Bændablaðið - 20.10.2016, Page 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 3. nóvember
Lækkum
skatta
á meðallaun
Lágmarkslífeyrir aldraðra verði 300 þús. kr. á
mánuði og fylgi lágmarkslaunum á almennum
vinnumarkaði
Tannlækningar aldraðra verði gjaldfrjálsar og
hjúkrunarrýmum fjölgi um allt land
Skoðað verði hvort beita megi skattaívilnunum
til fyrirtækja og einstaklinga á efnahagslega
veikum svæðum á landsbyggðinni
Taka skal upp komugjald á ferðamenn sem nýtt
verður til uppbyggingar innviða
Tryggingagjaldið lækki. Einfalda þarf regluverk
og skattkerfi fyrir atvinnurekstur
Gott fjarskiptanet um land allt er hornsteinn
nútímasamfélags
Fögnum samþykki nýrra 10 ára búvörusamninga
Framsókn
FYRIR FÓLKIÐ
Fyrirhuguð er lagning ljósleiðara í Tálknafjarðarhreppi, sem veita á öruggt þráðbundið netsamband í
sveitarfélaginu. Gert er ráð fyrir að tengja öll lögheimili í sveitarfélaginu á næstu árum. Einnig standi
eigendum frístundahúsa og fyrirtækja, sem staðsett eru í sveitarfélaginu, til boða að tengjast ljósleiðar-
anum. Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljósleiðara-
kerfinu gegn gjaldi.
Auglýst er eftir:
A. Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingu eða annarri a.m.k. 100Mb/s
þráðbundinni netþjónustu í Tálknafjarðarhreppi (innan eða utan þéttbýlis) á næstu þremur árum
á markaðslegum forsendum.
B. Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi með stuðningi frá op-
inberum aðilum og e.t.v. reka til framtíðar, komi til þess að enginn aðili svari lið A. hér að ofan.
Aðilar sem óska eftir stuðningi skulu uppfylla tilteknar kröfur um fjarskiptaleyfi, fjárhagslegan
styrk, reynslu af uppbyggingu og rekstri sambærilegra kerfa, raunhæfa verkáætlun o. fl. er varðar
verkefnið.
C. Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða í Tálknafjarðarhreppi sem er tilbúinn að leggja
þá til við uppbygginguna gegn endurgjaldi sem bjóðist öllum sem lýsa yfir áhuga á uppbyggingu
samkvæmt B. hér að ofan á jafnræðisgrundvelli.
Áhugasamir skulu senda tilkynningu til Tálknafjarðarhrepps á netfangið sveitarstjori@talknafjordur.is fyrir
kl. 12:00 þann 28. október 2016. Í tilkynningunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga
um ofangreint eftir því sem við á.
Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrirspurnir sendar á netfangið:
sveitarstjori@talknafjordur.is
Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir Tálknafjörð né þá sem sýna verkefninu áhuga.
Tálknafirði 12. október 2016
Sveitarstjóri.
Könnun á áformum markaðaðila
varðandi uppbyggingu
fjarskiptainnviða