Bændablaðið - 25.01.2018, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. janúar 2018
Árin 1994–1995 var gert átak í
því að skrá niður fjósgerðir hér
á landi og úr varð töluvert stórt
gagnasafn sem var gert upp
árið 1998. Eftir það varð hlé
á samantekt um fjósgerðir en
árið 2003 lagðist Landssamband
kúabænda í þá vinnu að endurgera
gagnagrunninn og var hann
víkkaður út og náði einnig yfir
mjaltatækni fjósanna.
Frá þeim tíma hefur LK staðið
fyrir útgáfu, annað hvert ár, á
skýrslu sem byggir á uppgjöri
úr þessum gagnagrunni og nú er
komin út áttunda skýrsla þessa efnis.
Líkt og fyrri skýrslur þá byggir
úrvinnsla skýrslunnar á gögnum úr
framangreindum gagnagrunni ásamt
skýrsluhaldsupplýsingum auk þess
sem upplýsingar um fjósgerðir og
mjaltatækni byggja á persónulegri
þekkingu ótal margra sem leitað
var til.
573 fjós í framleiðslu
Í skýrslunni kemur fram að
í árslok 2017 voru 573 fjós í
mjólkurframleiðslu á Íslandi en
haustið 2007 voru þau 720 og
hefur fjósum því fækkað um 147
á síðasta áratug eða um 20,4%. Ef
litið er til þróunarinnar síðustu tvö ár
þá hefur fjósum hér á landi fækkað
um 45 eða 7,3%. Þessi þróun hér
á landi er afar áþekk þeirri þróun
sem á sér stað um alla Evrópu þar
sem fjósum hefur verið að fækka um
4-8% á ári en þrátt fyrir það hefur
mjólkurframleiðslan ekki dregist
saman þar sem þau bú sem eftir
standa bæta við sig í framleiðslu
eða fjölda kúa.
Básafjós ekki lengur ráðandi
Undanfarna áratugi hafa orðið
gríðarlega miklar breytingar í
húsvist íslenskra mjólkurkúa frá
því að flestar kýr hafi verið hýstar
í básafjósum yfir í að vera hýstar
í lausagöngufjósum og hefur
meirihluti kúnna nú í nokkur ár verið
í lausagöngufjósum. Básafjósin
voru þó ráðandi í fjölda, enda oftast
töluvert minni en lausagöngufjósin.
Þeim hefur þó fækkað hratt
undanfarin ár og eru nú 275 talsins
eða 48% af heildarfjölda fjósa á
Íslandi. Er því svo komið nú að þau
eru ekki lengur ráðandi hér á landi
og hafa lausagöngufjósin nú tekið
við sem algengasta fjósgerðin á
Íslandi. Þessi breyting hefur gengið
afar hratt fyrir sig eins og sjá má
á mynd 1 og má nefna sem dæmi
að fyrir áratug var hlutfall þessara
fjósa 70,3% og sé farið rúmlega tvo
áratugi aftur í tímann var hlutfall
þessarar fjósgerðar 96,4% hér á
landi. Básafjós með rörmjaltakerfi
eru þó enn algengasta fjósgerðin eða
220, sé litið undirflokkunar á grunni
mjaltatækni og næst algengasta
gerðin er lausagöngufjós með
mjaltaþjóni eða 180 talsins. Líklegt
má telja að við gerð næstu skýrslu,
verði hún gerð eftir tvö ár líkt og
verið hefur, þá muni síðar fjósgerðin
hafa náð yfirhöndinni.
Enn vélfötukerfi í notkun
Í skýrslunni er fjósgerðum skipt upp
í tvo yfirflokka og samtals fimm
undirflokka þar sem yfirflokkarnir
eru annars vegar básafjós og hins
vegar lausagöngufjós. Undirflokkar
þessara tveggja fjósgerða taka svo
mið af þeirri mjaltatækni sem er í
notkun í fjósunum. Niðurstöðurnar
má sjá í töflu 1, en þar kemur fram
að frá árinu 2007 hefur básafjósum
fækkað verulega eða úr 504 í 275
eða um 45%. Á sama tíma tíma hefur
lausagöngufjósum fjölgað úr 214 í
298 sem er rúmlega 39% aukning á
liðnum áratug.
Veigamesta breytingin á
þessum 10 árum er auðvitað mikill
framgangur fjósa með mjaltaþjóna.
Á þeim tíma hefur fjósum á Íslandi
fækkað um tæplega 150 fjós en á
sama tíma hefur mjaltaþjónafjósum
fjölgað um rúmlega 100.
