Bændablaðið - 20.10.2016, Qupperneq 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Landbúnaðarháskóli Íslands
Háskóli lífs og lands
Röng vinnubrögð valda 50% meiri eyðslu
Nemendur á öðru ári í búfræði við
Landbúnaðarháskóla Íslands hafa
nú í haust stundað nám í áfangan-
um Vélar og tæki III. Þar gerðu
þau athugun á eyðslu dráttarvéla
við pinnatætingu í mismunandi
vinnsludýpt og við mismunandi
snúningshraða mótors.
Tilgangur athugunarinnar var að
meta hversu miklu máli skiptir að
vanda stillingar á tækjum við jarð-
vinnslu og einnig hversu mikil áhrif
snúningshraði mótors hefur á eyðslu.
Aðferðarfræði
Við mælingarnar voru notaðar þrjár
misstórar dráttarvélar, John Deere
5820 árg. 2003 sem er 88 hestöfl,
Massey Ferguson 5610 árg. 2014
sem er 105 hestöfl og Massey
Ferguson 6470 árg. 2006 sem er
125 hestöfl. Pinnatætarinn var að
gerðinni Pöttinger Lion 3001 með
þriggja metra vinnslubreidd.
Við athuganirnar var aflúrtak
vélar látið snúast á 540 snúningum
annars vegar í 540 snúninga stillingu
vinnudrifs og hins vegar 540E still-
ingu á vinnudrifi vélar. Hvor stilling
fyrir sig var svo prófuð bæði í 5 og
10 cm vinnsludýpt tætarans.
Vélarnar voru allar útbúnar með
auka eldsneytistank sem staðsettur
var beint fyrir ofan aðal elds-
neytistankinn. Áður en hver próf-
unarferð átti sér stað var fyllt að fyr-
irfram ákveðnu merki á auka tank-
inum. Þegar prófunarferð var lokið
var aftur fyllt upp að sama merki og
þá mælt með mæliglasi hversu mikil
hráolía fór í ferðina. Með þessari
aðferð fæst mjög nákvæm mæling
þótt mælingartíminn sé ekki langur.
Allar mælingar voru gerðar á
nákvæmlega sama máta. Vélinni var
startað, látin ganga í 30 sekúndur
áður en farið var af stað. Á þeim
tíma var vélin keyrð upp á réttan
snúningshraða og pinnatætari settur
í rétta vinnsludýpt. Í lok hverrar
mælingar voru einnig látnar líða 30
sek. áður en drepið var á vélinni. Á
þeim tíma var tætarinn hífður upp,
drepið á aflúttaki og mótorsnúningur
færður niður í hægagang. Start og
stopptíminn var mældur sérstaklega
og dreginn frá til að skekkja ekki
niðurstöðurnar. Sami ökumaður ók
allar ferðir á sama hraða eða eins
nálægt því og það var hægt út frá
gírhlutföllum vélanna. Reynt var
eftir fremsta megni að eyða út
öllum hugsanlegum skekkjuvöld-
um við mælingarnar. Vegalengd,
ökuhraði og tími voru mæld með
GPS-staðsetningartæki í stað hraða-
mæla og eyðslumæla dráttarvélanna.
Á þann hátt var hægt að leiðrétta
eyðslu fyrir mismunandi vegalengd
og hraða. Allar mælingar með hverri
dráttarvél voru framkvæmdar á sama
stykki eða 3 stykkjum í heildina. Þar
sem engin vél var prófuð á sama
stykkinu voru umhverfisaðstæður
mismunandi og því ekki hægt að
bera þær saman.
Niðurstöður mælinganna voru
svo settar inn í Excel-skjal þar sem
reiknað var út frá eyðslu, vegalengd
og tíma eyðslu á hvern hektara. Rétt
er að taka það fram að þessar eyðslu-
tölur eru reiknaðar út frá því að nýta
vinnslubreidd tætarans 100%. Ljóst
er að við venjulegar aðstæður verður
skörun milli ferða nokkur og lík-
lega einhverjir aukasnúningar væru
teknir við jaðra og enda. Því væri
eðlilegt að gera ráð fyrir 15–20%
meiri eyðslu á ha.
