Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Í engu héraði á landinu á héraða-
bundið sýningarhald á hrútum
sér jafn langa og rótgróna sögu
og á Snæfellsnesi. Laugardaginn
15. október var fáninn reistur að
nýju. Snæfellingar búa líkt og
sumir aðrir við það að sameigin-
leg sýning er ekki möguleg vegna
sauðfjárveikivarna. Sýningin var
að þessu sinni að Gaul í Staðarsveit
vestan girðingar og í Haukatungu
austan girðingar.
Á báðum stöðum var sýningar-
aðstaða nálægt því að vera betri en
á best verður kosið og glæsibragur
á allri framkvæmd mikill og sýn-
ingarnar vel sóttar. Sú breyting var
nú gerð að sýningarnar voru báðar
samdægurs. Dómarar á sýningunni
eins og oft áður voru Lárus G.
Birgisson auk þess sem ég tók þátt
í því starfi.
Meiri þátttaka en haustið 2015
Umtalsvert meiri þátttaka var í sýn-
ingarhaldinu en haustið 2015, nú
sýndir samtals 79 hrútar. Vestan
girðingar verður þátttaka vart betri en
verið hefur en hrútar sýndir þar voru
55 að þessu sinni. Austan girðingar er
fjárfjöldinn mestur á svæðinu en þar
voru sýndir 24 hrútar og þó að það
sé bragarbót frá síðasta ári eru það
bændur þar á svæðinu sem enn geta
gert átak í þessum efnum. Flokkun á
sýningarhópana var þannig að hyrndu
hvítu hrútarnir voru langflestir eða 44
samtals 22 voru í flokki þeirra mislitu
(einn að vísu hvítur en ferhyrndur) og
hvítu kollarnir voru 13.
Ótrúlega margt forvitnilegt mátti
greina í sýningahópnum og verður
reynt að greina frá einhverju í texta.
Í heild var lambahópurinn frábær og
viðlíka einstaklingar aldrei verið á
samskonar sýningu á svæðinu áður.
Viðurkenningar fyrir ær í BLUP
kynbótamatinu
Sú góða hefð hefur skapast á þess-
um sýningum að veita í fyrstu viður-
kenningar fyrir þær ær á svæðinu sem
efstar standa í BLUP kynbótamatinu
og hafa náð þeim árangri að fylla uppí
eigin upplýsingar fyrir fjögur fyrstu
afurðaárin. Að þessu sinni er það
árgangur ánna fæddra árið 2011.
Efsta sætið skipar þar ær 11-194
á Hjarðarfelli. Hún er úr hinni ára-
tuga gömlu ræktun þar undan Laufa
08-848 og móðurfaðir Raftur 05-966.
Þessi ær hefur áður komið við sögu
þessara sýninga vegna þess að annað
tvævetlulamb hennar haustið 2013
stóð þá efstur á héraðssýningu, fékk
nafnið Stólpi og er nú kominn á
sæðingastöð. Haustið 2015 var hún
með frábæran tvílembingshrút, sem
því miður lifði það ekki að komast
í notkun. Að síðustu má nefna að
líklega á hún óstaðfest Íslandsmet í
afurðum hjá veturgömlum ám en á
þeim aldri skiluðu afkvæmi hennar
55 kg af dilkakjöti í sláturhús. Hér
fer því sannanlega einstakur gripur
til afurða og kynbóta.
Í öðru til þriðja sæti þessara áa
voru síðan hálfsystur frá Mýrdal,
Kvaðning 11-301 og Kvísl 11-302,
en þær eru sonardætur Kalda 03-989
og hafa þaðan erft Þokugenið báðar
Þessar ær hafa því oft verið þrí- eða
fjórlembdar og eru hinar mestu
afurðaskjóður.
Gullmolar úr hinni
almennu ræktun
Í hópi mislitu hrútanna gaf á að líta
fágætt úrval góðra lamba.
Efsta sætið þar skipaði svartbotn-
óttur hrútur nr 255 frá Haukatungu.
Faðir þessa lambs Kúði 14-549 átti
þarna á sýningunni fjóra úrvalssyni
en hann er sjálfur genginn á vit feðra
sinna en hann var sonur Salómons
10-908. Í móðurætt 255 eru fjöldi
þekktra sæðingahrúta og konfekt úr
heimaræktun. Þessu lambi er í sem
fæstum orðum lýst sem óvanalega
samanþjöppuðum holdaköggli með
frábær mala- og lærahold.
