Bændablaðið - 25.01.2018, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. janúar 2018
Á bænum Sandhóli í Meðallandi
í Skaftárhreppi er stunduð
umfangsmikil jarðrækt samhliða
kúabúskap. Um nokkurra ára
skeið hafa bændurnir þar, í
samstarfi við nágranna sína, verið
að prófa sig áfram með ræktun
á nokkrum ræktunartegundum
sem ætlaðar eru til manneldis;
meðal annars repju og höfrum.
Íslenskir hafrar frá Sandhóli eru
einmitt á leið í Bónusverslanir á
næstu vikum.
Fyrir skemmstu var sagt frá því
í fjölmiðlum að heimaframleidd
repjuolía frá Sandhóli væri á leið í
Bónus og mun hún vera væntanleg í
fleiri verslanir innan skamms.
Meðallandið hentar vel til
ræktunar.
„Við höfum almennt áhuga
á aukinni ræktun og hjá okkur í
Meðallandinu henta aðstæður vel
til ræktunar,“ segir Örn Karlsson,
bóndi á Sandhóli. „Við erum töluvert
sunnar en Reykjavík á landakortinu
og allt land er slétt og laust við grjót.
Hér er hægt að gera stóra slétta akra
sem henta vel fyrir nútímatæki.
Samhliða ræktun erum við að
byggja upp nokkuð stórt kúabú á
íslenskan mælikvarða, þar sem
eingöngu eru ræktaðir nautgripir
með kjötframleiðslu í huga. Þetta
tvennt fer vel saman því túnrækt er
nauðsynleg í skiptirækt hjá okkur og
afurðir sem falla til við úrvinnslu á
vörum úr ræktuninni, nýtist í fóður
og undirburð.“
Samvinna bænda
Ábúendur á Efri-Ey 1 og Grund eru
í samstarfi við Sandhólsbændur og
segir Örn að allar jarðirnar séu nýttar
við ræktun og beit, þótt byggingar og
vinnslan séu á Sandhóli.
„Við höfum líka ræktað bygg og
vetrarrúg sem fer í bruggverksmiðju.
Við þurrkum, hreinsum og
stærðarflokkum byggið og rúginn,
látum það stærsta frá okkur en nýtum
annað til fóðrunar á nautgripum.
Hálmurinn er að mestu nýttur undir
nautgripina okkar, en nágrannar
okkar kaupa einnig af okkur hálm,“
segir Örn.
Hratið nýtist sem próteingjafi í
nautaeldinu
Örn segir að „repjuolían“ þeirra
sé í raun olía úr nepju – sem er
káltegund náskyld repjunni, en
enginn útlitsmunur er á þeim. Olía
úr þessum jurtum sé jafnan seld sem
repjuolía. „Við höfum náð góðum
tökum á þessari ræktun eftir að
við fórum að notast eingöngu við
vornepju,“ segir Örn, en henni er
sáð að vori og hún svo skorin upp
um haustið. „Öll yrki af vornepju
sem við höfum komist í hafa hentað
okkur þótt nú um stundir sé erfitt að
fá nokkuð annað en Cordelia-yrkið.
Vetrarafbrigðin henta ekki vel í
okkar sveit enda geta veturnir verið
ansi umhleypingasamir. Haustveður
hafa lítil áhrif á þessar jurtir, utan
þess að við lentum einu sinni í tjóni
út af hagli sem buldi á okkur einn
haustdag – áður en búið var að
koma öllu í hús. Fræið af nepjunni
er kaldpressað og við náum um 35
prósent af þyngd fræsins í formi
olíu; þannig að þegar við pressum
eitt tonn af fræi fást 350 kíló af olíu.
Afgangurinn er repjuhrat sem við
nýtum sem próteingjafa í nautaeldinu
og losnum þannig við að kaupa
fiskimjöl. Hálminn nýtum við einnig
undir nautgripi. Olían sem kemur úr
pressunni er síuð og þá er hún tilbúin
til neyslu,“ segir Örn.
Kaldpressuð olían er með
hnetukeim og hollum fitusýrum
En þegar þú ert kominn með
nýja vöru í hendurnar tekur
markaðssetningin við og það getur
verið vandkvæðum bundið, að sögn
Arnar, að fá neytendur til að breyta
út af vananum. „Það hefur tekið á að
koma repjuolíunni í sölu. Kaldpressuð
repjuolía er allt önnur vara en sú
innflutta unna repjuolía sem hingað
til hefur fengist á Íslandi. Kaldpressuð
olía er hnausþykk, með áberandi
hnetukeim og stútfull af Omega-3
fitusýrum – sem þykja það hollasta
í dag. Til að byrja með fengum við
dreifingaraðila til að hjálpa okkur
við að koma olíunni í verslanir og á
veitingastaði. Það gekk mjög hægt og
var því samstarfi eiginlega sjálfhætt
því hvorugur aðili var að hafa mikið
upp úr þessu. Eftir að við fórum að
djöflast í þessu sjálf hefur áhugi aukist
og nú fæst kaldpressuð repjuolía frá
Sandhóli í fjölmörgum verslunum.
Við höfum líka verið að selja olíu
til sápugerðar og í að útbúa smyrsl.
