Bændablaðið - 05.07.2018, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júlí 201824
MATVÆLI&MARKAÐSMÁL
Matvælasamkeppnin „Gerum okkur mat úr jarðhitanum“:
Sigurtillaga um framleiðslu skordýra
til að nýta í fóður fyrir fiska í eldi
„Fram undan er mikið verk, það
er margt sem þarf að skoða ofan
í kjölinn áður en hugmyndin
verður að veruleika. Við höfum
hins vegar fulla trú á að við
komum henni á það stig,“ segir
Christin Irma Schröder, en
hún og kærasti hennar, Torsten
Ullrich, fóru með sigur úr býtum
í matvælasamkeppninni „Gerum
okkur mat úr jarðhitanum“.
Úrslit voru kynnt við hátíðlega
athöfn í Menningarhúsinu Hofi á
Akureyri nýverið. Alls bárust 20
tillögur í samkeppnina um leiðir
til að nýta jarðhita við framleiðslu
á matvælum og næringarefnum,
fjölbreyttar hugmyndir og vel
unnar þannig að það var úr vöndu
að ráða fyrir dómnefndarmenn.
Að samkeppninni stóðu Eimur,
Nýsköpunarmiðstöð Íslands,
Matarauður Íslands og Íslensk
verðbréf.
Hugmynd þeirra Christin og
Torsten snýst um að rækta og
framleiða skordýr með jarðvarma í
því augnamiði að nýta þau sem fæðu
til framtíðar, m.a. sem uppistöðu í
fóðri fyrir eldisfiska. „Við erum
afskaplega glöð með að hafa unnið
þessa samkeppni og ætlum okkur
að halda ótrauð áfram að þróa
hugmyndina og koma henni á
framkvæmdastig,“ segir Christin.
Dreymdi um að viðra hugmyndir
sínar á síðum Bændablaðsins
Bæði eru þau frá Þýskalandi en
hafa búið á Húsavík í tvö og hálft
ár. Christin kom upphaflega sem
aðstoðarmaður framkvæmdastjóra
PCC BakkiSilicon hf. á Bakka, en
starfar nú hjá PWC á Húsavík. Hún
kom fyrst til Íslands fyrir 13 árum
sem skiptinemi og dvaldi á Húsavík.
„Ég var í sveit eins og allar þýskar
stelpur, en samt ekki neitt í tengslum
við hestamennsku,“ tekur hún fram
og rifjar upp að Bændablaðið var
þaullesið á bænum og sjálfa dreymdi
hana um að fá tækifæri til að viðra
sínar hugmyndir á síðum blaðsins.
Sá draumur rætist nú! Torsten er
verkfræðingur að mennt og hefur
unnið á byggingarsvæðum víða
um Evrópu. Hann lauk við ver-
kefni sem laut að uppbyggingu á
Amager Bakke sorpbrennslustöð í
Kaupmannahöfn árið 2016 og hélt
þá til Íslands. Verkefni hans hér á
landi var umsjón með uppbyggingu
á stálburðarverki fyrir kísilmálm-
verksmiðjuna á Bakka, en því lauk
í desember síðastliðnum. Hann var
heillaður af landi og þjóð og tók þá
ákvörðun að flytja alfarið til Íslands.
Hann starfar nú sem verkefnastjóri
hjá Grímur vélaverkstæði ehf. á
Húsavík.
Gramdist léleg nýting jarðhita
„Við höfum ferðast mikið um landið
og eru einlægir aðdáendur íslensks
landslags. Okkur þykir mikið til
jarðhitans koma en ég neita því
ekki að það hefur stundum farið í
taugarnar á okkur að sjá þær auð-
lindir sem landið býr yfir ekki nægi-
lega vel nýttar og stundum bara alls
ekki neitt, en það á m.a. við um allan
þann jarðhita sem víða má finna í
landinu,“ segir hún. „Okkar hug-
mynd kviknaði einmitt á ferðalagi
þar sem við vorum að ræða um jarð-
hita sem ekki var nýttur, við fórum
að velta fyrir okkur hvað hægt væri
að gera til að nýta hann skynsam-
lega.“
Ekki gott fyrir umhverfið
Christin segir að þau fylgist vel með
umræðum í sínu heimalandi og hafi
tekið eftir að ákveðinn hópur fólks er
því fráhverfur að snæða eldisfisk þar
sem uppistaða í fæðu hans er fiski-
mjöl og lýsi, hráefni sem tekur mikið
til sín. Þannig þurfi um það bil þrjú
kíló af fiski til að framleiða fóður
sem nægir til að framleiða eitt kíló
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Verðlaunahafar talið frá vinsti: Torsten Ullrich og Christin Irma Schröder, sigurvegarar keppninnar með verkefnið: „TULCIS“ sem snýst um nýtingu jarð-
varma til skordýraræktar. Jóhanna María Sigmundsdóttir með verkefnið; „Fullnýting á íslenskri yl- og útirækt með aðstoð jarðvarma“. Því næst koma
Þorgerður Þorleifsdóttir og Magnús Þ. Bjarnason með „Ræktun á heitsjávarrækju á Hjalteyri við Eyjafjörð“ sem varð í öðru sæti. Lengst til hægri er Kristín
á Akureyri þar sem tilkynnt var um úrslit í matvælasamkeppninni.