Bændablaðið - 15.11.2018, Síða 53
Bændablaðið | Fimmtudagur 15. nóvember 2018 53
Sigurvegari Gróffóðurkeppni Yara
árið 2018 eru Hulda Sigurðardóttir
og Ágúst Ásgrímsson að Stekkjar-
flötum í Eyjarfirði.
Íslenskur búskapur snýr að
stærstum hluta um gróffóðuröflun,
því skiptir miklu máli fyrir afkomu
hvers bús að framleiða gott gróffóður
af úrvals gæðum. Það má beita
ýmsum aðferðum við að meta gæði
gróffóðurs en almennt má segja að
vega þurfi saman uppskerumagn og
efnainnihald gróffóðursins. Síðan
má ekki gleyma því að horfa þarf til
kostnaðar við gróffóðuröflun.
Yara á Íslandi stendur nú annað
árið í röð fyrir gróffóðurkeppni.
Markmið keppninnar er að vekja
athygli á þeim fjölmörgu þáttum
sem þarf að taka tillit til þegar gæði
gróffóðurs eru skoðuð og ekki síður
að hampa þeim bændum sem standa
sig vel. Með þessari keppni viljum
við líka undirstrika mikilvægi þess
að láta greina heysýni og ekki síður
að bændur meti uppskeru túna með
markvissari hætti, t.d. með því að
vigta rúllur.
Sex þátttakendur
Að þessu sinni voru 6 þátttakendur í
keppninni. Þeir voru Egilsstaðabúið
á Héraði, Stekkjarflatir í Eyjafirði,
Goðdalir í Skagafirði, Skálpastaðir
í Borgarfirði, Lækur í Flóa og
Egilsstaðakot í Flóa.
Við viljum þakka kærlega
þeim bændum sem tóku þátt þetta
árið. Jafnframt viljum við þakka
Efnagreiningu ehf. kærlega fyrir
þeirra lipru og góðu þjónustu þegar
kemur að greiningu á sýnum. Það
er mikill styrkur fyrir íslenskan
landbúnað að hafa slíka þjónustu
hér á landi.
Það er ekki einfalt að dæma
svona keppni. Taka verður tillit til
fjölmargra þátta. Alls eru gefin stig
fyrir 12 ólík atriði. Uppskerumagn
skiptir miklu máli en ekki síður að
efnainnihald sé innan þeirra marka
sem sóst er eftir.
Sigurvegarar
Sigurvegari Gróffóðurkeppni Yara
árið 2018 eru Hulda Sigurðardóttir
og Ágúst Ásgrímsson að
Stekkjarflötum í Eyjafirði.
Að Stekkjarflötum er rekið
kúabú. Gróffóður er ræktað á um
100 ha. Markmið hvers árs er að
ná góðum heyjum með lágmarks
notkun á tilbúnum áburði. Fóður er
verkað í rúllur. Reynt er að forþurrka
upp undir 60–70%. Mikið er lagt upp
úr því að gera áburðaráætlun fyrir
hverja spildu.
Reynt er að nýta búfjáráburð
sem best og fá sem besta nýtingu
á tilbúnum áburði. Búfjáráburður
er borinn jafnt á allt ræktunarland.
Mikið er lagt upp úr því að styrkur
kalís í fóðri verði ekki of hár. Á
hverju ári eru ræktaðir um 6–9 ha
af korni.
Korn er yfirleitt ræktað í 3 ár
og vallarfoxgrasi skjólsáð með
byggi á 4 ári. Gjarnan er sáð hreinu
vallarfoxgrasi. Hluti af byggökrum
eru slegnir í grænfóður um skrið og
kúnum beitt á endurvöxtinn. Heildar
uppskera hjá þeim var 8.566 kg þe/ha.
Uppskera var tekin í tveimur
sláttum, í fyrri slætti var uppskera
6.121 kg þe/ha og í seinni slætti
2.425 kg þe/ha. Þess má geta að
ekki var borinn á tilbúinn áburður
milli slátta vegna þess að komin var
næg uppskera eftir fyrsta slátt. Þrátt
fyrir það fékkst góð uppskera bæði
af magni og gæðum í seinni slátt.
Það er samspil mikillar uppskeru
og jafns efnainnihalds í gróffóðri sem
skapar þennan góða árangur. Mikil
natni við gerð áburðaráætlana fyrir
hverja spildu skilar sér í ákjósanlegu
efnainnihaldi gróffóðursins og
ekki síður markvissri nýtingu á
næringarefnum í búfjáráburði.
Líkt og í fyrra var afar lítill
munur á milli keppenda. Að þessu
sinni skildu aðeins 1,5 stig þann
aðila sem stóð efstur og þann sem
stóð næstefstur að. Reyndar voru
keppendur í 2. og 3. sæti jafnir að
stigum. Keppnin fer þannig fram
að þátttakendur velja eina spildu og
reyna síðan að hámarka uppskeru
og gæði eins og kostur er. Rúllur af
spildunum eru vigtaðar til að áætla
uppskeru og jafnframt er tekið
heysýni. Sigurvegari keppninnar er
síðan fundinn með því að reikna stig
fyrir þau atriði sem til skoðunar eru.
Sá sem hlýtur flest stig stendur uppi
sem sigurvegari.
Búvörur SS er umboðsaðili
Yara á Íslandi
Gróffóðurkeppni Yara á Íslandi 2018:
Bændur á Stekkjarflötum
í Eyjafirði unnu
LESENDABÁS Eigum tvö rafmagnshjól eftir
á gamla genginu
RHF hjól ehf.
Sími: 555 0595