Bændablaðið - 20.10.2016, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Eins og margir aðrir bílafram-
leiðendur hefur KIA bæst í hóp
bílaframleiðenda með „hybrid“
bíl (tvinnbíl). Eins og aðrir bílar
frá KIA er hann með 7 ára
ábyrgð.
Uppbyggingin á vélunum
tveimur er svipuð hjá öllum
bílaframleiðendum, en KIA hefur
aðeins bætt rafmagnstæknina til að
auka rafmagnsflæði og framleiðslu
fyrir rafmagnsvélina og minnka
þannig eldsneytiseyðslu bensín-
vélarinnar. Ég tók góðan hring
á blautum vindasömum degi og
prófaði KIA Niro.
Uppgefin eyðsla hentar ekki
mínu aksturslagi eða íslensku
roki
Niro tekur að öllu jöfnu af stað
á rafmagnsvélinni og því nánast
alveg hljóðlaus akstur. Fyrir utan
veghljóð og umhverfishljóð að
utan, mældist hávaði hjá mér við
90 km hraða undir 58 desíbelum
(db) að meðaltali þrátt fyrir rok og
rigningu. Á flestum hybrid-bílum
er mótorinn að fara í gang í kring-
um 50 kílómetra hraða, en Niro er
á töluvert meiri ferð þegar bens-
ínvélin fer í gang og hjálpar til.
Með því að fylgjast með aksturs-
tölvu bílsins sem sýnir orkunotk-
un (bæði af bensíni og rafmagni)
komst ég fljótlega í bíl túrnum að
því að mitt aksturslag var ekki að
henta til sparaksturs á þessum bíl
(og ekki var rokið og rigningin að
hjálpa til).
Uppgefin meðaleyðsla er 3,8
lítrar á hundraðið við bestu aðstæð-
ur og í byrjun var ég að eyða upp
undir 7 lítrum miðað við 100 km
akstur. Með því að mýkja aksturs-
lagið á mínum akstursstíl náði ég
að minnka eyðsluna í rokinu og
rigningunni niður í 5,2 lítra, en
neðar komst ég ekki.
Nýjung í rafmagnsframleiðslu
Flestir hybrid-bílar framleiða
rafmagn inn á rafhlöðuna þegar
bremsað er, eða hægt mikið á og
niður brekkur.
Rafmagnsvélin knýr bílinn
áfram í byrjun ökuferðar og hjálp-
ar bensínvélinni á meðan eitthvað
rafmagn er á rafhlöðunni. Niro er
að framleiða rafmagn í mjúkum
akstri á jafnsléttu og þegar slegið
er af og bremsað er rafmagnsfram-
leiðslan í hámarki.
Rafmagnsframleiðslan á jafn-
sléttu (og undan vindi) kemur
aðallega frá rafal sem tengist
hraða bílsins, en miðað við aðra
hybrid-bíla sem ég hef ekið er Niro
að framleiða meira rafmagn. Nýja
liþíum-rafhlaðan heldur rafmagni
lengur og tekur meiri hleðslu.
Rúmgóður og þægilegur í akstri
KIA Niro er þægilegur að keyra
bæði á bundnu slitlagi og á malar-
vegum. Það eina sem ég fann að
bílnum eftir malarvegaaksturinn
var að drullan safnaðist á eina stað-
inn sem ekki er æskilegt að safna
óhreinindum á. Þetta var holan sem
maður setur höndina inn í til að
opna skottlokið og fyrir vikið urðu
hnúarnir á hendinni drulluskítugir.
Fótapláss er gott í framsætum
og mjög gott pláss fyrir farþega í
aftursætum. Farangursrými er gott,
en varadekkið er það sem ég kalla
aumingja.
Eins og margir nýir bílar er
bíllinn ekki með löglegan dag-
ljósabúnað (engin ljós að aftan),
en með því að snúa takkanum og
hafa alltaf ljósin kveikt og hunsa
„dinghljóðið“, viðvörunina, um að
ljósin séu kveikt þegar farið er út
úr bílnum því ljósin slökkva á sér
sjálfkrafa eftir fjórar sekúndur.
Gott verð á bíl sem ætti að
henta mörgum
Sem alhliða bíll með góða fjöðrun
og á dekkjum með háan „prófíl“ ætti
þessi bíll að henta vel jafnt á malar-
vegum sem bundnu slitlagi.
Bensínvélin er 1,6 lítra og skil-
ar 105 hestöflum, en rafmagns-
mótorinn skilar að hámarki 43,5
hestöflum. Sé bílnum botngefið úr
kyrrstöðu er snerpan hættulega góð
í báðum vélunum þegar þær vinna
saman.
Sex þrepa skiptingin er mjúk og
aldrei fann ég fyrir því þegar bíll-
inn skipti um þrep fyrir utan þetta
eina skipti þegar ég botngaf bílnum
úr kyrrstöðu. Verðið á Niro er frá
4.290.777.
KIA Niro hybrid. Myndir / HLJ Myndir / HLJ
Þyngd 1.458 kg
Hæð 1.545 mm
Breidd 1.805 mm
Lengd 4.335mm
Helstu mál og upplýsingar
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson