Bændablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 21

Bændablaðið - 16.05.2019, Qupperneq 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 21 Íslendingar losa 700.000 tonn af CO2 bara við að það borða mat Hver einasti maður losar um 2 tonn af koltvísýringi út í andrúmsloftið á ári bara við neyslu á mat, samkvæmt upplýsingum FECYT (Spanish Foundation for Science and Technology) sem byggja á rannsókn Almeríu háskóla (Universidad de Almería -UAL) frá 2010. Þar var miðað við meðalmatarneyslu Spánverja sem er um 881 kílógramm á ári. Það skilar samt innan við 20% af heildarlosun hvers einstaklings á kolefnisígildum. Það þýðir að íslenska þjóðin er að losa ígildi 700.000 tonna af koltvísýringi út í andrúmsloftið árlega bara vegna fæðunnar sem þjóðin borðar. Ofan á þetta bætist g r í ð a r l e g vatnsmengun vegna losunar úrgangsefna líkamans. Þá á eftir að nefna losun á iðragasi sem er um 0,5 til 2 kg á dag, eða að meðaltali um 547 kg á ári á hvern einstakling. Það gerir að meðaltali tæplega 192 þúsund tonn á ári. Þetta gas er talið innihalda allt að 26% metan sem er þá rétt tæplega 50.000 tonn á ári. Ef notuð eru margfeldisviðmið Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, eða talan 21, þá þýðir það rúmlega 1 milljón tonn af CO2 ígildum á ári. Ekki er þá nærri allt upp talið því eftir er að reikna inn í dæmið allar athafnir manna við ferðalög og kolefnisfótspor vegna framleiðslu á öllum mögulegum búnaði, húsnæði og öðru sem fólk notar sem er verulegt. Er því trúlega varlega áætlað að íslenska þjóðin sé bara í sínu daglega amstri að losa sem svarar 2,5–3 milljónum tonna að CO2 ígildum. Þetta er fyrir utan aðra starfsemi í landinu eins og beina kolefnislosun stóriðju, iðnaðar og útgerðar. Ef leggja ætti ískalt mat á slíkar tölur í umræðunni, lægi væntanlega beinast við að niðurstaðan í exelskjölum sérfræðinga væri að fækka Íslendingum verulega. Fullyrðingar um gróðurhúsaáhrif jórturdýra fjarri veruleikanum Í úttekt Swiss Bio Farmer er bent á að samkvæmt viðteknum fræðum og fullyrðingum sé metan talið valda um 20% af gróðurhúsaáhrifunum í andrúmsloftinu. Þá séu öll jórturdýr jarðar talin standa fyrir 20% af allri metanlosun heimsins. Það þýðir að losun jórturdýra er ekki 50%, ekki 28% og ekki 21%, heldur um 4% af heildinni í gróðurhúsaáhrifunum. Þá er einnig bent á að eldi jórturdýra og nýting graslendis til þess að hjálpa um einum milljarði af fátækasta fólki jarðar við að fá nauðsynlegt prótein samkvæmt tölum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO). Þessi jórturdýr sem eru að stærstum hluta nautgripir hafa, ef marka má úttektina, engin áhrif á myndun gróðurhúsalofttegunda heldur er ræktun þeirra hlutlaus vegna örvera sem lifa á metani. Kröfur fólks um magnframleiðslu á ódýru kjöti valda mengun Það er ekki fyrr en eldi nautgripa fer eingöngu fram með korn- og sojabaunagjöf í sérstökum fóðrunarstöðvum (feedlots) verksmiðjubúanna en ekki með grasfóðrun af landi í samræmi við gripafjölda, að vandamál skapast fyrir alvöru. Þá verður til náttúrulegt ójafnvægi, en þetta er fyrst og fremst stundað vegna kröfu mjög svo ósjálfbærra þéttbýlisbúa um ódýrt kjöt. Við slíkar aðstæður rýkur gróðurhúsagildið staðbundið upp vegna losunar nautgripanna á metani. Tvískinnungur og fullkomin hræsni Það er þessi krafa um verksmiðju- framleitt kjöt í miklu magni á lágmarksverði sem veldur losun metans sem ekki er í takt við eðlilegt samspil dýra og náttúru. Þetta er fyrst og fremst krafa þéttbýlisbúa í heiminum sem eru orðnir í litlum eða engum tengslum við náttúruna og frumframleiðslu matvæla. Þetta fólk hefur samt gjarnan hæst í umræðunni um loftslagsmál. Það segist líka vera alfarið á móti rekstri verksmiðjubúa, en heimtar á sama tíma ódýran mat sem ekki er hægt að framleiða á annan hátt. Þetta lýsir engu öðru en tvískinnungi og fullkominni hræsni í umræðum um loftslagsmál og náttúruvernd. Niðurstaðan í umfjöllun Swiss Bio Farmer er að það eru ekki kýrnar, eða önnur jórturdýr, sem eru slæm fyrir umhverfið, heldur mannfólkið sem með aðgerðum sínum og kröfum setur allt jafnvægi úr skorðum. Síðan segir: „Ef þú vilt neyta nautakjöts, þá skaltu fullvissa þig um að það sé grasfóðrað.