2
2 Bæjarbót, óháð fréttablað
Febrúar 1989
Ársyfirlit lögreglumála 1988:
r
Utköllum fækkaði verulega
— umferðarlagabrotum fækkaði um 103!
Útköllum hefur fækkað hjá Bjarna Bjarnasyni og félögum hans í
lögreglunni.
í ársyfirliti um starfsemi lög-
reglunnar í Grindavík má sjá
nokkrar áhugaverðar tölur.
Mesta athygli vekur að útköllum
fækkar frá árinu 1987. Þá voru
þau 1215, en í fyrra urðu þau
1051.
Skráð umferðarslys og óhöpp
í umferðinni urðu 59, sem er
veruleg fækkun frá fyrra ári.
192 ökumenn lentu á ólöglegum
hraða í radargeisla lögrelgunnar
og 26 voru teknir grunaðir um
ölvun við akstur.
Innbrot urðu 28, flest í versl-
anir eða atvinnuhúsnæði eða 15.
Skráð skemmdarverk urðu 45
og skjalafals og svik (mest fals-
aðar ávísanir) varð einn fárra
þátta lögreglumálanna þar sem
aukning varð, úr 2 í 21 mál. 53
fengu vistun í fangaklefum og
11 sinnum varð að grípa til
handjárnanna.
Það sem einkennir ársyfirlitið
er mikil fækkun mála sem koma
til kasta lögreglunnar. Sam-
kvæmt því fer virðing Grindvík-
inga og þeirra sem bæinn gista
fyrir lögum og rétti vaxandi.
Penistonefarar
sumarið
1988
athugið
Nú líður að því að gestgjafar frá því í fyrra
sumar komi til Grindavíkur. Þau eru vænt-
anleg 30. maí og fara 10. júní.
Þau ungmenni sem fóru til Penistone og for-
eldrar þeirra komi á fund í skólanum kl.
20.30 mánudaginn 6. mars.
Fyrir hönd nefndarinnar, Jón Gröndal
Umferðarslys 1988:
Mikil fjölgun slasaðra
í Reykjaneskjördæmi
938 manns slösuðust og létust
í umferðarslysum hér á landi
árið 1988. Þeir voru 40 færri
en árið á undan. Látnum í
umferðarslysum fjölgaði úr
24 í 29, en slysatilvikin voru
tveimur fleiri en 1987.
Sé litið á aldursflokkana
kemur í ljós að mest fækkun
er meðal barna á aldrinum 7
til 14 ára. 80 slösuðust á þeim
aldri 1988 en 108 árið á und-
an. Það er 25% fækkun. Sé
litið á aldurshópinn fjórtán
ára og yngri er fækkunin um
17%.
Af þeim sem urðu fyrir
meiðslum reyndust 299 hafa
orðið fyrir miklum meiðsl-
um, en voru 380 árið 1987.
Þar er um að ræða 21%
fækkun. Þeim sem urðu fyrir
litlum meiðslum fjölgaði hins
vegar um 6%.
Meðal fólks á aldrinum 21
til 24 ára varð einnig umtals-
verð fækkun úr 126 í 103.
Mest fjölgun varð meðal
fólks 65 ára og eldra úr 75 í
95.
Áberandi er að fjölgun
slasaðra er eingöngu í tveim-
ur kjördæmum landsins
Reykjavík og Reykjaneskjör-
dæmi. í höfuðborginni fjölg-
ar slösuðum úr 239 í 318, en í
Reykjaneskjördæmi úr 240 í
280. Um eða yfir 50% fækk-
un er hins vegar í þeim tveim-
ur kjördæmum sem fjærst
eru höfuðborginni. Þá er
einnig umtalsverð fækkun í
Vesturlands og Vestfjarða-
kjördæmum.
Sé hugað að kyni þeirra
sem slasast kemur í ljós að
þar eru karlar í meirihluta, en
hlutur kvenna fer vaxandi.
Þannig slösuðust 533 karlar
1988, en voru 74 færri 1987,
en konum fjölgaði hins vegar
um 34, en 407 konur slösuð-
ust 1988.
Á árinu 1988 létust 29 manns
í umferðarslysum á íslandi.
ttt
12 Okumenn
7 FARKGAR i FRAMSÆTI
3 FARMGAR i AFTURSÆTI
6 GANGANDI VEGFARENDUR
IHJÖLREHJAMAflUR
29 SAMTALS
Umferöarráð vottar þeim
sem eiga um sárt aö binda vegna
umferðarslysa dýpstu samúö.
1989
DDDtt1 ■t1 J-t1 rtt
= ti íti r tt
Þaö er sorgleg staðreynd aö á síöustu árum hafa aö meðaltali 24
látist á ári hér á landi í umferðarslysum.
Umferöarráö heitir á alla íslendinga að leggja sitt af mörkum til
þess aö stuðla aö slysalausri umferö.
UUMFEROAR
RÁO
Sé hins vegar hugað að
kyni ökumanna sem aðild
eiga að slysum kemur í ljós
að þar eru karlar í afgerandi
meirihluta eða 723 á móti 280
konum.
Slysum fjölgaði í þéttbýli
úr 430 1987 í 459 á síðasta
ári. í dreifbýli fækkaði slys-
um hins vegar úr 243 í 187
sem er um 23 prósenta fækk-
un.
Hárgreiðslustofa Sigrúnar
Staðarvör 5
Fyrir
Þigog
þínal
Lokað verður 6. mars- 22. mars vegna námskeiða erlendis.
.9-11.
Voúað-
Tímapantanir í síma 68734
— Ath. Lokað í hádeginu —
Frá íþróttahúsi
Grindavíkur:
LJÓSA-
LAMPI
Höfun tekið í notkun nýjan fullkominn Ijósalampa (með 36
speglaperum) og andlitsljósi.
Seljum út sérstaka tíma eða kort með afslætti.
Uppl. og tímapantanir í síma 68244.
íþróttahús Grindavíkur