Bændablaðið - 20.10.2016, Side 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 20. október 2016
Kjósum
íslenskan
landbúnað!
Íslenskir bændur framleiða fjölbreyttar búvörur sem eru
þekktar fyrir gæði og ferskleika. Metnaður bænda stendur
til þess að sjá þjóðinni fyrir sem mestu af þeim matvælum
sem hún þarfnast og hægt er að framleiða innanlands.
Landbúnaðurinn er hornsteinn byggðanna og hefur víðtæk
margfeldisáhrif í atvinnusköpun
Á næstu árum er mikilvægt að b
í haginn að íslenskur landbúnað
vaxi og dafni.
Mál sem brenna á bændum
Fylgstu með bændum á Facebook, á bondi.is og bbl.is
Bætum kjörin
Kjör bænda eru þeirra stærsta
hagsmunamál. Að fá sanngjarnt
endurgjald fyrir sínar vörur er
lífsspursmál fyrir alla sem koma
að matvælaframleiðslu. Íslenskir
bændur keppa ekki við þjóðir þar
sem áherslan er lögð á
stórrekstur í landbúnaði. Okkar
styrkleikar felast í gæðunum og
því að geta framleitt búvörur við
góð skilyrði.
Nýir búvörusamningar
Markmið nýrra búvörusamninga
eru að auka verðmætasköpun,
treysta byggð og nýta sem best
tækifærin sem felast í sveitum
landsins í þágu bænda, neytenda
og samfélagsins alls. Í
samningunum er kveðið á um
stuðning við búvöruframleiðslu
sem ætlaður er til að lækka
vöruverð til neytenda og gera
bændum kleift að framleiða
úrvalsvörur.
Hvað þarf að metta
marga munna?
Grunnspá Hagstofu Íslands gerir
ráð fyrir nærri 440 þúsund íbúum
á Íslandi árið 2065. Því er spáð að
árið 2065 komi um 5 milljónir
ferðamanna til landsins. Þessar
tölur sýna svart á hvítu að hér
þarf að framleiða eða flytja inn
meiri mat. Sterkur innlendur
landbúnaður gegnir lykilhlutverki
við að mæta aukinni þörf fyrir
matvæli.
Fjárfestingar í
landbúnaði
Bætt aðgengi að lánsfjármagni á
hagstæðum kjörum er eitt
mikilvægasta atriðið við nýliðun
og uppbyggingu í landbúnaði.
Framundan er veruleg
endurnýjunarþörf á
framleiðsluaðstöðu margra búa,
samhliða aukinni eftirspurn eftir
ýmsum framleiðsluvörum
landbúnaðarins.
Nýsköpun og þróun
Þekking, reynsla, sérhæfing og
fagmennska er lykillinn að
blómlegum landbúnaði.
Uppbygging landbúnaðar-
háskóla er bændum mikilvæg
og grunnur að því að byggja
atvinnugreinina upp til
framtíðar. Nýjar búgreinar og
fjölbreyttar áskoranir krefjast
aukinnar þekkingar, rannsókna
og þróunar. Góðar samgöngur,
fjarskipti og raforka gegna
mikilvægu hlutverki.
Upprunamerkingar
á matvörum
Íslenskir neytendur eiga kröfu
til þess að vita hvaðan matvörur
koma og hvort þær eru
framleiddar á heilnæman hátt
í sátt við náttúru og samfélag.
Aðgengilegar og réttar
upplýsingar eru samofnir
hagsmunir bænda og neytenda.
Áskoranir í
matvælaframleiðslu
og umhverfismálum
Það er hverri þjóð nauðsyn að
reka öflugan landbúnað. Nýjar
áskoranir blasa við
matvælaframleiðendum um allan
heim sem þurfa að bregðast við
aukinni eftirspurn eftir mat og
breyttum umhverfisþáttum.
Íslenskir bændur vilja nýta
auðlindir landsins með sjálfbærni
að leiðarljósi. Umræðu um
loftslagsmál þarf að efla á
Íslandi og bregðast við þeim
vandamálum sem steðja hratt að
heimsbyggðinni í kjölfar
hlýnunar jarðar.
Hluti af búvöruframleiðslu
íslenskra bænda er fluttur á
erlenda markaði. Árið 2015 voru
tekjur af útflutningi búvara
57 milljarðar króna.
6,3 milljarðar króna.
Töluverður innflutningur er á
búvörum til Íslands og hann hefur
aukist hratt á síðustu misserum.
Alþjóðlegir samningar kveða á um
ákveðið magn án tolla.
Einn mælikvarði á lífskjör er
hversu hátt hlutfall útgjalda
neytenda af heildarútgjöldum fer
til kaupa á matvælum. Kaup á
matvörum vega um það bil 13,3%
í útgjöldum íslenskra heimila.
Meðaltalið í 28 ESB-löndum er
14%.* Íslendingar verja lægri
hluta útgjalda sinna til matvæla-
kaupa en t.d. Finnar, Svíar og
Frakkar. Útgjöld neytenda til
kaupa á íslenskum búvörum eru
um 5,7% heildarútgjalda. Allt
grænmeti, bæði innflutt og
innlent er 1% af heildarútgjöldum
* Hlutfall af neyslu án húsnæðiskostnaðar.
Heimild: Eurostat, 2016
Heimildir: Hagstofa Íslands
Fjöldi lögbýla og bænda
Verðmæti útfluttra búvara
Verðmæti landbúnaðarframleiðslu
Innflutningur á búvörum
Útgjöld Íslendinga
til matvælakaupa
Hreinar vörur
Keppikefli íslenskra bænda er
að framleiða gæðavörur.
Sýklalyfjanotkun í íslenskum
landbúnaði er sú næstminnsta í
Evrópu. Hér á landi er 30 sinnum
minna magn notað en að
meðaltali í Evrópu og 80 sinnum
minna en á Spáni þar sem
notkunin er mest.
Aðbúnaður og
velferð dýra
Á Íslandi er í gildi mjög
framsækin löggjöf um aðbúnað
og velferð dýra sem í sumum
tilfellum gengur lengra en í
samkeppnislöndunum. Bændur
vilja standa undir því trausti
sem neytendur hafa sýnt þeim
og það þýðir að dýravelferð
verður að vera í fyrsta sæti.
2.800 tonn
af kartöflum
2.550 tonn
af erlendu kjöti
266 tonn
af ostum
55 tonn
af jógúrti
13.000 tonn
af grænmeti
Heildarverðmæti
búvöruframleiðslunnar
árið 2015 var tæpir
Ríkisútgjöld til landbúnaðar
Útgjöld vegna stuðnings við
landbúnað á Íslandi fara
lækkandi. Fyrir 30 árum voru þau
5% af landsframleiðslu en eru
núna 1,1%. Heildarútgjöld hins
opinbera til landbúnaðar voru
16,9 milljarðar króna árið 2015.
Það eru 1,78% af útgjöldum
ríkisins.
6.700 lögbýli eru skráð á Íslandi.
3.150 bú framleiða vörur af ýmsu tagi.
3.900 manns starfa í landbúnaði
eða 2,1% fólks á vinnumarkaði.
10.000 störf tengjast landbúnaði.
um allt land.
úa svo
ur