Bændablaðið - 20.10.2016, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 20.10.2016, Blaðsíða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 9.900 með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgarar kostar 4.950 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − SKOÐUN Ef ökumenn bifreiða kunna ekki á einföldustu stjórntæki ökutækis og þekkja ekki heldur umferðalög og þar með lög um ljósanotkun ökutækja, þá hafa þeir ekkert ökuskírteini að gera. Það er orðið algjörlega óþolandi að sjá í umferðinni kvölds og morgna aragrúa öku- tækja með öll ljós slökkt að aftan og einung- is misveik „LED“ ljós að framan. Þetta á við nýleg ökutæki sem útbúin eru með sjálfvirk- um dagsljósabúnaði sem innleiddur hefur verið í ESB löndum samkvæmt sparnaðar- kröfum Evrópusambandsins. Slíkur búnað- ur stenst alls ekki íslensk umferðalög og lög um ljósanotkun hérlendis. Um þetta hefur margoft verið fjallað í Bændablaðinu og Félag íslenskar bifreiðaeigenda (FÍB) hefur einnig gert ítrekaðar athugsemdir við þetta við Samgöngustofu. Lengi vel var engin viðbrögð að fá frá íslenskum yfir- völdum umferðamála, en loks þegar þau bárust var tekið undir allar athugasemdir. Samgöngustofa svarar auk þess í blað- inu í dag athugsemdum sem birtust í síðasta Bændablaði um þetta mál. Í svari Samgöngustofu sem er á bls. 8 er skýrt tekið fram að ljósaskylda er allan sólarhringinn, ökuljós „skulu“ kveikt. . Tilgangurinn sé að auka öryggi í umferðinni. Þar segir einnig m.a. : „Margar nýjar bifreiðar eru búnar ljós- um sem kvikna þegar bíllinn er ræstur og í fyrstu má halda að um sé að ræða ökuljós en sú er ekki raunin.“ Þar segir líka: „Hér á landi er ljósaskylda – allan sól- arhringinn og allan ársins hring – og því þarf ökumaður að gæta þess að nægjanleg ökuljós séu kveikt meðan á akstri stendur, bæði á bílnum framan- og aftanverðum.“ Í raun ætti ekki að þurfa að segja neitt meira. Það er þó afar sérkennilegt að hér skuli vera innleiddar hugsunarlaust EES reglur sem ganga í berhögg við íslensk lög. Vegna þeirra er nú heimilt að flytja inn bifreiðar sem eru með búnaði sem getur reynst hættulegur í umferðinni og stenst ekki íslenskar reglur. Þessi vandi á þó ekki bara við skilyrðis- lausa notkun ökuljósa allan sólarhringinn. Þetta á líka við um notkun, eða öllu heldur notkunarleysi stefnuljósa. – Já, ég nefni STEFNULJÓS, en það er eitthvað sem fjöldi ökumanna virðist ekki hafa hugmynd um að hafi nokkuð með akstur í umferðinni að gera. Það sem meira er, allt of mörgum ökumönnum með gilt ökuskírteini virð- ist aldrei hafa verið kennt til hvers ljósa- armurinn vinstra megin við stýrishjólið er yfir höfuð settur í bílinn. Nema kannski að sumir bílar séu hreinlega ekki útbúnir með stefnuljós. Hvað veit maður, kannski er bara búið að innleiða enn eina reglugerðina sem heimildar innflutning bíla án stefnuljósa! Svo eru líka til ökumenn sem þykjast aldeilis kunna að nota stefnuljósin. Þeir nota þau helst til að láta þá sem á eftir koma vita að þeir séu búnir að taka beygju og svína fyrir viðkomandi. Í sumar hefur maður heyrt marga brandara um erlenda ferðamenn sem kunni ekki að aka á íslenskum vegum. Nefndar eru skemmtisögur, sérstaklega af kínverskum ferðamönnum, sem stöðugt eru að lenda í vandræðum vegna fákunnáttu um akstur. Gjarnan er fullyrt að þessir ökumenn taki bílpróf á netinu á leiðinni til landsins. Svo taki þeir bílaleigubíla til að aka um í kringum landið án þess að hafa lært að aka. Íslendingar ættu kannski að fara varlega í að gera grín að kínverskum ökumönnum á íslenskum vegum þegar stór hluti þeirra er engu