Bændablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201920
Fullyrðingar um að gróður-
húsaáhrif búfjárstofna á loftslag
séu svo alvarleg að best væri að
hætta allri neyslu á kjöti virðast
ekki standast skoðun. Oftast
fylgja engin tölfræðileg gögn
slíkum fullyrðingum og aragrúa
rannsókna sem vísað er til ber alls
ekki saman. Þá gleymist yfirleitt
líka að taka inn í reikninginn að
metangas, sem oftast er nefnt
sem helsti skaðvaldurinn, eyðist
í andrúmsloftinu á átta árum og
er líka mikilvægt næringarefni
örvera í jarðvegi.
Ein fullyrðingin segir að
ein kýr framleiði jafn mikið af
gróðurhúsalofttegundum á ári og
bíll sem ekið er 50.000 kílómetra.
Svo segja aðrir að þegar tré deyr
og rotnar losi það jafn mikið af
gróðurhúsalofttegundum og bíll
sem ekið er 200.000 km. Samkvæmt
þessari speki væri þá væntanlega
rökrétt að draga þá ályktun að
best sé að útrýma öllum kúm á
jörðinni og hætta að gróðursetja
tré. Þegar farið er að skoða þessi
mál í samhengi hlutanna er alveg
ljóst að yfirlýsingagleðin er komin
langt út yfir öll eðlileg mörk.
Grasfóðruð jórturdýr hlutlaus í
myndun gróðurhúsalofttegunda
Í sumum skýrslum og gögnum
um losun gróðurhúsalofttegunda
er fullyrt að nautgripir standi
fyrir losun á metani (CH4) sem
samsvari um 50% af ígildi losunar
á koltvísýringi á heimsvísu. Aðrar
„vísindalegar“ skýrslur segja
36%, 26%, eða 18% og jafnvel
16%. Í úttekt Swiss Bio Farmer
2017 eru allar þessar fullyrðingar
slegnar út af borðinu og bent á
þá staðreynd að kýr séu hluti af
náttúrulegri hringrás þar sem
taka verði inn í dæmið kolefnis-
og metanbindingu í jarðvegi og
ýmislegt fleira. Þar er m.a. bent á
að rannsóknir sýni að mikill fjöldi
baktería og örvera í jarðvegi sem
kallaðar eru „methanotrophs“ eða
„methanophiles“ nærast á metani
og séu þannig hluti af þessari
hringrás lífs á jörðinni. Slíkar
örverur þrífast einmitt best þar sem
mikil losun getur verið á metani,
eins og í mýrum og í sjó, og spila
mjög mikilvæga rullu í þessari
líffræðilegu hringrás.
Í ljósi áhrifa örvera á metanlosun
búfjár segir í úttekt Swiss Bio
Farmer að þar sem kýr lifa og
skíta, samsvari losun frá einni
kú því sem „methanotrophic
bakteríur“ gleypa í sig á 3,4
hekturum gróðurlands. Þannig
sé metanlosun frá grasfóðruðum
kúm nokkurn veginn í jafnvægi
við það sem örverur gleypa í sig.
Áhrifin af nautgriparækt á hækkun
hitastigs af völdum þess sem nefnt
er gróðurhúsaáhrif séu því sáralítil
eða engin. Svo ekki sé minnst
á þá vísindalegu niðurstöðu að
metan brotnar mjög hratt niður í
andrúmsloftinu. Gróðurhúsaáhrif
metans sem í flestum fullyrðingum
eru sögð vera 21-–28 sinnum meiri
en koltvísýrings fær vart staðist
ef tekið er tillit til þess að meðal
líftími metans sem sleppur út í
andrúmsloftið er ekki nema 8,4 ár.
Kolefnishlutleysi grasfóðraðra
nautgripa
Í maí 2018 voru birtar niðurstöður í
tímaritinu Agriculturar Systems, úr
fimm ára rannsókn sem stýrt var af
teymi vísindamanna frá Michigan
ríkisháskólanum í Bandaríkjunum
(MSU) og Sambandi ábyrgra
vísindamanna (Union of Concerned
Scientists - UCS). Þar kom fram að
ef nautgripir eru meðhöndlaðir með
ákveðnum hætti í öllu ræktunarferlinu
geta grasfóðraðir nautgripir verið
það sem kallað er kolefnisneikvæðir
(carbon-negative) til styttri tíma og
kolefnishlutlausir (carbon-neutral)
til lengri tíma.
