Bændablaðið - 15.12.2016, Page 51
51Bændablaðið | Fimmtudagur 15. desember 2016
Fimmta bindið af Skagfirskum
skemmtisögum er komið út hjá
Bókaútgáfunni Hólum. Sem fyrr
er það Skagfirðingurinn og blaða-
maðurinn Björn Jóhann Björnsson
sem tekur sögurnar saman. Þær
eru orðnar vel á annað þúsund
í bindunum fimm og hafa að
geyma óborganlegar sögur af
Skagfirðingum til sjós og lands, allt
frá ofanverðum miðöldum til dags-
ins í dag. Hafa bækurnar hlotið
fádæma viðtökur um allt land, ekki
bara í Skagafirði, og verið ofarlega
á metsölulistum bókaverslana.
Að þessu sinni eru um 200 sögur
héðan og þaðan úr Skagafirði, allt
frá Fljótum í norðri til Akrahrepps
í suðri. Króksarar fyrr og nú koma
mikið við sögu, sem og Hofsósingar
og nærsveitamenn. Sagt er frá ævin-
týralegum hestaviðskiptum við
Stebba á Keldulandi og birt smásagan
Raunir á Reyðarskeri.
Í Skagfirskum skemmtisögum 5
eru einnig sögur af því þegar:
• Séra Þórir Stephensen var kall-
aður til skítverka hjá Jóni í Ketu
• Stína Sölva hélt þingmenn
Sjálfstæðisflokksins vera
Álftagerðisbræður
• Guðjón í bakaríinu rak sig upp
undir
• Ása Öfjörð kláraði messuvínið
í Barðskirkju
• Óskar Pétursson frá Álftagerði
kannaði lagerstöðuna á elliheim-
ilinu
• Óskar Þorleifs meig á milli
brjóstanna á hafmeyju
• Sæmundur Hermanns sagði
veggina hafa eyru
• Séra Guðbjörg vígði kaffistofuna
á vélaverkstæðinu
• Ingvi Hrafn hljóp skælandi heim
í Stóru-Gröf
• Séra Gunnar í Glaumbæ gat
haldið áfram að drekka
• Siggi í Salnum sagðist ekki ætla
að skjóta Munda í Tungu
• Hilmir Jó hundskammaði Steina
Birgis
• Steingrímur á Silfrastöðum sagði
kirkjuna sína rúma heilt helvíti
• Pétur á Hjaltastöðum tapaði
gómnum
• Andrés Valberg seldi sömu haus-
kúpuna tvisvar eina fagra nótt í
Reykjavík
• Binni Júlla plataði Kára Steins
• Jón Ósmann gleymdi Sigga í
handarkrikanum
• Seðlabankamenn hringdu í Hörð
á Hofi
Skagfirskar skemmtisögur koma
öllum í gott skap! Bókin fæst í öllum
helstu bókaverslunum landsins.
Finnbogi Magnússon
finnbogi@jotunn.is
Sími 480 0410
Helgi J. Jóhannsson
helgi@jotunn.is
Sími 480 0406
Ingvi Þór Bessason
ingvi@jotunn.is
Sími 480 0454
Hrafn Hrafnsson
hrafn@jotunn.is
Sími 480 0408
Einar Örn Sigurjónsson
einar@jotunn.is
Sími 480 0427
onÖssur Björnss
.isossur@jotunn
7Sími 480 040
Örn Bragi Tryggvason
orn@jotunn.is
Sími 480 0421
Grétar Hrafn Harðarson
gretar@jotunn.is
Sími 480 0433
VÉLAR OG TÆKI
SÖLUMENN JÖTUNS GEFA ÞÉR GOT T T ILBOÐ Í RÉ T TU VÉL INA
FJÓS OG FÓÐRUN
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
MENNING&LISTIR
Skagfirskar skemmtisögur í
fimmta sinn – Endalaust fjör!
Bændablaðið
Kemur næst út
12.
janúar 2017