betri. Þeir sem kunna ekki að nota ljósabúnað bifreiða sinna, eða þekkja ekki íslensk lög um ljósanotkun, þar með talið stefnuljósanotkun, ættu að skila inn öku- skírteini sínu þegar í stað. – Þeir eru stór- hættulegir í umferðinni. /HKr. Virðum lög Ísland er land þitt Laufásbærinn og Laufáskirkja, í gamla Grýtubakkahreppi sem tilheyrir Þingeyjarsýslu, er fast við þjóðveginn út á Grenivík í austanverðum Eyjafirði. Laufás mun hafa verið kirkjustaður frá upphafi kristni á Íslandi, en kirkjan var helguð Pétri postula í kaþólskum sið. Núverandi Laufáskirkja var teiknuð af Tryggva Gunnarssyni „timburmanni“ og síðar alþingismanni og bankastjóra. Hann var sonur séra Gunnars Gunnarssonar í Laufási og hálfbróðir Þóru sem margir telja að Jónas Hallgrímsson hafi um ort ljóðið Ferðalok. Kirkjan var byggð 1865 og var Jóhann Bessason þar aðalsmiður. Þarna um bæjarhlaðið hefur Þórarinn Ingi Pétursson, núverandi formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, án efa átt ófá skrefin í æsku. Enda var faðir hans, séra Pétur Þórarinsson, þar prestur til fjölda ára. Mynd / HKr. Undanfarnar vikur hafa verið snarpar umræð- ur um stöðu og framtíð landbúnaðar og ekki síður þá umgjörð sem honum er sköpuð, aðkomu hins opinbera og löggjöf þar að lút- andi. Fulltrúar verslunarinnar sækja það hart að tollar á innfluttar búvörur verði lækkað- ir enn frekar og margir stjórnmálamenn og flokkar virðast ætla að taka þessi sjónarmið og gera að stefnu sinni. Hins vegar gætir ósamræmis í málflutningi margra sem segj- ast á sama tíma vilja hag innlends landbún- aðar sem mestan. Auka verði nýsköpun og útflutning en „kerfinu“ sé um að kenna hve hægt gangi. Mikil einföldun er að halda því fram að það geti farið saman að lækka eða afnema einhliða tolla á innfluttum búvörum og auka útflutning íslenskra búvara. Almennt eru lagðir tollar á búfjárafurðir sem eru helsta afurð íslensks landbúnaðar í milliríkjaviðskiptum. Forsenda aukins útflutnings á markaði sem gefa gott verð er því að jafnaði að ná fram tollalækk- unum eða tollfrjálsum kvótum í gagnkvæmum viðskiptasamningum. Einhliða tollalækkanir slá slík samningatæki úr höndum okkar. Mikilvægi norðurslóða í matvælaframleiðslu Löggjöf sem tryggir tollvernd og stuðning við landbúnað á sér sér langa sögu hér á landi. Á árunum eftir seinni heimsstyrjöldina var matarskortur víða í Evrópu og þar líkt og hér var margvíslegum aðgerðum beitt til að auka framleiðslu. Nú, 70 árum síðar, er öldin önnur og stuðningur við landbúnað og byggðir er ekki tengdur framleiðslu með sama hætti og áður. Fæðuöryggi er engu að síður mál sem brennur á heimsbyggðinni. Á ráðstefnu um landbúnað á norðurslóðum, sem nýlega var haldin í Reykjavík, kom fram að 94% matar í heiminum er framleiddur á landi en aðeins 3% af yfirborði jarðar er ræktanlegt. Hins vegar eru 73% af ræktarlandi notuð til fóðurframleiðslu fyrir dýr. Mikilvægi norð- urslóða sem matvælauppsprettu mun aukast á næstu árum og því þarf að koma á dagskrá stjórnmálanna. Við verðum að horfa á þessi mál til langs tíma. Annað er óverjandi og ávísun á vanda þegar fram líða stundir. Búvörusamningar skjóta fleiri stoðum undir landbúnaðinn Um 3.600 manns hafa landbúnað að aðal- starfi hér á landi og aðrir 300 í viðbót starfa í hlutastarfi við landbúnað samkvæmt tölum Hagstofunnar. Landbúnaður er stundaður frá fjöru til fjalls um allt land. Það heyr- ist oft að „kerfið“ haldi bændum í fjötrum. Sannleikurinn er samt sá að mjólkurfram- leiðsla, ein búgreina, býr við framleiðslu- stýringu. Í nýjum búvörusamningi er opnað á hugmyndir til að breyta þessu. Í öðrum