Bændablaðið - 20.10.2016, Side 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Fréttir
Eldtefjandi spónaplötur til sölu. Stærðir 125 X 255 cm.
Þykktir 12 og 16 mm. Einnig til sölu húðaðar
spónaplötur og MDF plötur, ýmsar þykktir.
Upplýsingar veittar í síma 8641501.
Spónaplötur til sölu
Úttekt verkfræðistofunnar EFLU á þróun orkuverðs sýnir mikinn mun á verði eftir búsetu:
Dreifbýlisbúar greiða allt að 34% hærra
almennt raforkuverð en þéttbýlisbúar
− Inni í orkuverðinu er dreifingarkostnaður þar sem munurinn getur verið allt að 63% og virðisaukaskattur veldur líka mismunun
Árið 2003 voru samþykkt ný
raforkulög á Alþingi og við það
er skilið á milli framleiðslu og
sölu rafmagns annars vegar og
flutnings og dreifingar hins vegar.
Þetta hefur greinilega leitt til
verulegrar hækkunar orkuverðs,
sér í lagi fyrir flutning raforku
í dreifbýlinu. Í þessu felst mikil
mismunun milli íbúa landsins og
virðist það þvert á fögur fyrirheit
við setningu laganna.
Þetta kemur m.a. fram í nýrri
skýrslu verkfræðistofunnar EFLU
um þróun orkuverðs. Er hækkunin
talsvert umfram verðlagsvísitölu
ekki síst hjá RARIK og Orkubúi
Vestfjarða, en Norðurorka er með
lægsta verðið.
EFLA hefur fylgst náið með
þróun raforkuverðs hérlendis og
unnið nokkrar skýrslur fyrir iðnað-
arráðuneytið, Samtök iðnaðarins og
Landsvirkjun. Þar hefur verið fjall-
að um raforkuverð til heimila og
fyrirtækja og fram kemur að verð
á raforkudreifingu hefur hækkað
misjafnlega eftir orkufyrirtækjum.
Aðskilnaðurinn var gerður á
milli framleiðslu og flutnings á
raforku með nýjum raforkulögum
2003. Var það í takt við samninga
um aðild Íslands að Evrópska
efnahagssvæðinu, EES. Fullyrt
var við þessa breytingu að þetta
væri gert, „til að láta samkeppnina
leiða til hagræðingar og sjálfbærrar
nýtingar á auðlindinni, notendum
rafmagnsins og eigendum að auð-
lindinni til hagsældar“. Reynslan
fyrir almenna neytendur, sér í lagi
í dreifbýli, virðist þó hafa verið
þveröfug.
Tiltölulega lítill munur á
raforkuverði án dreifingar
Þegar rýnt er út fyrir það sem í
skýrslunni stendur og í gjaldskrár
orkufyrirtækjanna á netinu, sést að
verðið er æði mismunandi. Orkubú
Vestfjarða (OV) er með ágæta
reiknivél á sinni vefsíðu sem ein-
faldar fólki að gera samanburð í
þessum frumskógi. Þar kemur fram
að verð á raforkunni án flutnings
er lægst hjá Orkubúi Vestfjarða og
Rafveitu Reyðarfjarðar eða 6,70 kr.
á kWst (kílówattstund) með virðis-
aukaskatti. Þá kemur Fallorka með
6,78 kr., Orka náttúrunnar er með
6,80 kr., HS Orka með 6,94 kr. og
Orkusalan með 6.99 kr. á kWst.
Munurinn á hæsta og lægsta verði
á raforkunni er því 29 aurar á kWst.
samkvæmt reiknivél OV.
Mikill munur á
dreifingarkostnaði
Þegar litið er á þau fyrirtæki sem
gefin eru upp sem flutningsaðilar á
raforku er munurinn mun meiri og
er jafnframt verulegur á milli dreif-
býlis og þéttbýlis, en einungis OV
og RARIK eru þarna gefin upp með
báða kostina. Verðið inniheldur bæði
24% virðisaukaskatt og jöfnunargjald
sem er 0,30 kr. á kWst. Engar niður-
greiðslur eru vegna almennrar raf-
orkunotkunar eins og gert er varðandi
raforku til húshitunar.
• Þar er dreifing orku hjá RARIK í
þéttbýli á 6,46 krónur á kWst., en
9,57 kr. á kWst í dreifbýli.
• Hjá OV kostar dreifing í þéttbýli
6,84 kr. kWst., en 9,32 kr. í dreif-
býli.
• Hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR)
kostar dreifing í þéttbýli 7,55 kr.
• Hjá Rafveitu Reyðarfjarðar kostar
dreifing í þéttbýli 6,56 kr. á kWst.
• Hjá HS veitum kostar dreifing í
þéttbýli 6,67 kr. á kWst.
• Hjá Norðurorku kostar dreifing í
þéttbýli 6,03 kr. á kWst.
• Ef tekið er samanlagt verð fyrir
raforku og dreifingu í dreifbýli er
verðið óhagstæðast hjá RARIK og
OV fylgir þar fast á eftir.
• Hjá RARIK er kostnaðurinn fyrir
dreifbýlisbúa 16,27 kr. á kWst.,
á meðan þéttbýlisviðskiptavinir
RARIK þurfa einungis að greiða
13,16 kr. á kWst. Er þá miðað
við að viðskiptavinir geti valið
um ódýrasta verðið á raforkunni
sjálfri óháð fyrirtæki, eða 6,7 kr.
á kWst.
• Hjá Orkubúi Vestfjarða þurfa
dreifbýlisbúar að greiða 16,02 kr.
