Bændablaðið - 20.10.2016, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 20.10.2016, Blaðsíða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 „Þetta gekk frábærlega, hér var troðfullt hús af áhugasömu fólki um ullarvinnslu og ullarvöru og við fórum létt með að setja Íslandsmet í fjöldaspuna,“ segir Maja Siska hjá Spunasystrum. „Það voru sextíu og þrjár konur og einn karl sem tóku þátt í metinu okkar en hópur- inn sat við rokkana eða snældurnar og spann í klukkutíma í Brúarlundi í Landsveit frá kl. 14.00 til 15.00 sunnudaginn 9. október,“ segir Maja. Spunasystur hafa aðstöðu í Brúarlundi en þær eru nú með sýningu þar sem heitir „Frá fé til flíkur“. Opið verður helgarnar 22. til 23. október og 5. til 6. nóvember frá kl. 10.00 til 16.00 alla dagana. Á staðnum fer fram sýning á ullarvinnslu, spuna og ullarvörum. /MHH Íslandsmet í fjöldaspuna − Alls voru sextíu og þrjár konur og einn karl sem tóku þátt í að setja metið Líf og starf MÆLT AF MUNNI FRAM N ú er farið að skorta „nýmeti“ í vísnaþáttinn, en fremur treglega hefur gengið að heilla hagyrðinga með gylliboðum um frægð og frama á síðum Bændablaðsins. Ef til vill er skýr- inga að leita í þessari stöku Bjarna frá Gröf: Að látast, það er lítils virði, á listamönnum fólk er þreytt. Skáld er að verða skammaryrði, skyldi það aldrei batna neitt. Pétur Hoffmann dvaldi einhverju sinni nokkurn tíma á Landakotsspítala. Stofubræður hans, ónefndir, kvöddu hann með þessum vísum: Vér kveðjum þig, virti vinur, viskugyðjunnar son. Íshafsins óskahlynur, íslenski Salomon. Kappi með kvenna hylli kann vel að munda geir. Veraldar vit og snilli veist hafa fáum meir. Nú er dauft á númer eitt, nálgast vetur. Burtu spekings hjartað heitt, horfinn Pétur. Meyja hjörtu hittir þú hörðu skoti. Ástarlíf er lítið nú í Landakoti. Sigurður Ringsteð útibússtjóri orti við útför Bernharðs Steingrímssonar: Nú er genginn góður drengur, gumar lengi minnast hans, blóm á engi blakta ei lengur, brostinn strengur kærleikans. Kristján frá Djúpalæk flutti erindi í útvarpi á föstudaginn langa. Undir þeim lestri orti Rósberg G. Snædal: Bágt er að hlusta á þvætting þinn og það á langa frjádaginn. Kvalir leið ég Kristján minn kannski meiri en frelsarinn. Í algleymi sláturtíðar þennan Gormánuðinn er ekki úr vegi að rifja upp löngu liðið atvik frá sláturhúsinu á Sauðárkróki. Guðmundur skáldbóndi á Egilsá var mættur með sláturlömb sín, og vildi hafa forgangsrétt á aðra bændur. En Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka hafði náð að verða á undan Guðmundi sem missti þá alla geðró. Þá kvað Hjörleifur: Þú hefur hlotið einkaarf, ágirnd, mont og hroka, en það er list sem læra þarf að láta í minni poka. Í fjárleitum kann að verða þröngt í sumum gangnamannakofum. Á einni slíkri stund orti Jakob Ó. Pétursson: Þú skalt eiga vísu vísa vangahýra jöklaskvísa. Hárin mér á höfði rísa (hinu þori ég ekki að lýsa). Á skattaskýrslu hafði Jakobi Ó. láðst að telja fram atvinnuleysisbætur konu sinn- ar, sem hann hafði enga hugmynd um. Skattstjóri gerði honum 1000 kr. sekt fyrir athæfið. Jakobi þótti hart að lenda á saka- skrá sjötugur fyrir þetta smáræði. Þá orti Friðjón Ólafsson: Skattar þjaka, skuldir þjá, skýrslur taka Hallur má, og vill Jakob ólmur fá inná sakamannaskrá. Því miður finn ég ekki höfund að næstu vísu. Stúlka ein, Veiga að nafni, átti í orða- kasti við nokkra pilta, og endaði með því að kalla þá svín. Einn þeirra svaraði svo: Ástum tryllta auðarlín orðin stilltu betur þín. Ef við piltar erum svín ertu gylta, Veiga mín. 164 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Konurnar sem tóku þátt í að setja Íslandsmetið í fjöldaspuna komu víða að, t.d. komu sjö konur Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson. Ebenezer Bárðarson úr Reykjavík var eini karl- maðurinn sem tók þátt í fjöldaspunanum með konunum. Hann var með snældu. Maja Siska frá Skinnhúfu í Holta- og Landsveit er ein Spunasystra og er í forsvari fyrir hópinn. Halla Baldursdóttir á Selfossi hafði gaman af því að taka þátt í deginum og spinna með hópnum á rokkinn sinn. Bændablaðið − Smáauglýsingar 56-30-300 Næsta blað kemur út 3.nóvember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.