Niðurstöður
Ýmislegt fróðlegt kom í ljós við
þessar mælingar. Þær sýndu til að
mynda að ökulag og stilling tækj-
anna hefur mikið að segja varðandi
eyðslu vélarinnar. Mælingarnar
sýndu u.þ.b. 50% meiri eyðslu frá
því að stilla aflúttakið á 540E og 5cm
vinnsludýpt yfir í mestu eyðsluna í
540 stillingunni í 10 cm vinnsludýpt.
Niðurstöður mælinganna sýndi að
meðaltali 16% meiri eyðslu í 540
stillingunni miðað við 540E still-
inguna óháð vinnsludýpt og 28%
meiri eyðslu í 10cm vinnsludýpt
miðað við 5 cm vinnsludýpt óháð
aflúrtaksstillingu.
Einnig kom í ljós að dráttar-
vélarnar sýndu allar sömu hegðun
í eyðslu. Þær eyddu allar minnst,
næstminnst, næstmest og mest við
sama álag í samræmi við það sem
sést á súluritinu. Minnsta dráttarvélin
jók eyðsluna hlutfallslega meira en
sú stærsta með auknu álagi en eyddi
hins vegar mun minna við minnsta
álagið.
Ályktanir
Þessa mælingar sýna að góð
vinnubrögð skipta miklu máli.
Nauðsynlegt er að huga að vinnslu-
dýpt eftir aðstæðum og vinna ekki
dýpra en þarf. Oft er miðað við 3–4
cm fyrir grasfræ ef plæging hefur
heppnast vel og því engin ástæða
til þess að fara dýpra, enda erum
við aðallega að búa til sáðbeð með
pinnatætingu. Of mikil vinnsludýpt
eykur líka hættuna á því að grasrótin
sem verið var að plægja niður komi
á yfirborðið aftur. Fyrir hvern auka
cm í vinnsludýpt erum við að færa
til 150 tonn á hektara af jarðvegi.
Þannig að ef við erum að tæta á 10
cm vinnsludýpt mv. 5 cm þá er verið
að færa til 750 tonn af auka jarð-
vegi. Miðað við niðurstöður þessarar
rannsóknar eyðir vélin um 0,5 lítr-
um á hektara aukalega fyrir hvern
auka cm í vinnsludýpt, sem minnkar
hagkvæmnina fyrir bóndann við
jarðvinnslu. Með réttum stillingum
minnkum við einnig mengun við
jarðvinnslu ásamt því að fara betur
með tækin vegna minna slits sem
skilar sér í lægri rekstrarkostnaði til
lengri tíma litið.
Að stilla á 540E og lækka þannig
snúningshraða mótors skilar líka
umtalsverðu, sérstaklega ef álagið
er ekki mjög mikið. Lykilatriði er að
velja saman dráttarvél og tætara. Að
vera ekki með stærri dráttarvél en við
þurfum því það skilar sér aðeins í
meiri eyðslu og meiri jarðvegsþjöpp-
un. Óháð því hversu eyðslugrannir
mótorar eru í dráttarvélum þá þarf
ákveðið mikla orku í að koma sjálfri
dráttarvélinni áfram. Því þyngri sem
vélarnar eru því orkufrekari verður
sá liður. Dráttarvélin skal vera eins
létt og kostur er, en eins þung og
þarf. Sem dæmi er talað um að afl-
þörf pinnatætara sé 20–25 hestöfl
á hvern breiddarmetra. Þá er bara
verið að tala um aflþörf tækisins en
þá er eftir að taka tillit til orkuþarfar
vélarinnar við að koma sér áfram.
Þó þarf að hafa í huga að jarðvegur
getur verið misþungur í vinnslu og
umhverfisaðstæður eins og brekkur
og léleg plæging getur aukið aflþörf-
ina verulega.
Nemendur og kennarar
í Vélar og tæki III
Verðandi búfræðingur mælir hversu mikil olía fór í ferðinni.
Massey Ferguson 6470 við mælingu. Mynd / Gunnar Þór Kristinsson
John Deere 5820 í mælingu.
Mynd / Gunnar Þór Kristinsson
SKJÓL FYRIR VETURINN - ÞAÐ ER ENN TÍMI TIL STEFNU
HAFÐU SAMBAND OG VIÐ FINNUM LAUSNINA SAMAN