Í öðru sæti var svartbíldóttur
hrútur frá Hofsstöðum, sem ekki
síður hefur af miklu ættgöfgi að
státa. Faðir hans Stutti 15-210 er
sonur Putta 11-921 og móðurfaðir
Stutta er Mundi 10-521 í Gaul sem
var þekktur héraðssýningartoppur
sem hefur skilið ótrúlega mikið eftir í
ræktun á svæðinu. Í móðurætt lambs-
ins eru síðan skrautfjaðrir eins og
Andrés 09-244 sem var eitt margra
svartra kynbótatrölla undan Kveiki
05-965 og einnig Jón Pál 04-990 sem
kom frá Hofsstöðum á stöð. Lamb
99 er stórglæsilegt, þroskamikið og
bollangt með alveg frábæra holdfyll-
ingu í öllum afturhlutanum.
Þriðja sæti skipaði síðan svart-
kollóttur hrútur frá Hraunhálsi nr
180. Faðir þessa lambs Kópur 15-440
á síðar eftir að koma við sögu hér
á sýningunni en sjálfur stóð hann
í öðru sæti í þessum flokki haustið
2015.
Um árabil hafa dökkir hrútar frá
Hraunhálsi, flestir svartir, skipað
topp eða annað sætið á þessari sýn-
ingu. Þeir eru ræktaðir kynslóð af
kynslóð og afkvæmi Kóps í haust
finnst mér sýna óvanalega festu
komna í þessa ræktun.
Á sýningunni koma fram þrír
úrvalshrútar undan Kópi úr hópi
fárra afkvæma. Rekur mig ekki
minni til jafn sterkrar ræktunar í
kollótta fénu á þessu svæði. Lambið
180 státar af þeim Sigurfara 09-860
og Frakkssyni 04-974 í móðurætt.
Lamb þetta er frábærlega velgert með
góða bollengd og gríðarlega góða
holdfyllingu.
Ég rek talsvert ættir þessara
mislitu lamba til að sýna að þetta eru
aðeins gullmolar úr hinni almennu
ræktun sem sumir hafa skipt um ytra
gervi. Þetta er ákaflega ánægjuleg
breyting sem er þannig að verða í
ræktun mislita fjárins víðast um land.
Kópur hlýtur að koma á
áhorfslista stöðvanna
Annað atriði vil ég nefna að í skrifum
um sýninguna 2015 íja ég að því að
mögulega megi sjá einhverja topp-
ana inná stöðvunum á næstu árum úr
þeim hópi. Þá var ég ekki að horfa
til mislitu hrútanna. Kópur er þegar
nefndur og hlýtur þegar að koma á
áhorfslista stöðvanna.
Efsti hrúturinn í þessum flokki
2015 sem var frá Álftavatni var
seldur að Neða-Hóli og heitir þar
Valdi 15-247. Undan honum var á
sýningunni hópur sona, flestir hvítir,
alger úrtökulömb. Þess má geta að
mæður þessara lamba munu flestar
afkomendur Mundasonar í Gaul, sem
einnig er áður nefndur og lömbin því
ögn skyldleikaræktaðir afkomendur
hans. Valdi er tvímælalaust hrútur
sem horft verður til.
Kollóttu hrútarnir ákaflega vel
gerðir
Kollóttu hrútarnir voru fæstir en
ákaflega vel gerðir og góð lömb.
Efsta sæti þar skipaði lamb nr 63 í
Dalsmynni. Þetta er ákaflega föngu-
legt lamb, jafnvaxið með afbrigðum,
bollangt með feikilega góða hold-
fyllingu. Föðurfaðir þessa lambs er
Sproti 12-936 en móðir lambsins var
fengin frá Bassastöðum úr lands-
þekktri ræktun þar. Uppruna líklega
best lýst sem Árneshreppskind að
mestu ræktuð utan sveitar.
Í öðru sæti kollanna var hrútur nr 8
úr Bjarnarhöfn. Þetta lamb er frábær-
lega holdfyllt, sértaklega lærahold
og minnti í útliti ögn á Texel lömb.
Hrúturinn er hreinhvítur og má helst
að finna, að bollengd er ekki nema
í góðu meðallagi. Faðir lambsins er
fenginn frá Árbæ og undan Spotta
13-942 en móðurfaðir lambsins Steri
07-855 og lambið því nokkuð skyld-
leikaræktaður afkomandi Stera.
Í þriðja sætinu var síðan hrútur
219 frá Hraunhálsi en hann lík-
ist um gerð ákaflega mikið
Bjarnarhafnarhrútnum nema meðan
hann er hreinhvítur er þessi ögn
guldröfnóttur. Þessi hrútur er undan
Kópi 15-440 sem þegar hefur nokkuð
verið fjallað um.
Þrír hyrndir austan girðingar í
verðlaunasæti
Í stærsta flokknum meðal hyrndu
hvítu hrútanna urðu ákveðin kafla-
skil. Ósjaldan hafa öll efstu sætin í
þessum flokki fallið í hlut hrúta vest-
an girðingar en það gerist nú fyrsta
sinni að öll þrjú efstu sætin komu í
hlut hrúta austan girðingar.
