Bændablaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 1
2
22. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 15. nóvember ▯ Blað nr. 527 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 62.000 ▯ Vefur: bbl.is
Það getur verið kalsamt hjá sauðfjárbændum að eltast við fé á fjöllum þegar komið er fram á vetur. Hér er Sigurður Kjartan Gylfason, bóndi í Tungu, Fróðárhreppi, með hrúta á Búlandshöfða á
Snæfellsnesi sem hann var að smala til þátttöku á héraðssýningu lambhrúta í lok október. – – Mynd / Herdís Leifsdóttir
Efnahagslegt virði lax- og silungsveiða hefur aukist um 160% frá 2004 samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ:
Um 69% af framleiðsluvirði landbúnaðar á
Vesturlandi kemur úr lax- og silungsveiði
– Greiðslur til veiðiréttarhafa sagðar hafa aukist um 3.750 milljónir á 14 árum og meira en tvöfölduðust að raunvirði, eða um 120%
Í nýrri skýrslu sem Hagfræði-
stofnun Háskóla Íslands gerði
fyrir Landssamband veiðifélaga
um efnahagslegt virði lax- og
silungsveiða, kemur fram að
tekjur hafa margfaldast á
síðustu 14 árum. Bein áhrif á
landsframleiðslu eru þar sögð hafa
aukist um 160% frá 2004.
Í skýrslunni kemur fram að alls
hafi 4.518 lögbýli veiðiréttindi í
ám og vötnum og eru eigendur
í veiðifélögum. Samtals eru 99
ár skilgreindar sem laxveiðiár.
Tekjur af laxveiði eru mun meiri
en af silungsveiði. Tekjur af ám þar
sem meirihluti tekna er af laxveiði
nema um 83% af heildartekjum af
lax- og silungsveiðum og tekjur af
silungsveiði nema 17%.
69% framleiðsluvirði
landbúnaðar á Vesturlandi kemur
úr lax- og silungsveiði
Athygli vekur að þegar skoðað
er framleiðsluvirði landbúnaðar
í einstökum landshlutum, þá er
hlutfall tekna veiðiréttarhafa og
leigufélaga af launakostnaði og
hagnaði í landbúnaði sláandi miklar
í sumum landshlutum. Þannig er
hlutfall tekna af lax- og silungsveiði
af framleiðsluvirði landbúnaðar á
Vesturlandi heil 69%, samkvæmt
skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ. Þetta
hlutfall er næstmest á Austurlandi,
eða 34%.
Mestu tekjurnar af heildartekjum
í lax- og silungsveiði á landinu eru
sagðar á Vesturlandi, eða 33,8%.
Þá kemur Norðurland með 28,2%
og Suðurlandi er með 21,5%. Þó
að 6.500 til 7.000 manns hafi keypt
veiðikortið árið 2016 eru tekjur af því
mjög litlar miðað við heildartekjur
af stangaveiði, eða 0,8%.
Greiðslur til veiðiréttarhafa
jukust um 3.750 milljónir
Samkvæmt skýrslunni voru greiðslur
stangveiðimanna til veiðiréttarhafa
um 1.150 milljónir kr. árið 2004 en
4.900 milljónir kr. 2018. Greiðslur
til veiðiréttarhafa hafa þannig aukist
um 3.750 milljónir á 14 árum. Þá
meira en tvöfölduðust greiðslurnar
að raunvirði, eða um 120% miðað
við breytingar á vísitölu neysluverðs
frá 2004 til 2018. Hækkuðu þær um
61% umfram laun á sama tíma. Að
jafnaði jukust greiðslurnar um 5,8%
á ári umfram neysluverð og um tæp
3,4% á ári umfram kaupmátt launa.
Fyrir utan verð veiðileyfa
er beinn kostnaður innlendra
veiðimanna af veiðum talinn vera
a.m.k. 2,9 milljarðar króna árið
2018 og beinn kostnaður erlendra
veiðimanna a.m.k. 2,2 milljarðar
króna. Við þetta bætast fjárfestingar
í veiðihúsum, laxastigum og fleira,
sem eru taldar 1 milljarður króna
á ári. Samtals má því rekja a.m.k.
11 milljarða króna útgjöld beint til
lax- og silungsveiða hér á landi árið
2018. Hluti af útgjöldunum rennur til
innflutnings. Eftir að innflutningur
hefur verið dreginn frá stendur eftir
8,7 milljarða kr. landsframleiðsla á
Íslandi sem rekja má beint til lax- og
silungsveiða.
Árið 2004 var talið að rekja mætti
1,7 milljarða kr. landsframleiðslu
beint til lax- og silungsveiða.
Bein áhrif lax- og silungsveiða á
landsframleiðslu hafa því aukist
um 160% frá 2004, á föstu verðlagi.
Erfiðara er að meta óbeinar og
afleiddar tekjur af veiðunum en þær
geta verið umtalsverðar.
Í skýrslunni er núvirtur ábati
eigenda veiðiréttar talinn rúmir 70
milljarðar króna. Tengsl lax- og
silungsveiða við landsframleiðslu
segja þó lítið að mati skýrsluhöfunda
um verðmæti veiðanna, þ.e.a.s.
hve miklu landsmenn mundu
tapa í peningum talið ef veiðarnar
legðust af. Við mat á verðmæti
auðlindarinnar fyrir Íslendinga er
rekstrarhagnaður eigenda veiðiréttar
núvirtur (tekjur – rekstrarkostnaður),
ásamt ábata innlendra veiðimanna.
– Sjá nánar á bls. 4 /HKr.
Landshlutar
Framleiðsluvirði
landbúnaðar
Launakostnaður
og hagnaður í
landbúnaði
Tekjur
veiðiréttarhafa
Tekjur veiðiréttarhafa
og leigufélaga
Hlutfalla tekna
veiðiréttar-hafa og
leigufélaga af
launakostnaði og
hagnaði í landbúnaði
Suðvesturland
Vesturland 5.626 2.214 946 1.518 69%
Vestfirðir
Norðurland
Austurland
Suðurland
Engin rök lögð fram um að
fyrir Íslendinga
7
Glæsileg afmælishátíð Léttis
Breytingum á 1. hæð
Hótel Sögu lokið
22