Bæjarbót - 01.02.1989, Síða 8
8 Bæjarbót, óháð fréttablað
Febrúar 1989
Frá bœjarstjóra:
Greinargerð um þróun
dagvistarmála í bænum
Steindór
Sigurðsson
-Vetraráætlun-
Frá Keflavík:
kl. 08:40
kl. 13:05
kl. 16:25
Frá Grindavík:
kl. 07:40
kl. 09:00
kl. 13:30
kl. 16:55
Grindavík - Reykjavík - Grindavík
— áætlunarferðir daglega —
Sú þjónusta sveitarfélaga, sem
lýtur að leikskólum og dagheim-
ilum hefur víða verið í sviðsljós-
inu og svo er einnig hér í bæ.
Kostnaður við þessa þjónustu
hefur vaxið verulega á liðnum
árum og kostnaðarhlutdeild for-
eldra orðið minni af þeim
sökum.
Reksturkostnaður leikskólans
í Grindavík skiptist t.d. núna
þannig milli foreldra og bæjar-
félags, að foreldrar greiða 34%
rekstrarkostnaðarins og bæjar-
félagið 66%. Upphaflega var
gert ráð fyrir að kostnaðurinn
skiptist til helminga. Telja ýmsir
Athugasemd
frá
bæjarstjóra
í grein Kristínar og Petrínu í
síðasta tölublaði Bæjarbótar
segir: „En auðvitað ætluðum
við að fá borgað fyrir að bæta á
okkur vinnu, það vilja allir.
Bæjarstjóri virðist vera á öðru
máli“.
Að ósk Petrínu var forstöðu-
starfinu skipt milli tveggja
fóstra, því hvor um sig taldi
hálft starf fullnægjandi álag.
Við þetta jókst launakostnaður
um nálega kr. 15.000 á mánuði
og því var um það rætt og því
trúað að samkomulag hefði
orðið um, að umsjón með starf-
semi í kirkjunni fylgdi breyttu
starfsmannahaldi og þannig var
málið kynnt fyrir bæjarráði.
Eftirá kom í ljós að misskiln-
ingur hafði orðið milli aðila.
Eftir stendur kostnaðaraukinn
og þar við situr.
Skömmu síðar barst tilboð
um að leysa verkefnið gegn
greiðslu fyrir hálft starf í viðbót
en því var hafnað. Ráðgjöf og
vinna við skipulag í kirkjunni
var greitt eftir reikningi.
Jón Gunnar Stefánsson.
að lækka megi kostnað við
þessa þjónustu með útboði og
sæmkvæmt síðustu fréttum
íhuga stjórnvöld í Svíþjóð að
fara þá leið. Útboðsleiðin hefur
verið framkvæmd á íslandi með
góðum árangri, eftir því sem
best er vitað.
Lög frá 1976 gera ráð fyrir
greiðslu úr ríkissjóði til að
standa undir allt að 50% stofn-
kostnaði leikskóla og dagheim-
ila, en greiðslan er háð fjárveit-
ingum frá Alþingi með fjárlög-
um. Þannig að framlag ríkis-
sjóðs liggur ekki á lausu þótt
lagaheimildin sé fyrir hendi. Til
dæmis hefur ekki fengist fjár-
framlag úr ríkissjóði vegna
byggingar þess leikskóla, sem nú
er starfræktur í bænum. Vonast
er til að fyrirliggjandi fjárveiting
að upphæð kr. 800 þúsund fáist
greidd vegna stækkunar á leik-
skólanum.
Á fundi í félagsmálaráði 29.
febrúar 1988 var því varpað
fram „hvort ekki væri heppilegt
að fá utanaðkomandi aðila til
faglegrar ráðgjafar við skipulag
dagvistar“. Var Dagvistarráð-
gjöf sf. fengin til starfa og skil-
aði hún gögnum 18. apríl, 14.
júní og 13. október 1988. Hug-
mynd um útboð á rekstri dag-
heimilis var kynnt á fundi
félagsmálaráðs 17. maí og 19.
maí samþykkti bæjarráð að
undirbúa útboð.
Á miðju sumri bauðst bænum
afnot af gömlu kirkjunni. Krist-
ín og Petrína tóku að sér að
meta aðstæður og í ágústmán-
uði gerðu þær ásamt bæjar-
tæknifræðingi tillögu um breyt-
ingar á húsnæðinu fyrir starf-
rækslu dagheimilis í húsinu.
Eftir þeim var farið, þegar sókn-
arnefndin hafði afhent bæjar-
sjóði eignina og gefið afsal fyrir
henni. Þegar framkvæmdir
voru komnar vel á veg og út-
boðsráðgjöfin fyrirliggjandi,
var útboðið auglýst með um-
sóknarfresti til 30. nóvember. í
útboðinu voru tilgreindar kvað-
ir, sem fylgdu verkefninu svo
sem þær, að börn á aldrinum 4
mánaða til þriggja ára hefðu
forgang, ráðstöfunarréttur bæj-
arins á allt að sjö plássum og
starfræksla í minnst 10 mánuði
á ári.
Einungis barst eitt tilboð, og
var því tekið. Á vegum bæjar-
sjóðs er umsjón með rekstrinum
ásamt ráðgjöf fóstru með sama
hætti og hjá öðrum, sem starf-
rækja þjónustu fyrir börn í
bænum.
Grindavík 15. febrúar 1989.
Bæjarstjóri.
Frá Grindavík: Frá Reykjavík:
kl. 13:00 alla daga kl. 18:30 alla daga
kl. 21:00 sunnudaga kl. 22:00 sunnudaga
Þingvallaleið
Ingvar Sigurðsson
Hlutur
aldraðra
greiddur
Bæjarstjórn Grindavíkur samþykkti á
fundi sínum 8. febrúar 1989, að greiða hlut
aldraðra hjá starfandi sjúkraþjálfara í bæn-
um. Um er að ræða hlut sjúklings, 40% á
móti 60% kostnaðarhlutdeild sjúkrasam-
lagsins. Miðað er við 67 ára og eldri, sem
eiga lögheimili í bæjarfélaginu.
Grindavík 13. febrúar 1989.
Bæjarstjóri