Bæjarbót - 01.02.1989, Qupperneq 7
Febrúar 1989
Bæjarbót, óháð fréttablað
7
Fyrir ferminguna!
Látum gylla á
sálmabækur og
prenta á servéttur.
Bókabúð
Grindavíkur
Sími 68787
Svipmynd frá götulífi í Tokyo.
versiao, pvi verð þessara tækja er
svipað því sem tíðkast hér heima
jafnvel nokkru hærra. Það skýrist
að hluta af mikilli skattlagningu
hins opinbera á innanlands neysl-
una enda megin áherslan lögð á
að flytja sem mest úr landi og
skapa gjaldeyristekjur. Tísku-
verslanir voru fáar og smáar,
enda má segja að Japanir klæðist
sérlega ófrumlegum fötum. Karl-
menn eru allir í jakkafötum með
bindi og konur í kjólum og
pilsum. Allir eru snyrtilegir og vel
til fara, en fjölbreytnin er hverf-
andi.
Verslunarferðin varð að skoð-
unarferð, enda hagkvæmara að
versla á verðbólgu íslandi - jafn-
vel japanskar vörur komnar um
hálfan hnöttinn!
30 milljónir á íslandi
Það kom fram í samtölum
okkar við heimamenn að þeir
kannast flestir við ísland og
hafa séð eitthvað frá landinu í
fjölmiðlum. Það er greinilegt að
af dvergríkjum heimsins er
ísland líklega einna þekktast vítt
um heiminn, enda oft komist í
heimspressuna. Hinir japönsku
vinir okkar spurðu grannt út í
ýmsa siði og venjur hér heima.
Höfðu til dæmis mikinn áhuga á
að vita hvort við ættum ekki
góðan fisk og hvernig við til-
reiddum hann. Þeim kom veru-
lega á óvart að við kynnum lítt
að meta hráan fisk til neyslu!
Þess má geta að Japanir eru
miklir fisk og sjávarvöruneyt-
endur og eru reyndar mesta fisk-
veiði þjóð heimsins. Meðal rétta
sem þeir buðu okkur upp á, í
veislu sem haldin var á agnar-
smáum veitingastað, má nefna
smokkfisk, hráan og bakaðan,
hrisgrjónamús með þangi,
einhvers konar „krabba-
stöppu“ (oktopussi), sem
sumum flökraði reyndar við,
smárækjur steiktar og snæddar
með skel og haus. Einnig svína-
kjöts og kjúklingarétti og
fleira. Máltíðir Japana saman-
standa gjarnan af mörgum
réttum og hrísgrjónin eru aldrei
langt undan. Undir borðhaldinu
spurðu gestgjafar okkur um
íbúafjölda á Islandi. Við báðum
þá að giska. Einn sagði 30
milljónir, annar 8 milljónir. Sá
þriðji sá að við brostum og
skaut á eina milljón. Fannst
líklega að engin þjóð gæti verið
fámennari. Að við værum
aðeins milljónar fjórðungur
fannst þeim hreint ótrúlegt. Þess
má geta að Japanir eru um 120
milljónir og fjölgar hratt!
Gott að vera
íslendingur
Á erlendri grundu verður
manni alltaf hugsað heim og í
huganum kemur ávallt upp
einhvers konar samanburður
við ástand mála á íslandi. í Jap-
an eru börn og unglingar látin
,,Eruð þið bara fjórðungur úr
milljón“!
lúta ströngum aga og þeim inn-
rættar almennar kurteisisvenj-
ur. Daglegt far fólks verður því
kurteisislegra, en jafnframt
þvingaðra en hér. Þar í landi
virðist manni að farið sé eftir
gildandi reglum, hvort sem þörf
á því er ,,brýn“ eða ekki. Ef
reglur eru samþykktar eða settar
- þá gilda þær. Annars kom á
óvart hve vestrænir Japanir eru
orðnir. Heimurinn er greinilega
að „skreppa saman“ þannig að
andstæðurnar milli austurs og
vesturs verða minni með hverri
kynslóðinni. Engu að síður má
vitaskuld finna ótalmargt í fari
og daglegu lífi Asíubúans sem
kemur skemmtilega á óvart og
stórkostlegt er að fá að kynnast.
En allt leiðir að sama brunni.
Því meiri og marktækari sem
samanburðurinn er - því betur
kann maður að meta það að
vera íslendingur.
Slegið á létta strengi og snæddur Japanskur matur - með prjónum auðvitað. Japanir fara mikið
út að borða og sitja þá gjarnan lengi við mat og drykk.
Bókasafn Grindavíkur
í Festi — Sími 68549
í vetur verður safnið opið sem hér segir:
Mánudaga kl. 17-20
Þriðjudaga kl. 17-20
Miðvikudaga kl. 17-20
Fimmtudaga kl. 17-20
Föstudaga kl. 17-20
Laugardaga kl. 14-16
Vinsamlegast skilið bókum sem komnar eru
fram yfir lánstíma.
Bókaverðir.
Bifreiðaverkstæði
Grindavíkur
Bifreiðaeigendur!
- er ekki betra að hafa bílinn í góðu lagi?
Vélastillingar með tölvu
• Bremsuviðgerðir
• Kúplingsviðgerðir
Rúðuskipti
• Alhliða viðgerðir
Er komin með þjónustu og viðgerðaumboð fyrir
Bifreiðir og Landbúnaðarvélar
Bifreiðaverkstæði
Grindavíkur
Víkurbraut 1 - Sími 68357