Rannsóknin var leidd af Paige
Stanley sem lauk mastersprófi frá
MSU 2017 og hefur síðan stundað
doktorsnám við Berkeley-háskóla í
Kaliforníu. Hann segir að mögulegt
sé til lengri tíma að norðurhluti
Miðvesturríkja Bandaríkjanna geti
með nautgriparækt lagt meira til
loftslagsmála en menn hafi áður
talið með stýrðri grasbeit (Adaptive
Multi-Paddock (AMP) grazing). Hún
geti í raun verið liður til að draga úr
loftslagsbreytingum.
Skipulögð beitarstjórnin
vistfræðilega jákvæð
Ástralski jarðvegsvistfræðingurinn
Christien Jones telur að rannsókn
vísindamanna hjá MSU sé ómetanleg
í umræðunni um hvernig ræktun
búfjár geti skipt máli við að draga
úr loftslagsbreytingum.
„Rannsóknirnar sýna að það
eru klárlega að nást neikvæð
gróðurhúsagasáhrif með vel
skipulagðri beitarstjórnun (APM)
vegna bindingar kolefnis í jarðvegi,“
segir Jones.
„Að auki veitir slík beitarstjórnun
ótal öðrum vistkerfum stuðning.
Það stuðlar þar með að auknum
líffræðilegum fjölbreytileika.
Meðal annars getu jarðvegs til að
binda í sér vatn, hann verði þolbetri
og þessi aðferð bætir stjórnun á
landrofi.“ Þar vísar Jones til þess að
fjúkandi jarðvegur sé oft talin helsta
útflutningsvara Bandaríkjanna.
Með því að ala nautgripi
upp allt til slátrunar í stýrði
beitarstjórnun væri ekki verið að
ala gripina á kornfóðri á seinni hluta
uppvaxtartímans í fóðrunarstöðvum
eins og nú er gert við 97% nautgripa
sem aldir eru til kjötframleiðslu í
Bandaríkjunum og víðar um lönd.
Þó nú séu einungis 3% gripa
grasfóðraðir allan sinn lífsferil,
fer slík ræktun vaxandi. Tekjur af
lífrænni grasfóðursræktun nautgripa
jukust úr 6 milljónum dollara árið
2012 í 89 milljónir dollara árið
2016. Er þetta drifið áfram af
aukinni meðvitund neytenda um
heilbrigði og dýravelferð.
Þá benda rannsakendur á að
mykja frá nautgripunum bæti
jarðveginn svo ekki þurfi að beita
skordýraeitri eða öðrum áburði eins
og gert er m.a. við kornrækt sem
nýtt er til fóðrunar. Þá verði betra
jafnvægi kolefnis og köfnunarefnis
í jarðveginum. Báru vísindamenn
þessar aðferðir við gögn úr tveggja
ára rannsóknum við eldi nautgripa
í fóðrunarstöðvum.
Fjölþætt greining leiddi í
ljós verulega minnkun í losun
gróðurhúsalofttegunda undir stýrðri
beitarstjórn. Ástæðan er m.a. sögð
vera að í jarðveginum binst nægur
koltvísýringur til að stöðva losun á
metangasi.
Er íslensk búfjárrækt
kolefnishlutlaus?
Miðað við þessar niðurstöður úr
rannsókn MSU og UCS mætti ætla að
verulegur hluti sauðfárbúskapar og
nautgriparæktar á Íslandi geti þegar
talist kolefnishlutlaus.
Nautgripir hafa verið í eldi manna
í árþúsundir
Samkvæmt upplýsingum á síðu
Department of Animal Science,
þá eru til gögn sem sýna að
nautgripaeldi hafi verið stundað í
Mið-Austurlöndum frá því 6.500
árum fyrir Krist. Sumar heimildir
nefna að jafnvel 10.000 svipaðar
heimildir finnist um sauðfé, geitur,
svín og hunda.
Tilgangur nautgriparæktunar frá
upphafi hefur verið margþættur og er
svo sums staðar enn. Það er að útvega
mat, þ.e. mjólk og kjöt sem og húðir
í klæðnað, tjöld, báta og til annarra
nota eins og í íslensku handritin.
Einnig voru nautgripir notaðir sem
vinnudýr til að draga vagna og plóga
og er svo víða enn.
Forfaðir þeirra nautgripa sem
ræktaðir hafa verið er oft talinn
vera tegund sem hét aurochs og var
af villtum stofni evrasíu-uxa. Talið
er að tegundinni hafi verið útrýmt
á Bretlandseyjum á bronsöld, en
síðasta dýrið af þessari tegund er
talið hafa verið fellt af veiðimanni
nærri borginni Varsjá í Póllandi árið
1627. Ekki er þó loku fyrir það skotið
að einhverjir gripir af sömu tegund
hafi lifað í öðrum heimshlutum
eitthvað lengur.