Efsta sætið og um leið efsta sæti
sýningarinnar og þar með um leið
gerði eigandann að handhafa hins
glæsilega verðlaunaskjaldar sem
hefur verið farandgripur á svæðinu
í meira en sex áratugi var lamb 17 í
Haukatungu. Þetta lamb er einstakt
djásn að allri gerð. Hann er rígvænn,
mjög bollangur, sterkbyggður og
jafnvaxinn. Vöðvafylling hjá þessum
einstaka glæsigrip var einnig með
fádæmum mikil. Bakvöðvi mældist
37 mm og fékk hann 5 fyrir lögun
hans. Þetta metfé er sonur Garra
11-908 en synir hans eru frekar
fátíðir þetta haustið eftir ofurnotk-
un tveggja undangenginna ára. Í
móðurætt standa ýmsir af sterkustu
gripum ræktunarinnar í Haukatungu
að baki. Þess má geta að 2014 hlotn-
aðist öðrum Garrasyni í Haukatungu
efsta sætið þá á héraðssýningu og
fetar sá líklega inná stöðvarnar til
notkunar í haust.
Í öðru sæti var lamb nr 23 í
Dalsmynni. Þetta var jafnvel enn
meira djásn en topphrúturinn á velli
en hann var tæplega jafningi hans
um lærahold en frábær að allri gerð.
Þessi hrútur er einnig úr sæðingum
sonur Tanga 13-954 en það var hrútur
sem bændur sýndu almennt takmark-
aðan áhuga á að nota síðasta vetur og
því með ólíkindum hve frést hefur
af mörgum metfjárlömbum undan
Tanga á þessu hausti. Móðurfaðir 23
er Gotti 05-804.
Í þriðja sætinu kom síðan hrútur
nr 185 í Haukatungu. Aðalsmerki
þessa hrúts eru frábær vöðvafyll-
ing og sérstaklega föst hold auk
glæsileika að allri gerð. Faðir hans
Stefán 15-503 var fenginn austan frá
Leifsstöðum í Öxarfirði af þekktustu
hrútaættum þar á svæði nú um stund-
ir en móðurættin úr Haukatungufénu
þar sem margan gullmolann er orðið
að finna.
Örfáum orðum skal vikið að
áhrifum sæðinganna. Allir topphrút-
arnir eru tilkomnir meira eða minna
fyrir áhrif sæðinga eins og þegar er
fjallað um. Hrútar beint tilkomnir við
sæðingar voru færri en stundum áður
og það sem var sérstakt var að þar
var eingin tiltekin hópur hálfbræðra
sem setti svip á sýninguna eins og
yfirleitt hefur verið heldur voru lömb
undan fjölmörgum stöðvarhrútum.
Þetta er rétt notkun á þessum hrút-
um vegna þess hve margir þeirra eru
orðnir svipaðir að gæðum. Einkenni
þessara sýninga voru ótrúlegir hópar
undan veturgömlum heimahrútum.
Þrír hafa þegar verið nefndir, þeir
voru fleiri og minnist ég aldrei áður
að hafa séð hliðstæðu við þetta rækt-
unarafrek, sem að hluta hlýtur að
vera tilviljun.
Snæfellskri sauðfjárrækt
til mikils sóma
Sýning þessi var líkt og fyrri hlið-
stæðar sýningar snæfellskri sauðfjár-
rækt til mikils sóma. Ræktunarstarfið
í sauðfjárrækt stendur á traustari
og samfelldari grunni en í flestum
öðrum héruðum landsins.
Almennur áhugi á ræktunarstarfi
á meðal fjáreigenda er og hefur verið
mikill hvort sem um er að ræða dreif-
býli eða þéttbýli á svæðinu. Svæðið
vestan girðingar hefur nú á þriðja
áratug verið eitt meginfjársölusvæði
landsins.
Á heildina litið held ég að reynsla
bænda á öðrum svæðum af fjárkaup-
um þaðan sé mjög góð. Margir hafa
sótt sér þangað ómetanlegt kynbóta-
fé og mundu vart halda slíku áfram
haust eftir haust nema hafa sannfærst
um að þar má sækja í sterka stofna.
Um það er tæplega ástæða til að efast
fyrir þá sem sáu glæsigripina á sýn-
ingunni 2016.
/Jón Viðar Jónmundsson
Héraðssýningin á Snæfellsnesi haustið 2016:
Snæfellskri sauðfjárrækt til mikils sóma
Úr Staðarsveit á Snæfellsnesi. Vinstra megin er Lýsuskarð síðan Lýsuhyrna, Þorgeirsfell og Þorgeirshyrna fjær. Mynd / HKr.