búgreinum taka bændur sjálfir ákvarðanir um framleiðsluna. Í nýjum búvörusamningi er hins vegar að finna aðgerðir til að beina stuðningi að fleirum, t.d. að bændum sem eru í útiræktun grænmetis. Algengt er að heyra því haldið fram að í lífrænni ræktun felist ómæld tækifæri. Sannleikurinn er sá að allt frá árinu 2010 hafa framlög til stuðnings við aðlögun að lífrænni ræktun verið óbreytt að krónutölu, 3,5 millj- ónir króna. Í nýjum búnaðarlagasamningi eru þau hins vegar tífölduð. Með þessu er verið að skjóta fleiri stoðum undir landbúnaðinn. Landbúnaður án sýklalyfja og eiturefna Íslenskar landbúnaðarafurðir eru framleidd- ar í köldu loftslagi og í dreifbýlu landi. Áburðar- og eiturefnanotkun er með því minnsta sem þekkist í landbúnaði í Evrópu og þó víðar væri leitað. Notkun sýklalyfja er einnig með því minnsta sem þekkist á vestræn- um löndum. Svo er að heyra að talsmönnum aukins innflutnings, eða í það minnsta afnáms innflutningstakmarkana, láti sér þetta í léttu rúmi liggja. Þeir segja það val neytenda að beina innkaupum að innlendum afurðum. En er þetta alveg svo einfalt? Skiptir ekki máli að við sem þjóð stöndum með heilbrigðum framleiðsluháttum og viðhöldum þekkingu á þeim og stundum rannsóknastarf sem tryggir sérstöðuna? Við eigum að standa vörð um landbúnað sem við þekkjum og treystum. Það er á okkar ábyrgð að standa með slíkum framleiðsluháttum en ekki þeim sem treysta á óhóflega lyfjanotkun með ófyrirséðum afleiðingum. Neytendur standa oft frammi fyrir takmörk- uðum upplýsingum, skrifuðum með örsmáu letri á umbúðir. Hingað til hafa reglur um upp- runamerkingar ekki tryggt neytendum upplýs- ingar um uppruna og má nefna kjötvörur í þessu sambandi. Stóraukin vinnsla matvæla, pökkun í neytendaumbúðir og ekki síður neysla matvara í mötuneytum, á skyndibitastöðum og veitinga- húsum rýfur enn frekar þessa tengingu. Fæstir spyrja hvaðan maturinn í mötuneytinu kemur. Það er kominn tími til að opinberir aðilar setji sér stefnu í innkaupum á matvörum til stofnana á þeirra vegum sem tryggja að tiltekið hlutfall matvæla í mötuneytum á þeirra vegum upp- fylli sömu kröfur og gæði sem afurðir íslensks landbúnaðar búa yfir. Almenningur getur líka beitt sér. Þannig gætu foreldrar barna í leik- og grunnskólum sent skilaboð til skólanna þess efnis að börnin þeirra megi einungis borða íslenskt kjöt þar sem foreldrarnir treysti best innlendum matvörum. Á Íslandi er leyfilegt að nota fiskimjöl sem próteingjafa í fóðurblöndur fyrir búfé. Próteingjafi í fóðri búfjár í Evrópu er sojamjöl sem flutt er með skipum yfir Atlantshafið frá S-Ameríku. Hér er komið enn eitt lóð á vogarskálar þess að nýta það sem er heima- fengið og spara losun kolefnis við flutninga á próteini yfir hálfan hnöttinn. Hvaða stefnu tekur næsta ríkisstjórn í málefnum landbúnaðarins? Samningar ríkis og bænda um stuðning og starfsumhverfi landbúnaðarins eru mikil- vægir til að tryggja framtíð atvinnugreinar- innar. Landbúnaðurinn hefur sannarlega hlut- verk í að tryggja fæðuöryggi og byggð á öllu landinu. Hvort tveggja er mikilvægt fyrir aðrar atvinnugreinar, ekki síst ferðaþjón- ustuna. Það skiptir því verulegu máli hver verður stefna nýrrar ríkisstjórnar í málefnum landbúnaðarins. Erna Bjarnadóttir hagfræðingur Bændasamtaka Íslands eb@bondi.is Hvað vilt þú fyrir íslenskan landbúnað? Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Ásgerður María Hólmbertsdóttir amh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Vefsíða blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Prentsnið – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.