á kWst., en þéttbýlisbúar 13,54
kr. á kWst.
• Ódýrast er heildar orkuverðið hjá
viðskiptavinum Norðurorku sem
búa í þéttbýli. Þar kostar kílówatt-
stundin „aðeins“ 12,77 krónur.
Um 34% munur á hæsta og
lægsta heildar orkuverði
Í skýrslu EFLU er miðað við að
meðal heimilisnotkun á raforku,
væntanlega fyrir utan húshitunar-
kostnað, sé 4,5 MWst. (megawatt-
stundir = milljón Watt stundir).
Ef skoðuð eru hæsta og lægsta
verð til neytenda í þéttbýli og dreif-
býli yfir heilt ár fyrir þetta orkumagn
er munurinn sláandi. Þar er þéttbýl-
isbúi sem skiptir við Norðurorku
að greiða 54.465 krónur á meðan
viðskiptavinur RARIK í dreifbýlinu
þarf að greiða 73.215 krónur, eða
ríflega 34% hærra gjald.
63% munur á dreifingarkostnaði
Dreifingarkostnaðurinn skekkir
myndina verulega, enda eðlilega
dýrara að dreifa orku í strjálbýli.
Spurningin er hvort ekki sé réttlæt-
anlegt að jafna þennan aðstöðumun
til að styðja við byggð í dreifbýli.
Fyrir fólk í þéttbýli sem kaupir af
Norðurorku er dreifingarkostnaður-
inn 27.135 krónur fyrir 4,5 MWst.
á ári. Hann er aftur á móti 43.065
krónur fyrir sama orkumagn hjá
RARIK til fólks í dreifbýli eða
63% hærri. Þá er búið að taka inn
í dæmið jöfnunargjald, sem nemur
30 aurum á kílówattstund og 24%
virðisaukaskatt.
Dreifbýlisheimilum er
líka refsað með skattheimtu
Það ýkir svo skekkjuna að 24% virð-
isaukaskattur er lagður ofan á orku-
verðið og flutning óháð því hversu
hátt það er. Þeir sem búa við hæsta
verðið greiða þannig fleiri krónur í
ríkissjóð fyrir orkunotkunina en þeir
sem bestra kjara njóta í þéttbýlinu.
/HKr.
Nú verður hægt að skoða öll
þau hross sem tóku þátt á
Landsmóti 2016 á www.world-
fengur.com undir flipanum LM
MYNDBÖND.
Verkefnið er samstarfsverkefni
á milli Bændasamtaka Íslands og
Landsmóts ehf. sem felur í sér að
auka aðgengi af bestu keppnishross-
um okkar til áhugafólks um íslenska
hestinn um allan heim og á sama
tíma er verið að koma myndefn-
inu til varðveislu í upprunaættbók
íslenska hestsins.
Þessi vinna er langt komin en
lögð var áhersla á að koma fyrst
inn kynbótahrossum, og er því
verki lokið, síðan er vinna í fullum
gangi með forkeppni, milliriðla og
úrslit í gæðingakeppninni sem og
tölt- og skeiðgreinum. Stefnt er að
því að búið verði að koma öllum
myndböndum af síðustu tveimur
landsmótum, 2014 og 2016, inn á
þessu ári.
Nú er einnig hægt að skoða mynd-
böndin á fleiri stöðum í WorldFeng.
Þannig er nú hægt að skoða mynd-
bandið beint frá dómasíðu hrossins,
og síðar er hugmyndin að hægt verði
að leita að öllum myndböndum af
hrossum sem hafa fengið 8,5 eða
hærra fyrir tölt í kynbótasýningu svo
dæmi sé tekið.
Áskrifendur WorldFengs geta
keypt sér sérstakan aðgang til þess
að horfa á myndböndin og gildir
aðgangurinn í eitt ár frá kaupum.
Aðgangurinn kostar 4.900 kr.
Til þess að kaupa aðgang skráir
notandi sig inn í WorldFeng, smellir
á LM MYNDBÖND í valstikunni
vinstra megin á síðunni, því næst
er notandinn leiddur inn á örugga
greiðslusíðu til þess að ganga frá
kaupunum.
Myndbönd af öllum hrossum frá LM2016
− eru á vefsíðunni www.worldfengur.com
Vinna við gerð Vaðlaheiðarganga
hefur gengið vel að undanförnu.
Göngin voru orðin 6.213 metrar
í byrjun þessarar viku, sem er
86,2% af heildarlengd þeirra.
Eyjafjarðarmegin eru göngin
4738,5 metrar að lengd um þess-
ar mundir og 1.474,5 metrar
Fnjóskadalsmegin. Þá eru eftir alls
993 metrar þar til komist verður
í gegn.
Vel hefur gengið undanfar-
ið að grafa Eyjafjarðarmegin,
þannig náðust t.d. 80 metrar í
þarsíðustu viku sem er mesta
framvinda í göngunum þeim
megin frá því verktaki lenti á
stórri heitavatnsæð í febrúar árið
2014. Þetta kemur fram á face-
book-síðu Vaðlaheiðarganga. Efni
úr göngunum hefur annars vegar
farið í Grenivíkurveg og hins vegar
í flughlað við Akureyrarflugvöll.
Gert er ráð fyrir að vegurinn verði
malbikaður í vikunni og í fram-
haldinu verði umferð hleypt á
hann. /MÞÞ
Verki við Vaðlaheiðargöng miðar vel
− Eftir er að sprengja innan við kílómetra