Bændablaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 53

Bændablaðið - 15.11.2018, Blaðsíða 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2018 53 Sigurvegari Gróffóðurkeppni Yara árið 2018 eru Hulda Sigurðardóttir og Ágúst Ásgrímsson að Stekkjar- flötum í Eyjarfirði. Íslenskur búskapur snýr að stærstum hluta um gróffóðuröflun, því skiptir miklu máli fyrir afkomu hvers bús að framleiða gott gróffóður af úrvals gæðum. Það má beita ýmsum aðferðum við að meta gæði gróffóðurs en almennt má segja að vega þurfi saman uppskerumagn og efnainnihald gróffóðursins. Síðan má ekki gleyma því að horfa þarf til kostnaðar við gróffóðuröflun. Yara á Íslandi stendur nú annað árið í röð fyrir gróffóðurkeppni. Markmið keppninnar er að vekja athygli á þeim fjölmörgu þáttum sem þarf að taka tillit til þegar gæði gróffóðurs eru skoðuð og ekki síður að hampa þeim bændum sem standa sig vel. Með þessari keppni viljum við líka undirstrika mikilvægi þess að láta greina heysýni og ekki síður að bændur meti uppskeru túna með markvissari hætti, t.d. með því að vigta rúllur. Sex þátttakendur Að þessu sinni voru 6 þátttakendur í keppninni. Þeir voru Egilsstaðabúið á Héraði, Stekkjarflatir í Eyjafirði, Goðdalir í Skagafirði, Skálpastaðir í Borgarfirði, Lækur í Flóa og Egilsstaðakot í Flóa. Við viljum þakka kærlega þeim bændum sem tóku þátt þetta árið. Jafnframt viljum við þakka Efnagreiningu ehf. kærlega fyrir þeirra lipru og góðu þjónustu þegar kemur að greiningu á sýnum. Það er mikill styrkur fyrir íslenskan landbúnað að hafa slíka þjónustu hér á landi. Það er ekki einfalt að dæma svona keppni. Taka verður tillit til fjölmargra þátta. Alls eru gefin stig fyrir 12 ólík atriði. Uppskerumagn skiptir miklu máli en ekki síður að efnainnihald sé innan þeirra marka sem sóst er eftir. Sigurvegarar Sigurvegari Gróffóðurkeppni Yara árið 2018 eru Hulda Sigurðardóttir og Ágúst Ásgrímsson að Stekkjarflötum í Eyjafirði. Að Stekkjarflötum er rekið kúabú. Gróffóður er ræktað á um 100 ha. Markmið hvers árs er að ná góðum heyjum með lágmarks notkun á tilbúnum áburði. Fóður er verkað í rúllur. Reynt er að forþurrka upp undir 60–70%. Mikið er lagt upp úr því að gera áburðaráætlun fyrir hverja spildu. Reynt er að nýta búfjáráburð sem best og fá sem besta nýtingu á tilbúnum áburði. Búfjáráburður er borinn jafnt á allt ræktunarland. Mikið er lagt upp úr því að styrkur kalís í fóðri verði ekki of hár. Á hverju ári eru ræktaðir um 6–9 ha af korni. Korn er yfirleitt ræktað í 3 ár og vallarfoxgrasi skjólsáð með byggi á 4 ári. Gjarnan er sáð hreinu vallarfoxgrasi. Hluti af byggökrum eru slegnir í grænfóður um skrið og kúnum beitt á endurvöxtinn. Heildar uppskera hjá þeim var 8.566 kg þe/ha. Uppskera var tekin í tveimur sláttum, í fyrri slætti var uppskera 6.121 kg þe/ha og í seinni slætti 2.425 kg þe/ha. Þess má geta að ekki var borinn á tilbúinn áburður milli slátta vegna þess að komin var næg uppskera eftir fyrsta slátt. Þrátt fyrir það fékkst góð uppskera bæði af magni og gæðum í seinni slátt. Það er samspil mikillar uppskeru og jafns efnainnihalds í gróffóðri sem skapar þennan góða árangur. Mikil natni við gerð áburðaráætlana fyrir hverja spildu skilar sér í ákjósanlegu efnainnihaldi gróffóðursins og ekki síður markvissri nýtingu á næringarefnum í búfjáráburði. Líkt og í fyrra var afar lítill munur á milli keppenda. Að þessu sinni skildu aðeins 1,5 stig þann aðila sem stóð efstur og þann sem stóð næstefstur að. Reyndar voru keppendur í 2. og 3. sæti jafnir að stigum. Keppnin fer þannig fram að þátttakendur velja eina spildu og reyna síðan að hámarka uppskeru og gæði eins og kostur er. Rúllur af spildunum eru vigtaðar til að áætla uppskeru og jafnframt er tekið heysýni. Sigurvegari keppninnar er síðan fundinn með því að reikna stig fyrir þau atriði sem til skoðunar eru. Sá sem hlýtur flest stig stendur uppi sem sigurvegari. Búvörur SS er umboðsaðili Yara á Íslandi Gróffóðurkeppni Yara á Íslandi 2018: Bændur á Stekkjarflötum í Eyjafirði unnu LESENDABÁS Eigum tvö rafmagnshjól eftir á gamla genginu RHF hjól ehf. Sími: 555 0595
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.