Jórturdýrin eru ekki mesti
skaðvaldur náttúru og loftslags
Í þessu samhengi er líka bent á
þá athyglisverðu staðreynd að
þegar Evrópumenn hófu landnám
í Ameríku hafi verið þar fyrir á
milli 25–100 milljónir nautgripa af
buffalastofni og 100 til 200 milljónir
bjóra, en öll þessi dýr voru að losa
frá sér metan. Hvíti maðurinn nær
útrýmdi þessum dýrum og fór að
rækta nautgripi sem eru í dag að
talið er nálægt 110 milljónir gripa
auk annarra húsdýra. Talið er að
nettólosunin þess bústofns í dag sé
nokkurn vegin sú sama og var fyrir
landnám hvíta mannsins í Ameríku.
Það þýðir að verði öllum búfénaði
í Ameríku útrýmt og náttúran látin
vinna sig upp til fyrra horfs, myndi
það engu breyta hvað varðar áhrif á
margnefnd gróðurhúsaáhrif.
Maðurinn og þéttbýlið er mesta
náttúruógnin
Mestu áhrifin yrðu trúlega ef
öllum borgum og mannvirkjum
mannsins yrði eytt af yfirborðinu
svo graslendi og skógar fengju
að vaxa þar óáreitt. Þar með yrði
líka skrúfað fyrir óhóflega losun
koltvísýrings út í andrúmsloftið
vegna raforkuframleiðslu og iðnaðar.
Í uppbyggingu borgarsamfélagsins
í krafti óhefts peningavalds
felst einmitt mesta ósjálfbærnin
gagnvart náttúrunni. Þannig má
væntanlega færa gild rök fyrir því
að höfuðborg Íslands með öllum
sínum mannvirkjum og mannlegum
athöfnum sé mesta ógnin við
náttúru- og loftslag á Íslandi í dag.
Vísindamenn eins og doktor Ólafur
R. Dýrmundsson hafa bent á að
sennilega sé ekkert sveitarfélag í
landinu sem hefur eytt jafn miklu
votlendi sem ekki verður endurheimt.
Þar má nefna alla Sauðhúsamýrina,
Vatnsmýrina að mestu leyti, alla
Kringlumýri, alla Sogamýrina, alla
Laugamýrina, alla Kleppsmýrina
og nær alla Fossvogsmýrina svo
eitthvað sé nefnt. Síðan eigi bændur
að moka ofan í skurði án þess að
fyrir liggi viðmiðunarreglur um
hvers konar skurði sé hagkvæmast að
moka ofan í. Þetta hefur dr. Þorsteinn
Guðmundsson jarðvegsfræðingur
einnig gagnrýnt og fært fyrir því
greinargóð rök í Bændablaðinu.
Ef menn vilja vera samkvæmir
sjálfum sér í fullyrðingagleðinni
þýðir það væntanlega að best
sé að afmá Reykjavík og aðra
þéttbýliskjarna á Íslandi af yfirborði
jarðar.
Samkvæmt tölum US Emissions
Inventory losar úrgangur í
landfyllingum, iðnaður, þar með
talinn olíuiðnaður og raforku-
framleiðsla um 30.000 kílótonn (kt)
eða gígagrömm (Gg) af metani út í
andrúmsloftið á ári.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Bandarísk rannsókn sýnir að stýrt eldi grasfóðraðra jórturdýra sé kolefnishlutlaust og jafnvel kolefnisneikvætt:
Fullyrðingar um skaðsemi jórturdýra
á loftslagið oft á miklum villigötum
– Mögulega gæti verulegur hluti sauðfárbúskapar og nautgriparæktar á Íslandi þegar talist kolefnishlutlaus
Bandarísk rannsókn sýnir að ef nautgripir eru meðhöndlaðir með ákveðnum hætti í öllu ræktunarferlinu geta
grasfóðraðir nautgripir verið það sem kallað er kolefnisneikvæðir (carbon-negative) til styttri tíma og kolefnishlutlausir
(carbon-neutral) til lengri tíma. Mynd / Civil Eats
Forfaðir þeirra nautgripa sem ræktaðir hafa verið er oft talin vera tegund
sem hét „aurochs“ og var af villtum stofni evrasíu-uxa. Síðasta dýrið af
þessari tegund er talið hafa verið fellt af veiðimanni nærri borginni Varsjá
í Póllandi árið 1627.