Bændablaðið - 15.11.2018, Side 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 201826
Sævar Örn Gíslason, sölustjóri
mannvirkja- og fóðursviðs hjá
Landstólpa, sagði að sýningin
Íslenskur landbúnaður 2018 hafi
gengið framar vonum og aðsóknin
betri en búist hafi verið við.
„Það er mikið spurt og
spekúlerað, en það er kannski ekki
mikið um beinar sölur á sýningunni.
Það kemur bara í kjölfarið þegar
menn eru búnir að kynna sér hvað
er í boði.“
Sævar sagði gaman að sjá hvað
borgarbúar hafi verið duglegir
að sækja sýninguna. Þetta væri
kjörinn vettvangur til að sýna fólki
að landbúnaður snerist ekki bara
um skítugan vinnugalla, stígvél og
köflóttar skyrtur fráhnepptar niður
að nafla.
Landstólpi kemur víða við í
þjónustu við bændur. Auk þess
að selja fóður, sáðvörur, áburð,
girðingarefni, gjafakerfi, liðléttinga
og heilu stálgrindarhúsin, þá eru
mjaltaþjónar líka á vörulistanum.
„Ísland þarfnast landbúnaðar“
„Það er hátækniiðnaður í sveitum
landsins,“ segir Sævar. Benda má
á að slagorð Landstólpa, „Ísland
þarfnast landbúnaðar“, undirstrikar
einmitt mikilvægi þessarar greinar
í matvælaframleiðslu landsmanna.
Til að standa undir þeirri áskorun
að sinna landbúnaðinum sem best þá
hefur Landstólpi boðið kúabændum
upp á Fullwood Merlin mjaltaþjóna.
Það er þó aðeins rúmlega eitt ár
síðan fyrirtækið hóf innflutning
þeirra. Segir Sævar að þeir hafi
reynst gríðarlega vel, en sá fyrsti
fór í Svarfaðardalinn.
„Það eru sex Merlin mjaltaþjónar
komnir í gang á landinu og búið að
selja 14 í heildina. Mjaltaþjónninn
á sýningunni er á leiðinni í
uppsetningu.“
Ýmislegt í boði
Fjórar tegundir mjaltaþjóna hafa
verið teknar í notkun á Íslandi.
Auk Fullwood Merlin eru það
Lely, sem reyndar var ekki sýndur
í Laugardalshöllinni, DeLaval
og GEA. Þessir róbótar eru ekki
ókeypis, en flestir á verðbili í
kringum 16 milljónir króna fyrir
utan virðisaukaskatt, þ.e. miðað
við gengi krónunnar í sumar.
Þótt mjaltaþjónar kosti sitt hefur
reynslan sýnt að þeir auka nyt og
gæði auk þess að spara vinnuafl og
létta bændum störf við mjaltir.
Fullwood Packo Ltd., sem
framleiðir Merlin róbótana, er
staðsett í Ellesmere í Bretlandi
og er hluti af Fullwood Packo
samsteypunni sem á yfir 90 ára sögu í
þjónustu við bændur. Samsteypan er
hluti af Pindustry fjárfestingafélagi
Verder Group sem er með um 1.600
starfsmenn í 25 löndum. Það hefur
haft viðskipti við yfir 50 þúsund
bændur í yfir 80 löndum og leggur
mikla áherslu á mjólkurgeirann og
þá ekki síst kælitækni.
Má einnig geta þess að Fullwood
Packo Group tilkynnti í september
síðastliðnum um langtímasamstarf
við AfiMilk, sem er leiðandi í þróun
og framleiðslu sjálfvirks búnaðar í
mjólkurframleiðslu.
Góð þjónusta skiptir öllu
Varðandi val á tegundum má segja
að um það ríki hálfgerð trúarbrögð
líkt og þekkist varðandi val á
dráttarvélum. Þó nefna bændur að
það sem skipti mestu máli varðandi
mjaltaþjónana sé þjónustan. Hún
verði að vera í lagi varðandi tæki
sem er í notkun 24 tíma á sólarhring
allt árið um kring.
„Við vitum það sennilega best
af öllum hjá Landstólpa hvað það
þýðir ef þjónustan er ekki í lagi þar
sem við rekum sjálfir kúabú,“ sagði
Sævar.
Rafdrifinn og hljóðlátur og með
lægsta arminn
Hann segir að Merlin mjaltaþjónninn
sé frábrugðinn öllum öðrum
mjaltaþjónum á markaðnum í
hönnun vegna þess að hann sé með
lægsta arminn. Það geti skipt miklu
máli eins og fyrir lágvaxnar íslenskar
kýr og síðjúgra sem í mörgum
tilvikum þurfa að fara upp á kubba
til að láta mjaltaþjóna mjólka sig.
Segir Sævar það ekki nauðsynlegt
varðandi Merlin.
„Það hefur ekki þurft kubba
við neinn af okkar róbótum. Þá er
armurinn algjörlega hljóðlaus og
rafdrifinn, en ekki loftdrifinn eins
og í flestum öðrum. Það eina sem
heyrist eru púlsarnir þegar hann
byrjar að mjólka. Vegna þess hversu
hljóðlátir þessir mjaltaþjónar eru
hræðast nýbornar kvígur sem aldrei
hafa komið í svona tæki hann ekki
eins og þekkt er með þær tegundir
sem eru loftdrifnar,“ sagði Sævar
Örn Gíslason. /HKr.
ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2018
Starfsmenn Landstólpa ánægðir með viðbrögð á Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll:
Bjóða rafdrifinn og afar hljóðlátan Merlin
mjaltaþjón sem reynst hefur vel á Íslandi
Gunnar Kristinn Guðmundsson, bóndi á Göngustöðum, ruddi brautina í
innleiðingu á Merlin mjaltaþjónum frá Landstólpa í Svarfaðardal síðla árs
2017. Var sá mjaltaþjónn settur upp í glænýju stálgrindarfjósi sem líka var
keypt af Landstólpa. Mynd / HKr.
Merlin mjaltaþjónninn er sagður frábrugðinn öllum öðrum mjaltaþjónum
á markaðinum í hönnun vegna þess að hann er með lægsta arminn. Það
geti skipt miklu máli eins og fyrir lágvaxnar íslenskar kýr og síðjúgra sem í
mörgum tilvikum þurfa að fara upp á kubba til að láta mjaltaþjóna mjólka sig.
Sævar Örn Gíslason, sölustjóri mannvirkja- og fóðursviðs hjá Landstólpa, við Merlin mjaltaþjóninn á Landbúnaðarsýningunni í Laugardal. Mynd / HKr.