Bæjarbót - 01.02.1989, Síða 4
4 Bæjarbót, óháð fréttablað
Febrúar 1989
Jón Gröndal skrifar:
Af vettvangi
bœjarstjórnar
Sólarlampi
keyptur í
íþrótta-
húsið
Bæjarstjórn hefur sam-
þykkt að heimila kaup á sól-
arlampa til notkunar í
íþróttahúsinu. Er þetta gert í
ljósi þess að sólbaðstofa er
hætt starfsemi í Grindavík og
þessi kaup bæta úr brýnni
þörf.
Ellilífeyris-
þegar fá
ókeypis
nudd
Bæjarstjórn hefur ákveðið
að bærinn greiði framvegis
hluta sjúklings í kostnaði við
þjónustu Monicu van Osten
sjúkraþjálfara, fyrir þá
Grindvíkinga sem eru 67 ára
og eldri. Nú ættu aldraðir að
geta farið óhræddir á stúfana
og fengið sér heilsubætandi
sjúkranudd reglulega án þess
að þurfa að hafa áhyggjur af
kostnaði.
Skíðaskáli í
Bláfjöllum?
Bæjarstjórn samþykkti að
taka þátt í byggingu skíða-
skála í Bláfjöllum með öðr-
sveitarfélögum á Suðurnesj-
um. Skálinn yrði þá til ráð-
stöfunar fyrir ungmenni á
Suðurnesjum, skíðaferðir
skóla o.s.fr.v.
Hlutur
Grindvík-
inga verður
tæpar 17
milljónir
Yfirlit um skiptingu kostn-
aðar á sveitarfélögin vegna
fjárhagsáætlana sameigin-
lega rekinna stofnana árið
1989 liggur nú fyrir. Keflavík
ber rúman helming, eða
52,39%, en Grindvík ber
9,91% sem verða tæpar 17
milljónir. Þannig lækkar
hlutur Grindvíkinga úr
14,02% í fyrra.
Ný
heilsugæsla
- nýjar
bæjarskrif-
stofur
Félags-
heimilið
Festi leigt út
Þann 1. febrúar lét Bjarni
Ólason framkv. st. Festar af
störfum að eigin ósk. Þá
voru gerðar miklar breyting-
ar á rekstrarfyrirkomulagi
hússins. Ákveðið var að
leigja húsið út líka, ekki
aðeins reksturinn svo sem
verið hafði. Tekjur bæjarins
af rekstri hússins voru um
1100 þúsund árið 1987. Mán-
aðarleg útgjöld bæjarins
voru um 40.000 fyrir
rafmagn og hita og 30.000
kr. til framkvæmdastjóra
fyrir húsvörslu. Samtals um
70.000 kr. Nú hefur verið
gerður samningur við
Þorstein Jónsson
framreiðslumann um að
hann taki húsið og reksturinn
og borgi fyrir það 60.000 kr.
á mánuði. Alls hagnast bær-
inn því um 120 þúsund á
mánuði á þessum skiptum.
Samningurinn gildir til ársins
1994 og er uppsegjanlegur á
því tímabili eftir ákveðnum
reglum. Leigan hækkar með
byggingavísitölu og einnig er
gert ráð fyrir því að hún
hækki ef starfsemi eykst í
húsinu. Bærinn brunatryggir
húsið og sér um meiriháttar
viðhald en annað ekki. Að
gefnu tilefni skal það tekið
fram að ákvæði um búsetu
Þorsteins í Grindavík var tek-
ið inn í samninginn. Er því
auglýst eftir húsi fyrir mann-
inn og á móti möguleikar á
húsi í Keflavík!
Nú um mánaðarmótin er
gert ráð fyrir að hægt verði
að hefjast handa um bygg-
ingu efri hæðar verslunar-
miðstöðvarinnar á Víkur-
braut 62. Heilsugæslan verð-
ur í norður hluta byggingar-
innar og fyrir næsta bæjar-
stjórnarfundi liggur tillaga
um að bærinn flytji skrifstof-
ur sínar í suðurhlutann. Þar
yrði auk þess bókasafnið í
u.þ.b. 200 ferm. og fundar-
salur sem nýttist bæjar-
stjórn, Bókasafni og heilsu-
gæslu. Gert er ráð fyrir að
framkvæmdir í 1. hluta kosti
bæinn um 25 milljónir.
Meiri-
hlutinn
frestar
ákvörðun
Á fundi bæjarstjórnar í
febrúar lagði meirihluti bæj-
arstjórnar fram tillögu um að
fresta að taka ákvörðun um
veitingu vínveitingaleyfis
fyrir ,,bjór“ stofu þá sem
Árni Björn Björnsson hyggst
opna í mars. Ekki verður tek-
in afstaða til leyfisveitingar
fyrr en í september n.k. Til-
lagan var samþykkt með 4
atkv. gegn 3. Mikið var rætt
um álit Áfengisvarnarnefnd-
ar Grindavíkur og bréf frá
Ólafi Hauki áfengisvarna-
ráöunaut. Þótti mönnum
sem þar væri ómaklega veist
að bæjarbúum sem sam-
þykktu bjórkrá og sjómönn-
um og fiskvinnslufólki sér-
staklega. Sjá annarstaðar í
blaðinu.
Nýjasta nýtt: Árni Björn
hefur sent bæjarráði ósk um
að honum verði aðeins veitt
léttvínsleyfi en ekki fullt leyfi
til sölu sterkra drykkja.
Verður málið tekið fyrir á
fundi bæjarstjórnar í mars.
reikningaflóðinu!
Láttu orku-
reikninginn alltaf
hafa forgang.
Hitaveita Suðurnesja
Innheimtudeild
nymynD
Hafnargötu 90 Sími 11016