Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 41

Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016 Borgartúni 7c, 105 Reykjavík Sími 530 1400 www.rikiskaup.is Tilboð óskast í ríkisjörðina Höskuldsstaði í Þingeyjarsveit 20435 – Höskuldsstaðir í Þingeyjarsveit Um er að ræða ríkisjörðina Höskuldsstaði í Reykjadal í Þingeyjarsveit, landnr. 153770. Jörðin er talin vera allt að 274 ha en landamerkjum hefur ekki verið þinglýst. Jörðin er á landbúnaðarsvæði samkvæmt að- alskipulagi. Jörðin er vel staðsett og bærinn stendur á fallegum stað við rætur Fljótsheiðar. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands – fasteignaskrá er um að ræða íbúðarhús, 138,2 m², byggt 1945, fjárhús, 154,2 m², byggt 1954 og skúr, 12,3 m² byggður 1990. Öll húsin þarfnast töluverðra endurbóta og m.a. hefur þak fallið á útihúsum. Jörðin á veiðirétt í Reykjadalsá og Vestmannavatni. Vestmannsvatn var friðlýst árið 1977 og er hluti jarðarinnar innan friðlands, uþb. 81 ha. Ágreiningur er um landamarki meðfram suðurhluta jarðar- innar sem nær yfir 27 ha. landsvæði. Ekki hefur verið búið á jörðinni um nokkurra ára skeið en þau tún sem nytjuð hafa verið eru á því landsvæði sem ágreiningur stendur um. Sú kvöð fylgir jörðinni að óheimilt er að hefta för gangandi fólks um þinglýst friðlandið vegna gönguferða eða berjatínslu. Þar sem hluti jarðarinnar er friðlýstur er farið fram á að með kaupt- ilboði fylgi á sérblaði stutt en greinargóð lýsing um fyrirhuguð not tilboðsgjafa á jörðinni. Jörðin selst í því ástandi sem hún er í og eru áhugasamir tilboðsgjafar hvattir til að kynna sér mjög vel ástand húsa og umhverfis þar sem ekki hefur verið búið á jörðinni í nokkur ár. Jörðin er ekki langt frá Akureyri og með tilkomu Vaðlaheiðargangnanna styttist sú vegalengd enn frekar. Öll vegsvæði á vegum Vegagerðarinnar sem liggja yfir land jarðar þessarar eru undanskilin við sölu þessa og er eignarhald þessara vegsvæða í eigu Ríkissjóðs Íslands. Í samræmi við 40. gr. jarðalaga nr. 81/2004 eru undanskilin í sölu þessari námuréttur og réttur til efnistöku, þ.m.t. sand- og malarnám, og vatns- og jarðhitaréttindi umfram heimilis- og búsþarfir. Nauðsynleg aðstaða til að hagnýta framangreind réttindi eru einnig undanskilin í sölu þessari. Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík í síma 530 1400. Tilboðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði. Sjá einnig nánari upplýsingar á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík fyrir kl. 10.00 þann 2. nóvember 2016 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þess óska. TIL SÖLU Lesendabás Draumalambið Það vantaði ekki fjaðrafokið við löggildingu búvörusamninga nýverið og ljóst að landsmenn eru ekki algerlega einhuga þegar kemur að stuðningi við landbún- að. Sjálfur er ég aðdáandi íslensku sauðkindarinnar en hana tel ég ekki bara vera afbragðs matvöru heldur stóran hluta af menningu og sögu þjóðarinnar. Sumir setja fram hrokafullar tillögur um að leggja algerlega af stuðning við sauðfjárrækt og flytja frekar inn ódýrara kjöt, en ég tilheyri ekki þeim hópi. Ég hef samt sem áður ýmsar hugmyndir og skoðanir á sauðfjárrækt og hef fullan rétt á því þó að ég sé fæddur og uppalinn í Breiðholtinu. Við neytendur erum nefnilega að borga milljarða í styrki til sauð- fjárræktar árlega og erum því í raun meðeigendur að búfjárstofni bænda. Bændur geta þess vegna ekki heldur leyft sér að vera með einhvern hroka