Bændablaðið - 25.01.2018, Blaðsíða 46
46 Bændablaðið | Fimmtudagur 25. janúar 2018
Margir hafa beðið óþreyjufullir
eftir að fyrst var farið að tala
um að væntanlegur væri Benz
pallbíll. Nú er bíllinn kominn
og laugardaginn 13. janúar
var bíllinn frumsýndur bæði í
sal höfuðstöðva Öskju og í sal
atvinnubíladeildar Öskju að
Fosshálsi.
Ég fór og skoðaði bílana, en
að lokinni frumsýningu fékk ég
til prufuaksturs 33" breyttan bíl af
Arctic Trucks.
Vondar og erfiðar aðstæður til
prufuaksturs
Á sunnudeginum var meiningin
að prófa bílinn, en nánast sama
hvert ég fór var skyggni ekkert
eða vegir lokaðir og eftir rúmlega
60 km akstur í snjó og hálku var
ekkert annað í stöðunni en að gefast
upp. Það kom mér hins vegar á
óvart við uppgjöfina að þrátt fyrir
yfirstærð af dekkjum, 10–15 cm
snjó alls staðar og töluverða hálku
var eldsneytiseyðsla mín ekki nema
12,1 lítri á hundraðið og alltaf í
fjórhjóladrifinu.
Til að klára prufuaksturinn á
auðum vegi var bíllinn fenginn
aftur að láni miðvikudaginn 17.
janúar. Eyðslan í fjórhjóladrifinu
var rétt undir 12 lítrum á hundraðið
og í stuttri keyrslu bara með
afturhjóladrifið á hraða milli 80
og 90 fór eyðslan niður í 7,5 lítra á
hundraðið. Greinilegt að þrátt fyrir
að vera á yfirstærð á dekkjum er 190
hestafla vélin sparsöm á eldsneyti sé
ekki ekið í fjórhjóladrifinu.
Í boði mismunandi felgustærðir
Fyrsti Benz pallbíllinn sem ég
skoðaði kom á 19 tommu felgum
sem eru ekki felgur sem nýtast
á malarvegum og í vegslóðum.
Varla er hægt að keyra vegslóða
með veiðiám án þess að vera
sífellt á varðbergi að skemma
ekki felgu eða dekk. Það vakti
því ánægju hjá mér að næsti bíll
sem ég skoðaði var á 17 tommu
felgum og með miklu belgmeiri
dekkjum. Þarna var kominn bíll
sem hentaði mínum hugsunum
betur og væri „brúklegri“. Þegar
ég sá svo upphækkaða bílinn á
grófum og belgmiklum dekkjum var
kominn bíll sem var tilbúinn til alls
(aksturs á möl, vinnu, slóðaaksturs
og fjallaferða). Allavega fyrir mér
er munurinn á að keyra á 255/55/19
dekkjum og 285/70/17 svipuð
samlíking og að setjast á trékoll eða
í leðursófasett. Vegakerfi Íslands
býður ekki upp á að stórar felgur séu
boðlegar holóttum og skemmdum
vegum, hvað þá malarvegum.
Vél og fjöðrun frá Benz en grind
frá Nissan
Þegar Mercedes-Benz X-Class er
skoðaður minnir hann óneitanlega
á Nissan Navara. Samkvæmt
upplýsingum frá sölumanni í Öskju
er í raun bara grindin og pallurinn
frá Nissan en afgangurinn frá Benz.
Allavega er fjöðrunarbúnaðurinn
örlítið utar á Benz miðað við
Navara og því aðeins stífari
fjöðrun þó svo að við fyrstu
sýn sé þetta nákvæmlega sami
fjöðrunarbúnaðurinn (gormafjöðrun
framan og aftan).
Vélin í báðum bílunum (Nissan
og Benz pallbílunum) er sögð skila
190 hestöflum, en mér fannst Benz
vélin vera sneggri upp á snúning
og toga minna, en öfugt hjá Nissan,
en uppgefin dráttargeta á 50 mm
kúludráttarkrókinn er 3.500 kg.
Ríkulega útbúinn af aukabúnaði
og lengi hægt að bæta við
Allir Mercedes-Benz X-Class eru
með dráttarkrók, en hins vegar tók
ég eftir að ljósatengið er 12 eða
13 pinna, en langflestar kerrur
á Íslandi eru með 6 eða 7 pinna
tengingu og því þarf annaðhvort að
breyta þessu eða fá sér millistykki.
Pallurinn er 1.587 mm langur,
1.560 mm breiður. Hæð skjólborða
frá palli er 474 mm og má pallur
bera 1.037 kg.
Hægt er að fá ýmsan aukabúnað
á pallinn, s.s. lok, veltigrind eða hús.
Verð á Mercedes-Benz X-Class er
mismunandi eftir hvað er í bílnum.
Sá ódýrasti er frá 7.330.000 kr. og
sá dýrasti á 9.940.000 kr. Bíllinn
sem prófaður var heitir Mercedes-
Benz X-Class X250d Progressive
og kostar 9.720.000.
Í sumar er væntanlegur 258
hestafla sjálfskiptur Mercedes-
Benz X-Class sem nefnist Power
X350d. Margt fleira er hægt að
segja frá í þessum bíl, en sökum
plássleysis verð ég bara að benda
á sölumenn Öskju eða að fara inn
á vefsíðuna www.benz.is.
É ÁV LAB SINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Benz X-Class X250d Progressive.
vel fyrir vetrarakstur.
Skyggni og lokun vega gerði prufuaksturinn stuttan.
Hæð 1.890mm
Breidd m/speglum 2.113 mm
Lengd 5.340 mm
Helstu mál og upplýsingar