Meira að segja línusjómenn eru farnir
að sækjast eftir olíunni. Þeir geta ekki
notað jarðefnaolíur til að smyrja línur
sínar og króka. Þá hafa hrossabú verið
að nota olíuna fyrir hestana sína til að
fá gljáa á feldinn. Sala á svona vöru er
endalaust verkefni. Við höfum áhuga
á að fá túrista til að kaupa vöruna og
svo er veitingageirinn eftir.“
Hafrar að vissu leyti auðveldari í
ræktun en byggið
„Við höfum náð að rækta hafra til
fulls þroska í mörg ár og notum yrkið
Cilla. Þótt vaxtartími hafra sé lengri
en á byggi þá hefur veður minni
áhrif. Eins og kornbændur vita þá
geta djúpar haustlægðir skemmt bygg
mikið, en þær hafa lítil áhrif á hafra.
Við erum mjög ánægð með að rækta
bæði hafra og bygg. Byggið
er tilbúið á undan og síðan
taka hafrarnir við. Þegar korn
er unnið til manneldis þarf
að þurrka það allt. Þurrkun
er mikill flöskuháls, alla
vega hjá okkur. Við notum
súgþurrkun til að halda
korninu köldu á meðan
þurrkarinn er að klára
sinn skammt.
Ef það byrjar
að hitna í korni,
er það slegið af til
manneldis. Í fyrra
prófuðum við að
dreifa höfrum
til manneldis;
bæði haframjöli
og tröllahöfrum.
Viðtökurnar voru
þannig að við
ákváðum að gefa
í og eigum nú
hafra til að dreifa
í verslanir. Það
er verið að hanna
umbúðir núna og
styttist í að fyrsta
sending komi í
Bónus,“ segir Örn.
Bragðmeiri
hægvaxta hafrar
Matís var fengið
til að efnagreina
ha f rana ú r
M e ð a l l a n d i n u
og mælast þeir
mjög svipaðir og
danskir hafrar.
„Útiræktað korn
og grænmeti vex
hægt í svölu íslensku
sumri. Það gerir það að verkum
að afurðirnar verða bragðmeiri
en þær snöggsprottnu. Að maður
tali nú ekki um að hér erum við
ekki að úða eitri á akrana okkar til
að verjast skordýrum.
Við höfum einnig verið að fikta
við ræktun á ýmsum tegundum
með misjöfnum árangri og
höfum mikinn áhuga á að
rækta kúmen, en gengið
illa að fá gott fræ. Við
prófuðum finnst yrki
sem spíraði ekki hjá
okkur, en eigum nokkur
yrki af sænsku fræi
sem við erum að prófa.
Svo fór vösk sveit út í
Viðey síðastliðið haust
og tíndi fræ. Verður
prófað að rækta það í
sumar á tveimur stöðum,
hér á Sandhóli og í
Bjálmholti,“ segir Örn.
Hálmfjós í byggingu
Á Sandhóli er sem fyrr
segir fjós í byggingu;
300 gripa fjós sem verður
notað undir eldisgripi.
Örn segir að fjóstegundin
hafi verið ákveðin að
vel yfirlögðu ráði. „Við
ferðuðumst víða til að
skoða fjós, innanlands og
erlendis, og ákváðum loks
að byggja fjós þar sem
gripirnir liggja á hálmi.
Við sáum að þannig líður
skepnunum langbest.
Þeir liggja stundum á
allri hliðinni með allar
lappir út eins og maður sér
hesta gera. Það er ekki algengt
að reisa hálmhús á Íslandi, enda vantar
flesta hálm. Við sjáum fyrir okkur
mikla byltingu í nautakjötsframleiðslu
þegar við getum farið að rækta úr
Aberdeen Angus-gripunum sem
verða ræktaðir á einangrunarbúinu
á Stóru Ármótum. Því miður tekur
ræktunarstarf bara svo langan tíma.“
Bændur færast nær neytendum
Örn telur framtíð landbúnaðar á
Íslandi bjarta. „Það eiga sér stað
ákveðnar breytingar sem ekki allir
taka eftir. Margir bændur eru að
koma sér nær neytandanum. Meira
verður gert í því að tengja býlin við
afurðirnar. Verslanir og veitingastaðir
verða með upprunamerktar vörur,
jafnvel undir vörumerkjum. Svo
þarf kjötflokkunin að skila sér til
neytandans.
Eitt er það þó við aðstæður
landbúnaðarins sem þarf að stórbæta
en það eru rannsóknir á háskólastigi.
Það voru ákveðin vonbrigði að
Landbúnaðarháskóli Íslands tengdist
ekki Háskóla Íslands betur eins og
til stóð með stórauknu framlagi til
rannsókna. Við getum nefnilega ekki
tekið erlendar rannsóknarniðurstöður
og heimfært beint upp á Ísland.
Við vitum það að tegundir og yrki
henta misvel til stranda og sveita,
norðan og sunnan. Hægt er að nefna
ýmis dæmi um þetta. Til að gera
nautakjötsframleiðslu arðbærari
þarf að auka vor og haustbeit. Hvaða
gras- og káltegundir henta í það?
Það væri æskilegt að geta fundið
tegundir sem eru orðnar grænar í
mars-apríl og svo aðrar sem standa
til jóla. Þetta er hægt en það þarf
mikla tilraunastarfsemi til að það
takist.“ /smh
Umfangsmikil jarðrækt er á Sandhóli í Meðallandi:
Íslenskir hafrar á leið í verslanir
– og kemur í kjölfar heimaframleiddu, kaldpressuðu og hnausþykku repjuolíunnar
Repjuakur á Sandhóli í blóma. Mynd / Sandhóll
Örn Karlsson í repjuolíuvinnslunni. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson Hafrarnir frá Sandhóli eru á leið í verslanir á næstu vikum.
Kaldpressuð repjuolía
frá Sandhóli.