Meðalnyt mjaltaþjónafjósa
langhæst
Þegar skoðað er samhengi afurða,
samkvæmt skýrsluhaldi RML,
og fjósgerða kemur ekki á óvart
að fjós með mjaltaþjónum eru
lang afurðahæst á landinu og er
það í samræmi við fyrri uppgjör
undanfarin ár. Tekið skal fram
að við þessa útreikninga er alltaf
notað uppgjör allra búa í árslok
uppgjörsársins, óháð því hvor
þau hafi skipt um mjaltatækni á
árinu eða ekki. Þá koma sum bú
ekki til uppgjörs vegna vanskila á
Landbúnaðarráðuneyti Banda-
ríkjanna (USDA) telur að nokkur
aukning verði í kjötframleiðslu þar
í landi á árinu 2018, eða á bilinu
1,8 til 2,8%, en mismunandi eftir
greinum. Greinilega er þó búist
við eitthvað aukinni ásetningu í
nautgriparækt og að minna verði
því framleitt af kálfakjöti en á
síðasta ári og að framboð þess
minnki um 3%.
Landbúnaðarráðuneytið gerir
einnig ráð fyrir að eggjaframleiðsla
aukist um 1,8% á árinu, en það er
heldur minni aukning en var á síðasta
ári. Er það rakið til heldur versnandi
afkomu. Þá er líka búist við hægt
vaxandi framleiðslu á kjúklingakjöti
en stöðugri afkomu í greininni.
Útflutningur á nauta- og
kálfakjöti frá Bandaríkjunum á árinu
2016 jókst verulega frá árinu 2015
og einnig á fyrri hluta árs 2017. Er
það vegna aukinnar eftirspurnar og
ekki síður vegna lækkandi kjötverðs
í Bandaríkjunum og lækkandi gengi
dollars.
Að sama skapi dró verulega
úr innflutningi nautakjöts til
Bandaríkjanna. Búist er við að
lokatölur á innflutningi nauta- og
kálfakjöts á árinu 2017 verði ríflega
1,2 milljónir tonna. Þá er búist við
lítils háttar aukningu á innflutningi
nautakjöts á árinu 2018 og að hann
fari í tæplega 1,3 milljónir tonna.
Innflutningur á nautgripum á fæti
er talinn aukast á árinu 2018 að mati
USDA eftir samdrátt á síðasta ári.
Spá USDA fyrir mjólkur-
framleiðsluna er að 2,4% aukning
verði í þeirri grein og að framleidd
verði nær 100 milljónir tonna á árinu
2018.
Varðandi svínaræktina er gert
ráð fyrir að afkastageta sláturhúsa
á kornbelti Bandaríkjanna aukist á
síðari hluta ársins. Búist er við að
kjötframleiðslan í greininni aukist
um 3,3% og fari í 26,9 milljarða
punda, eða í ríflega 12 milljónir
tonna. Aukið kjötframboð hefur
leitt til lækkunar á afurðaverði og
er nú m.a. spáð um 3% lækkun á
galtakjötsverði. Auknu framboði og
lækkandi verði hafa bændur reynt
að mæta með auknum útflutningi.
Þannig jókst útflutningur á svínakjöti
frá Bandaríkjunum um 17% á fyrsta
ársfjórðungi 2017. /HKr.
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Austur vegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Kálflugudúkar
Við tökum við pöntunum á kálflugudúk til 15. mars n.k.
Garðyrkjubændur athugið!
Við tökum við pöntunum
á kálflugudúk til 15. mars n.k.
Stærðir: 13x100m og 13x200m
2017
Árskýr, meðaltal
Básafjós með fötukerfum
Básafjós með rörmjaltakerfum
Básafjós með mjaltabásum
Lausagöngufjós án mjaltaþjóna
Lausagöngufjós með mjaltaþjónum
2007 2017 Breyting
Básafjós m. fötukerfum 13 4 -69%
Básafjós m. rörmjaltakerfum 422 220 -48%
Básafjós m. mjaltabásum 69 51 -26%
Lausagöngufjós án mjaltaþjóna 140 118 -16%
Lausagöngufjós m. mjaltaþjónum 74 180 143%
Annað 2 0
Samtals: 720 573 -20%
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Lausagöngufjós algengasta
fjósgerðin á Íslandi
Bandaríkin:
Búist við aukinni kjöt- og
mjólkurframleiðslu í ár
Mynd 1: Hlutfallsleg skipting fjósgerða 1994–2017.