gagnvart skoðunum neytenda. Sem meðeigandi geri ég því eftirfarandi framtíðarkröfur til sauðfjárræktar og kjötvinnslu. Draumalambinu mínu má ekki vera beitt á land sem þolir illa beit. Það er nóg til af afrétti sem þolir beit og því óþarfi að ganga nærri landi sem þolir það illa. Sauðfjárbeit sem veldur gróðureyðingu er ósjálf- bær og óásættanleg. Ég skil ekki af hverju sauðfjárbændur vilja grafa undan sjálfum sér með því að leyfa örfáum aðilum að beita viðkvæm svæði. Hættum þessu strax. Ég vil að styrkir skattgreiðenda fari í að styrkja bændur til að sporna við gróðureyðingu frekar en að stuðla að henni með beingreiðslum í skrokka á röngum stöðum. Draumalambið mitt hefur líka lítið sem ekkert kolefnisspor frá vöggu til grafar. Ég vil lítinn sem engan tilbúinn áburð í sauðfjárrækt af þeirri einföldu ástæðu að hann er innfluttur og framleiðsla hans krefst venjulega mikils jarðefnaeldsneyt- is með tilheyrandi útblæstri. Þegar draumalambið er komið af fjalli hefst svo kjötvinnslan. Sem betur fer er kjötvinnsla hér á landi keyrð á umhverfisvænni orku en það sem ekki endar á borði okkar sem dýrindis máltíð má alls ekki fara í urðun. Urðun á lífrænu efni er tímaskekkja og metnaðar- leysi. Lífrænt efni sem fer í urðun gefur af sér gríðarlegt magn gróð- urhúsaloftegunda. Þetta vandamál er löngu búið að leysa t.d. með jarðgerð líkt og á sér stað í Moltu í Eyjafirði. Sem dæmi þá tekur Molta við um 2000 tonnum af sláturúrgangi og breytir honum í verðmætan áburð. Ef þetta magn færi í urðun, eins og allt of mikið af sláturúrgangi gerir, þá hefði útblásturinn orðið 2500 tonnum meiri en ella. Moltugerðin skilar því meiri loftslagsávinningi en þúsund rafbílar. Ef kjötvinnslur vilja spara örfáar kr. á kg og urða sláturúrgang frekar en að senda í jarðgerð þá eru menn á rangri braut og alls ekki í takt við neytendur. Ég fullyrði að flestir neyt- endur myndu glaðir borga 10 krón- um meira fyrir skrokkinn vitandi að með því fengist langtum minna kolefnisspor. Þetta er heldur ekki allt, því nú eru Vistorka á Akureyri og Lífdísill ehf. að vinna að verkefnum þar sem allri fitu úr kjötvinnslu verður breytt í dýrmætan og umhverfisvænan líf- dísil sem sýnir að það eru enn meiri verðmæti fólgin í því að urða ekki. Olíunotkun sem enn er til staðar í greininni, t.d. í dráttarvélum bænda og vegna afurðaflutninga, eiga bænd- ur svo að kolefnisjafna með skóg- rækt, landgræðslu og endurheimt votlendis. Það er varla til sá sauð- fjárbóndi sem ekki getur ræktað tré, grætt upp land eða fyllt í skurði. Ég tel að það sé allra hagur að uppfylla þessi skilyrði enda verður afurðin þar með einstakari og umhverfisvænni í samanburði við innflutt kjöt. Slík staða gæti bæði hækkað afurðaverð og gert stuðning í formi beingreiðslna og tolla eðlilegri. Draumalambið mitt, sem ég hef þegar greitt fyrir að hluta, hvort sem ég borða það eða ekki, á því í fyrsta lagi að sækja sólarorku í gegnum fjallagrös á landi sem þolir beit. Síðan á það ekki bara að gefa af sér hágæða matvæli, heldur á það líka að enda sem lífeldsneyti og áburður. Að lokum vil ég fá uppruna- merkingar og staðfestingu á kolefn- ishlutleysi með mótvægisaðgerðum bænda. Ég vil styðja við landbúnað og borða lambakjöt sem kitlar bragð- laukana með góðri umhverfissam- visku. Áfram íslenskur landbúnaður! Sigurður Ingi Friðleifsson framkvæmdastjóri Orkuseturs Sigurður Ingi Friðleifsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.