Bændablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201914
HLUNNINDI&VEIÐI
Miðhraun 2 210 Garðabær Sími 587 1300 kapp@kapp.is www.kapp.is
ALHLIÐA
VÉLAVERKSTÆÐI
Hafðu samband í síma 587 1300
og við sérsníðum lausn sem hentar þér!
Fengum þennan fína urriða á Herdísi
,,Við erum með sumarbústað við
Brókarvatn á Mýrunum, sem
við keyptum núna nýlega, fínn
staður,“ sagði Sigurður Karlsson
er við heyrðum í honum á
dögunum.
„Þegar það hefur verið að detta í
logn á kvöldin höfum við verið að
kíkja og sjá hvort og hvar fiskur sé
að vaka við vatnið.
Þegar veiðin er að byrja á vorin
er mjög gott að horfa yfir vatnið
og reyna að sjá hvar fiskurinn er
að vaka, þetta einfalda ráð hefur
hjálpað mér mikið við að finna hvar
fiskurinn er.
Síðustu daga hefur allt verið að
lifna við vatnið, komin smá fluga og
fiskurinn er að koma upp og taka
hana. Svo ákváðum við að prófa að
veiða og við fengum þennan fína
urriða, ca 3 pund, á Herdísi eftir Jón
Sig. heitinn. En Herdís er frábær
fluga sem ég nota mjög mikið. Hef
samt aðallega notað hana í bleikju.
Baltasar, sonur minn, er að verða
6 ára, hann er mjög spenntur fyrir
því að veiða og það er stutt í að hann
verði kominn á fullt í fluguveiðina.
Hann var gríðarlega ánægður með
fiskinn, en hans aðalmarkmið var
að veiða froska, en það tókst ekki í
þetta skiptið,“ sagði Sigurður í lokin.
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
Við höfum fengið
flott viðbrögð
„Já, það eru búnir fjórir þættir og
við höfum fengið flott viðbrögð,“
sagði Eggert Skúlason um nýja
seríu af Sporðaköstum, sem
veiðimenn voru búnir að bíða
alltof lengi eftir. Þættirnir eru
byrjaðir að rúlla á Stöð 2 og 20
ára bið er á enda.
„Við fórum að mynda í
Miðfjörðinn, Hafralónsá, Köldu-
kvísl, Laxá í Dölum, Víðidalsá og
Fitjá, Selá og Vesturdalsá. Þetta
verða sex þættir,“ sagði Eggert,
sem var nýkominn úr Heiðarvatni
í Mýrdal með stöngina að vopni.
Veiðin gekk flott í túrnum.
Veiðin í Heiðarvatni byrjaði
með látum eins og víða í
silungnum, fiskurinn er í tökustuði
og Sporðaköst-þættirnir eru á
þriðjudögum á Stöð 2. Er hægt að
hafa það betra?
Víða ansi góð silungsveiði
„Við höfðum aðeins
verið að veiða urriðann
hérna í Laxá, það gott að
grisja hann aðeins,“ sagði
Jón Helgi Björnsson á
Laxamýri í Aðaldal er við
heyrðum aðeins í honum
hljóðið, en þau eru mörg
vorverkin í sveitinni á
þessum tíma árs.
„Urriðinn er feitur og
fallegur sem við höfum
verið að veiða,“ sagði Jón
Helgi enn fremur.
Silungsveiðin hefur
víða verið góð, fiskurinn
kemur vel undan vetri
þetta árið. Meðalfellsvatn
hefur verið að gefa veiði
og Elliðavatn flotta veiði.
„Ég er búinn að fá
nokkra fiska, urriða,“
sagði veiðimaður sem
við hittum við vatnið. Já,
urriðinn hefur verið að gefa
sig en bleikjunni fækkar og
fækkar.
Í Kleifarvatni og
Hlíðarvatni í Selvogi hafa
veiðimenn verið að fá
vel í soðið. Flotta fiska.
Silungsveiðin byrjar vel,
fiskurinn er vel haldinn og
styttist í að veiðin byrji í
flestum vötnum landsins.
Við erum búnir að fá þrjá fiska
„Við erum búnir að fá 3 urriða,
hann tekur mjög grannt,“ sagði
Haraldur Gunnarsson er við
hittum hann við Höfuðhylinn i
Elliðaánum fyrir skömmu, þar
sem hann var að veiða ásamt
félaga sínum.
Vorveiði hefur staðið yfir í
ánni og gengið ágætlega, urriðinn
hefur verið að gefa sig á fluguna.
Það er ágætt að ganga aðeins á
urriðann og veiða, hann er grimmur
í seiðunum í Elliðaánum. Svo
styttist í að laxveiðin byrji þar sem
borgarstjórinn og fleiri opna ána
20. júní.
„Þetta er flott æfing fyrir
sumarið,“ sagði Haraldur enn
fremur og var að hætta veiðum
þennan daginn.
„Það virðist vera töluvert af
urriða hérna en hann er tregur að
taka enda aðeins kólnað,“ sagði
veiðimaðurinn og dregur inn
fluguna. Veiðifélaginn er hættur
þennan daginn.
Í Elliðavatni eru nokkrir að berja
vatnið en fiskurinn ekki tökuglaður.
Samt hefur verið fín veiði núna í
nokkra daga, en það hefur aðeins
kólnað og það hefur sitt að segja.
Urriðinn verður tregari en útiveran
er verulega góð.
Mynd / María Gunnarsdóttir
Mynd / Jón Helgi.
92 . íma