Bændablaðið - 16.05.2019, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201910
FRÉTTIR
Íslenskir eldsmiðir halda hina
árlegu eldsmíðasamkomu á
Byggðasafninu að Görðum á
Akranesi 31. maí til 3. júní.
Boðið verður upp á örnámskeið
í eldsmíði fimmtudaginn 30 maí
og laugardaginn 1. júní. Nánari
upplýsingar á Facebook-síðu
Íslenskra eldsmiða: https://www.
facebook.com/islenskireldsmidir/
Íslandsmótið í eldsmíði verður
haldið sunnudaginn 2. júní kl. 10.
Byggðasafnið Garðar á Akranesi:
Eldsmiðir hamra járnið
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar:
Miðhálendisþjóðgarður skerðir
skipulagsvald sveitarfélaganna
Byggðarráð Sveitarfélagsins
Skagafjarðar harmar að nefnd um
stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu
óski aðeins eftir umsögnum um
þætti sem lúta að skipulagi og
mörkum slíks þjóðgarðs en ekki
um kosti og galla þess yfir höfuð
að stofna þjóðgarðinn.
Fram kemur í fundargerð
byggðarráðs að stofnun og rekstur
þjóðgarðs kalli á mikið fjármagn
ef vel eigi að standa að málum
varðandi uppbyggingu innviða,
viðhald m.a. vega, merkinga,
fráveitumála og eigna.
Útfæra þarf samstarf við
heimamenn
„Ef þjóðgarður á að geta byggt
upp atvinnu og stutt við búsetu
á nærsvæðum þjóðgarðs þarf
fjármagn að fylgja slíkri fyrirætlan.
Einnig ef þjóðgarður á að bjóða
upp á aðgengi og möguleika
til útivistar, sérstakar aðgerðir
gagnvart öryggismálum og
vöktun, og að laða að ferðamenn,“
segja Skagfirðingar um stofnun
miðhálendisþjóðgarðs.
Útfæra þurfi með skýrum hætti
hvernig samstarfi við heimamenn á
hverjum stað verði háttað, m.a. hver
þeirra réttindi verða til að mynda
varðandi nytjarétt, beitarstýringu
og veiði. Í umræddum drögum sem
nú eru til umsagnar er t.d. aðeins
tekið þannig til orða að stefnt sé
að því að „viðhalda réttindum sem
nú þegar eru tryggð í þjóðlendum,
s.s. fyrir sveitarfélög og/eða aðila
sem stunda atvinnurekstur“ í stað
þess að kveða skýrt á um að þau
réttindi haldist.
Sporin hræða
Með stofnun þjóðgarðs á
miðhálendinu er verið að færa hluta
skipulagsvalds sveitarfélaganna yfir
til stjórnunar- og verndaráætlana sem
binda hendur sveitarfélaganna hvað
varðar uppbyggingu innviða og vernd
og nýtingu á umræddum svæðum
segir í bókun Skagfirðinga. „Með
öðrum orðum er verið að skerða
skipulagsvald sveitarfélaganna.
Sporin hræða í þeim efnum.“
Byggðarráð Sveitarfélagsins
Skagafjarðar telur rétt að áður en
lengra er haldið með undirbúning
stofnunar þjóðgarðs á miðhálendinu
verði hugað að stöðu, hlutverki
og vilja sveitarfélaganna til
verkefnisins. Jafnframt verði teknar
saman upplýsingar um stöðu annarra
þjóðgarða, rekstrargrundvöll þeirra
og hvernig mat heimamanna á
hverjum stað fyrir sig er á að til hafi
tekist. /MÞÞ
Sveitarstjórn Húnaþings vestra:
Hugmynd um fleiri smærri
þjóðgarða á miðhálendi
Sveitarstjórn Húnaþings vestra
fjallaði um hugmyndir um
þjóðgarð á miðhálendi Íslands á
fundi sínum á dögunum og bendir
á að í drögum um hann sé einungis
miðað við einn stóran þjóðgarð
fremur en að skoðaður sé með
raunverulegum áhuga hvernig
smærri og fleiri þjóðgarðar kæmu
út til samanburðar.
Stofnun og rekstur þjóðgarðs
kalli á gríðarmikið fjármagn ef vel
eigi að að standa að hlutum, ekki
virðist sýnt samkvæmt þessum
drögum hvernig þjóðgarður á að
vera fjármagnaður.
Þá bendir sveitarstjórn á að
töluverður hluti af skipulagsvaldi
sveitarfélaga sé tekinn í burtu með
þeim drögum sem fyrir liggi og
það geti ekki talist viðunandi að
sveitarfélögin á svæðinu missi beint
skipulagsvald og feli það svæðis-
og umdæmisráðum líkt og gert sé
ráð fyrir í drögunum, sérlega ekki
þegar ekkert sé vitað um það hvernig
viðkomandi ráð verða skipuð.
Þá sé í drögunum lítið gert úr
vægi sveitarfélaga og landeigenda
þegar kemur að atvinnustefnu
þjóðgarðsins, helst megi lesa úr
drögunum að allir atvinnurekendur
á svæðinu þurfi sérstakt atvinnuleyfi
frá stjórn þjóðgarðsins, burtséð frá
hver atvinnustarfsemi sé og hverjar
skoðanir heimafólks séu.
