Bændablaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201826 Sævar Örn Gíslason, sölustjóri mannvirkja- og fóðursviðs hjá Landstólpa, sagði að sýningin Íslenskur landbúnaður 2018 hafi gengið framar vonum og aðsóknin betri en búist hafi verið við. „Það er mikið spurt og spekúlerað, en það er kannski ekki mikið um beinar sölur á sýningunni. Það kemur bara í kjölfarið þegar menn eru búnir að kynna sér hvað er í boði.“ Sævar sagði gaman að sjá hvað borgarbúar hafi verið duglegir að sækja sýninguna. Þetta væri kjörinn vettvangur til að sýna fólki að landbúnaður snerist ekki bara um skítugan vinnugalla, stígvél og köflóttar skyrtur fráhnepptar niður að nafla. Landstólpi kemur víða við í þjónustu við bændur. Auk þess að selja fóður, sáðvörur, áburð, girðingarefni, gjafakerfi, liðléttinga og heilu stálgrindarhúsin, þá eru mjaltaþjónar líka á vörulistanum. „Ísland þarfnast landbúnaðar“ „Það er hátækniiðnaður í sveitum landsins,“ segir Sævar. Benda má á að slagorð Landstólpa, „Ísland þarfnast landbúnaðar“, undirstrikar einmitt mikilvægi þessarar greinar í matvælaframleiðslu landsmanna. Til að standa undir þeirri áskorun að sinna landbúnaðinum sem best þá hefur Landstólpi boðið kúabændum upp á Fullwood Merlin mjaltaþjóna. Það er þó aðeins rúmlega eitt ár síðan fyrirtækið hóf innflutning þeirra. Segir Sævar að þeir hafi reynst gríðarlega vel, en sá fyrsti fór í Svarfaðardalinn. „Það eru sex Merlin mjaltaþjónar komnir í gang á landinu og búið að selja 14 í heildina. Mjaltaþjónninn á sýningunni er á leiðinni í uppsetningu.“ Ýmislegt í boði Fjórar tegundir mjaltaþjóna hafa verið teknar í notkun á Íslandi. Auk Fullwood Merlin eru það Lely, sem reyndar var ekki sýndur í Laugardalshöllinni, DeLaval og GEA. Þessir róbótar eru ekki ókeypis, en flestir á verðbili í kringum 16 milljónir króna fyrir utan virðisaukaskatt, þ.e. miðað við gengi krónunnar í sumar. Þótt mjaltaþjónar kosti sitt hefur reynslan sýnt að þeir auka nyt og gæði auk þess að spara vinnuafl og létta bændum störf við mjaltir. Fullwood Packo Ltd., sem framleiðir Merlin róbótana, er staðsett í Ellesmere í Bretlandi og er hluti af Fullwood Packo samsteypunni sem á yfir 90 ára sögu í þjónustu við bændur. Samsteypan er hluti af Pindustry fjárfestingafélagi Verder Group sem er með um 1.600 starfsmenn í 25 löndum. Það hefur haft viðskipti við yfir 50 þúsund bændur í yfir 80 löndum og leggur mikla áherslu á mjólkurgeirann og þá ekki síst kælitækni. Má einnig geta þess að Fullwood Packo Group tilkynnti í september síðastliðnum um langtímasamstarf við AfiMilk, sem er leiðandi í þróun og framleiðslu sjálfvirks búnaðar í mjólkurframleiðslu. Góð þjónusta skiptir öllu Varðandi val á tegundum má segja að um það ríki hálfgerð trúarbrögð líkt og þekkist varðandi val á dráttarvélum. Þó nefna bændur að það sem skipti mestu máli varðandi mjaltaþjónana sé þjónustan. Hún verði að vera í lagi varðandi tæki sem er í notkun 24 tíma á sólarhring allt árið um kring. „Við vitum það sennilega best af öllum hjá Landstólpa hvað það þýðir ef þjónustan er ekki í lagi þar sem við rekum sjálfir kúabú,“ sagði Sævar. Rafdrifinn og hljóðlátur og með lægsta arminn Hann segir að Merlin mjaltaþjónninn sé frábrugðinn öllum öðrum mjaltaþjónum á markaðnum í hönnun vegna þess að hann sé með lægsta arminn. Það geti skipt miklu máli eins og fyrir lágvaxnar íslenskar kýr og síðjúgra sem í mörgum tilvikum þurfa að fara upp á kubba til að láta mjaltaþjóna mjólka sig. Segir Sævar það ekki nauðsynlegt varðandi Merlin. „Það hefur ekki þurft kubba við neinn af okkar róbótum. Þá er armurinn algjörlega hljóðlaus og rafdrifinn, en ekki loftdrifinn eins og í flestum öðrum. Það eina sem heyrist eru púlsarnir þegar hann byrjar að mjólka. Vegna þess hversu hljóðlátir þessir mjaltaþjónar eru hræðast nýbornar kvígur sem aldrei hafa komið í svona tæki hann ekki eins og þekkt er með þær tegundir sem eru loftdrifnar,“ sagði Sævar Örn Gíslason. /HKr. ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2018 Starfsmenn Landstólpa ánægðir með viðbrögð á Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll: Bjóða rafdrifinn og afar hljóðlátan Merlin mjaltaþjón sem reynst hefur vel á Íslandi Gunnar Kristinn Guðmundsson, bóndi á Göngustöðum, ruddi brautina í innleiðingu á Merlin mjaltaþjónum frá Landstólpa í Svarfaðardal síðla árs 2017. Var sá mjaltaþjónn settur upp í glænýju stálgrindarfjósi sem líka var keypt af Landstólpa. Mynd / HKr. Merlin mjaltaþjónninn er sagður frábrugðinn öllum öðrum mjaltaþjónum á markaðinum í hönnun vegna þess að hann er með lægsta arminn. Það geti skipt miklu máli eins og fyrir lágvaxnar íslenskar kýr og síðjúgra sem í mörgum tilvikum þurfa að fara upp á kubba til að láta mjaltaþjóna mjólka sig. Sævar Örn Gíslason, sölustjóri mannvirkja- og fóðursviðs hjá Landstólpa, við Merlin mjaltaþjóninn á Landbúnaðarsýningunni í Laugardal. Mynd / HKr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.