“ Í kjölfarið er bent á í umfjöllun Swiss Bio Farmer aragrúa fullyrðinga í umræðunni um nautgriparækt, sem séu hreinar rangfærslur sem byggi á fáfræði og talnagögnum sem ekki standist skoðun. Vatnsaflsvirkjanir losa líka metangas Það er fleira en skepnur og brennsla á jarðefnaeldsneyti sem veldur losun gróðurhúsalofttegunda. Á vefsíðu Mother Nature Network má t.d. finna grein um losun vatnsaflsvirkjana á metangasi. Eitthvað sem hingað til hefur verið talin hreinasta orka sem til er. Þar getur þó spilað verulega rullu, hvar virkjunin er staðsett á jarðkringlunni, hvort hún er á köldu, tempruðu, eða heittempruðu belti jarðar, eða jafnvel í hitabeltinu. Ástæðan er að þegar stíflur eru byggðar til að mynda uppistöðulón fyrir virkjanir, þá kaffærist svo og svo mikill gróður. Þessi gróður rotnar og myndar metangas. Það losnar ekki endilega strax, heldur getur það safnast upp í botnleðjunni og losnar þá þegar vatnsyfirborð lækkar í lóninu. Vísað er til rannsóknar og greinar frá 2005 sem birt var í tímaritinu Mitigation (Adaptation Strategies for Global Change). Þar var staðan skoðuð í Guruá-Una stíflunni í Pará í Brasilíu. Þar sýndu rannsóknirnar að stíflan var að losa þrisvar og hálfum sinnum meira af metani en orkuver sem framleiddi sama magn af rafmagni með brennslu á olíu. Önnur rannsókn sem vísað er til og var gerð af doktorsnema í ríkisháskólanum í Washington (Washington State University) árið 2012, sýndi að leðja að baki stíflu orkuvers í Washington losaði 36 sinnum meira af metani en venjulega þegar vatnsstaðan í lóninu var lág. Metan úr freðmýrum norðurslóða einn stærsti áhrifavaldurinn í hlýnun jarðar Þá er einnig bent á vaxandi vanda er varðar losun freðmýra á norðurslóðum á metani samfara hlýnandi loftslagi. Í rannsókn sem birt var í maí 2012 í ritinu Nature Geoscience, komust rannsakendur að þeirri niðurstöðu að metan sem sleppur út á norðurslóðum vegna hlýnunar jarðar geti mögulega hraðað hlýnunarferlinu. Þá sé þetta metan einn mesti áhrifavaldurinn í hlýnun loftslags. Um 4% metans sagt koma úr hafinu Í enn einni rannsókninni, sem er frá vísindamönnum Genomic Biology stofnun háskólans í Illinois í Bandaríkjunum, segir að 4% af metani í andrúmslofti jarðar komi úr hafinu. Þessi rannsókn var birt í ágúst 2012. Þar er greint frá því að „Nitrosopumilus maritimus“ örverur framleiði metan í hafinu í flóknu lífefnafræðilegu ferli sem rannsakendur nefna furðuefnafræði, eða „weird chemistry.“ Sögðu þeir þetta vera algjörlega óvænta niðurstöðu af tveim ástæðum. Þar hafi einn rannsakenda verið að leita að vísbendingum sem nýst gætu við gerð nýrra sýklalyfja. Þá hafi þeir komist að því að allar aðrar örverur sem finnast í lofti og vatni og eru þekktar fyrir að framleiða metan þoli ekki súrefni. Nitrosopumilus maritimus-örverurnar kynnu því að vera einhverjar vanmetnustu lífverur á jörðinni og gætu leitt til betri skilnings á náttúrulegu kerfi jarðar og loftslagsbreytingum. Moltugerð þykir góð en veldur líka losun Vefrit Mother Nature Network vekur einnig athygli á að sú jákvæða iðja að umbreyta lífrænum úrgangi í mold eða moltu hafi líka sínar neikvæðu hliðar. Í slíku ferli myndist nefnilega talsvert af koltvísýringi og metani sem losni út í andrúmsloftið. Vitnað er í tölur Umhverfisverndarstofnunar Bandaríkjanna (EPA) um að vinnsla á lífrænum úrgangi með þessum hætti hafi aukist í Bandaríkjunum á árunum 1990 til 2010 um 392%. Losun koltvísýrings og metans vegna þeirrar starfsemi hafi aukist í sama hlutfalli. Frá þessari iðju komi samt sem áður lítið í hlutfalli við losun á náttúrulegu gasi, eða um 1%, og miklu minna en ef lífræni úrgangurinn yrði einfaldlega urðaður. Fullyrðingar um skaðsemi búfjárræktar standast ekki Samkvæmt framansögðu virðist fátt í þessum fræðum sem styður í raun hástemmdar fullyrðingar um stórskaðlega framleiðslu á kjöti, nema kannski verksmiðjubúskapur í hreinum fóðrunarstöðvum. Í dýraeldi við eðlilegar náttúrulegar aðstæður sér lífræn hringrás um að jafna út áhrifunum af losun á metani frá jórturdýrum og fóðrar um leið nauðsynlegar örverur fyrir lífið á jörðinni. Það er hins vegar mannskepnan sjálf með öllum sínum velmegunarkröfum sem er þarna mesti skaðvaldurinn. kröfu þéttbýlisbúa um framleiðslu á ódýru kjöti í miklu magni. Þær kalla líka á gríðarega notkun sýklalyfja til að halda dýrunum lifandi fram að slárun og auka vaxtarhraða þeirra.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.