Hamlandi skorður
„Verður því að líta svo á að þarna
séu sveitarfélögum og landeigendum
settar verulegar og hamlandi skorður,
til dæmis varðandi beitarrétt og
veiðar, og að viðkomandi aðilar missi
þar með drjúgan umráðarétt yfir sínu
landi. Ef sami tónn verður viðhafður í
atvinnustefnu miðhálendisþjóðgarðs,
sem ekki er ósennilegt verði
drög að atvinnustefnu fyrir
Vatnajökulsþjóðgarð samþykkt,
getur Húnaþing vestra einfaldlega
ekki fellt sig við slíka verðfellingu
skipulagsmála í heimahéraði,“ segir
í bókun sveitarstjórnar Húnaþings
vestra. /MÞÞ
Hálendisþjóðgarður eins og hann er dregin upp á vefsíðunni halendid.is
til stuðnings við stofnun slíks þjóðgarðs.
Skoðanakönnun Gallup:
Meirihluti landsmanna telur að Hvalárvirkjun
muni hafa góð áhrif á búsetu á Vestfjörðum
Rúm 62% landsmanna
telja að fyrirhuguð
virkjun Hvalár á
Ströndum muni hafa
góð áhrif á búsetu á
Vestfjörðum, 66,6% að
hún muni hafa góð áhrif
á atvinnuuppbyggingu.
Þá telja 73% að
hún muni hafa góð
áhrif á raforkumál í
fjórðungnum og 64,9%
telja að Hvalárvirkjun
muni hafa góð áhrif
á samgöngur á
Vestfjörðum.
Þetta er meðal þess
sem fram kemur í nýlegri
könnun sem Gallup gerði fyrir
Vestfjarðastofu á viðhorfum
landsmanna til orkumála og til
Hvalárvirkjunar. Um netkönnun
var að ræða sem gerð var á
tímabilinu frá 8.–20. mars
síðastliðinn.
Í úrtaki könnunarinnar
voru 1.424 manns af
öllu landinu, 18 ára og
eldri, handahófsvaldir úr
Viðhorfahópi Gallup.
Af þeim svöruðu 798 og
var þátttökuhlutfallið því
56%. Samkvæmt könnuninni
eru 40,9% landsmanna
hlynntir virkjun Hvalár á
Ströndum, en 31,4% eru
andvígir og 27,7% eru
hvorki hlynntir né andvígir.
Karlar eru almennt
hlynntari virkjun Hvalár en
konur og voru 55% karla hlynntir
virkjuninni en 25% kvenna. /MHH
Hvalárvirkjun mun nýta vatn sem miðlað verður úr
stöðuvötnum á Ófeigsfjarðarheiði. Mynd / Verkís/Vesturverk
Borgfirskur gítarleikari slær
tóninn með spænsku listafólki
Reynir Hauksson, gítarleikari
frá Hvanneyri, sem búsettur er í
Granada á Spáni, kemur hingað
til lands í mánuðinum og heldur
flamenco-tónleika ásamt fríðu
föruneyti.
Í Salnum í Kópavogi munu
Íslendingar og Spánverjar
sameinast í eldheitum dansi,
tilfinningaþrungnum söng og
suðrænum gítarleik. Boðið verður
upp á það allra helsta úr heimi
flamenco með nokkrum fremstu
listamönnum Granada.
Til þess að hita upp fyrir
sýningarnar í Kópavogi verða
þrennir dúettatónleikar haldnir
nokkrum dögum áður, í Borgarnesi, á
Hvanneyri og í Reykjavík. Þá munu
Reynir og spænsku listamennirnir
bjóða upp á sk. „masterklass“ þar
sem þátttakendum býðst að fræðast
um ýmis grunvallaratriði tón- og
danslista.
Kristinn R. Ólafsson verður
kynnir á sýningunum í Salnum.
Miðasala er á vefnum tix.is.
Dúett-tónleikar
Landnámssetrið – þri. 21. maí kl.
20.30
Mengi – mið. 22. maí kl. 21.00
Hvanneyri Pub – fim. 23. maí kl.
20.30
Sýningar
Salurinn í Kópavogi, lau. 25. maí
kl. 21.00
Salurinn í Kópavogi, sun. 26. maí
kl. 21.00 (aukatónleikar)
Masterklass í Salnum, 25. maí kl.
15.00. Dans-, söng- og gítarkennsla
ásamt fyrirlestri.
Brunavarnir Rangárvallasýslu
hafa fest kaup á hluta af
iðnaðarhúsi sem BR Sverrisson
ehf. er að byggja á Hellu. Fyrsta
skóflustunga að húsinu og þar með
nýrri slökkvistöð fyrir Brunavarnir
Rangárvallasýslu var tekin nýlega
að viðstöddum sveitarstjórum og
oddvitum í Rangárvallasýslu,
ásamt Slökkviliðsstjóra og
stjórnarmönnum Brunavarna
Rangárvallssýslu.
„Húsið er alls 554 fm2 en
Brunavarnir kaupa 319 fm2 með 110
fm2 millilofti. Húsið verður algjör
bylting í aðstöðu fyrir Brunavarnir
þar sem það leysir af hólmi eldra
húsnæði sem nýtt hefur verið frá
1969 og er í miðju íbúðarhverfi á
Hellu. Við gerum ráð fyrir að taka
nýja húsið í notkun snemma árs
2020,“ segir Leifur Bjarki Björnsson,
slökkviliðsstjóri Brunavarna
Rangárvallasýslu. /MHH
Brunavarnir Rangárvallasýslu:
Byggja slökkviliðsstöð á Hellu
Mynd / Eíríkur Vilhelm Sigurðarson