Bændablaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 1
24. tölublað 2016 ▯ Fimmtudagur 15. desember ▯ Blað nr. 481 ▯ 22. árg. ▯ Upplag 32.000
Um 25 þúsund útikerti framleidd úr endurunnu vaxi hjá PBI á Akureyri:
Íslendingar urða 150 tonn af úrgangsvaxi
árlega sem er nær heila öld að eyðast
Um þessar mundir er kerta-
framleiðsla í hámarki hjá
Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi og
leggjast allir á eitt um að anna eft-
irspurn, en kertin eru landsþekkt
fyrir gæði og langan brennslu-
tíma.
PBI er einn af vinnustöðum
Akureyrarbæjar og þar starfa tæp-
lega 60 manns með skerta starfs-
getu auk leiðbeinenda og starfsfólks.
Jakobína Elva Káradóttir, forstöðu-
kona PBI, segir að markmiðið sé
að veita einstaklingum með skert
starfsþrek atvinnu til lengri eða
skemmri tíma og þjálfa sem flesta til
þátttöku á almennum vinnumarkaði.
„Við leggjum áherslu á góð
vinnubrögð og starfsvenjur,
mætingar, aukið starfsþrek og að
sjálfsögðu má ekki gleyma félags-
legu samskiptunum,“ segir hún.
Um 20 tonn af vaxi í útikertin
Háannatími í kertasölu er að renna
upp og starfsfólk önnum kafið við
framleiðsluna. Jón M. Jónsson
kertagerðarmaður er yfir kerta-
framleiðslunni. Alls eru framleidd
um 25 þúsund útikerti hjá PBI, auk
handdýfðra innikerta, m.a. um 80
þúsund gæða veislukerti að ótöldum
svonefndum kirkjukertum, kertum
sem sérhönnuð eru til notkunar í
kirkjum landsins.
Í útikertin eru notaðir vaxaf-
gangar og kerti sem ekki eru sölu-
hæf, svonefnt úrgangsvax.
„Við notum um 20 tonn af vaxi
í útikertin á hverju ári og í veislu-
og hátíðarkerti fara um 10 tonn,“
segir hann. Hann segist sáttur við
magnið, en fyrirtækið hafi getu til
að framleiða meira, fengi það meira
úrgangsvax.
Afleit staða í þessum málaflokki
Landsmenn eru ekki ýkja duglegir
að skila inn kertaafgöngum, slíkt
er þó í boði víða, m.a. á öllum
grenndarstöðvum á Akureyri, hjá
Endurvinnslunni við Furuvelli og að
Réttarhvammi. Jón segir að einungis
um það bil 6,5 til 7 tonnum sé skilað
inn á hverju ári, sem er afskaplega
lítið magn miðað við það sem fer til
urðunar. Akureyringar og nærsveita-
menn skila árlega um það bil 1,8
tonnum, en um 4 tonn af afgangs-
vaxi kemur af höfuðborgarsvæðinu,
þar sem þessi úrgangur er þó ekki
flokkaður sérstaklega líkt og norðan
heiða.
„Því miður er staðan í þessum
málaflokki afleit, við urðum allt of
mikið, eða um 150 tonn á ári, þetta
er unnin hörð olía sem er mjög lengi
að eyðast í náttúrunni, eða um það
bil 80 ár,“ segir Jón og vill fyrir alla
muni að landsmenn taki sig saman í
andlitinu og geri verulega bragarbót
á. – Sjá nánar bls. 7 /MÞÞ
30 48
Öll kerti sem framleidd eru hjá PBI eru handdýfð og endast lengur en mörg önnur. Þorsteinn Magnússon sér um
það verk. Mynd / MÞÞ
Teikning / Þorsteinn Davíðsson
24
Með 300 fjár á fóðrum, stunda
fiskirækt og loftþurrka kjöt
Spunnið
í öllum
regnbogans
litum
Í skjóli trjánna
undir vindbörðu
fjalli Ingólfs