Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 201922 Í Sviss er, ólíkt Kúbu, eitt markaðsdrifnasta hagkerfi í heimi. Og hér í Sviss, líkt og á Kúbu þar sem mest allt er bannað, er framleiðsla bónda og sala á afurðunum beint til neytanda svo sannarlega leyfð. Samtök framleiðslu- og söluaðila á bændamörkuðum Zürich, sem er stærsta borgin (400 þ. íbúar) í Sviss, voru stofnuð í apríl 1973. Samtökin vinna með stjórnvöldum, lögreglu og Zürich-borg að því takmarki að bjóða sem best upp á bændamarkaði fyrir ekki eingöngu bændurna sjálfa heldur vitanlega einnig neytendur – þ.m.t. veitingastaði og heimili. Þessir aðilar vinna saman að því að setja markaðina upp sem og þjónustu tengda þeim, s.s. heimsendingu á vörum beint af bændamarkaði. Í hverri viku eru bændamarkaðir á nokkrum stöðum í Zürich-borg. Á bændamörkuðunum má m.a. finna og kaupa beint af bónda heimaræktuð blóm, grænmeti, ávexti, osta, sultur, heimatilbúna drykki, brauð, egg og verkað kjöt af ýmsu tagi. Söluaðilar á þessum mörkuðum eru langoftast litlir framleiðendur innlendra vara, á borð við svissneskar bændafjölskyldur, en einnig má sjá smáa innflutningsaðila á vörum frá öðrum löndum, s.s. Ítalíu og Grikklandi. Einn þessara bænda er Hans- fjölskyldan sem er einn af fimm seljendum kjötvara á markaðinum í Oerlikonhverfi í Zürich. Hans- fjölskyldan býður upp á nauta- og svínakjöt beint af býli. Þau slátra minni dýrunum sjálf en þar sem þau eru í eldri kantinum (yfir sextugt) treysta þau sér ekki til þess að slátra stærri nautgripum sjálf. Þau fá því mann í það verk, sem getur verið að reka slíka þjónustu fyrir marga aðra bændur, nokkurs konar örsláturhús. Hans-fjölskyldan vinnur kjötið sjálf (þurrka, reykja, krydda, o.s.frv., allt eftir vörunni sem þau eru að vinna í það skiptið), pakka því inn, merkja og selja á markaðinum í Zürich. Þau hafa með sér verðlista, líkt og venjan er hjá öllum þeim sem selja á bændamörkuðum Zürich-borgar. Hans-fjölskyldan er sjálf á staðnum til að selja þér vöruna. Þau svara öllum spurningum þínum á staðnum um uppruna kjötsins, aldur og kyn dýrsins, staðsetningu býlisins og hversu lengi kjötið fékk að hanga (sem eykur meyrni þess) svo dæmi séu tekin. Þetta eykur upplýsingaflæðið til neytandans og gagnsæi framleiðsluferilsins m.v. sé milligönguaðili milli framleiðandans og kaupandans. Þá hagnast Hans-fjölskyldan meira á því að selja sína framleiðslu beint til neytandans m.v. sé milligönguaðili á borð við sláturleyfishafa í milli, því þau leggja meira til virðisaukans að baki framleiðslunni. Lögregluyfirvöld í Zürich sjá um að framfylgja reglum um gæði og hreinlæti á bændamörkuðunum. Til að fá pláss á mörkuðunum verður þú að fá starfsleyfi hjá lögregluyfirvöldum sem yfirfara getu bóndans til þess að bjóða upp á heilnæma og örugga vöru. Þá er sérstaklega ýtt undir lífrænar vörur sem og vörur úr nærliggjandi héraði. Þá er stuðlað að því að mismunandi framleiðendur, s.s. góð blanda grænmetis-, kjöt- og brauðframleiðenda, séu í boði til að auka aðdráttarafl hvers markaðar. Svissneskir matarframleiðendur njóta svita síns erfiðis. Þá er ábati neytandans mikill þar sem verð er fullkomlega samkeppnishæft og upplýsingaflæði um uppruna vörunnar með afburðum gott. Ávinningur samfélagsins í héraði er einnig mikill þar sem framleiðsla, sala og neysla vörunnar helst að stórum hluta innan þess, sem ýtir undir sjálfbærni og styrk hins svæðisbundna hagkerfis. Óskandi væri að þetta væri í boði, lögum samkvæmt, á Íslandi. Þetta er grein nr. 2 af fjórum í greinaflokki Sveins og Ólafs Margeirssona um reglur og ríkisafskipti af landbúnaði víða um heim. Ólafur Margeirsson, hagfræðingur og bóndasonur Regluverk og ríkisafskipti af landbúnaði: „Má bjóða yður heimaslátrað svissneskt nautakjöt?“ Heimaslátrað, innpakkað og merkt kjöt frá Hans-fjölskyldunni. Mynd / ÓM Heimaunnar kjötvörur á útimarkaði í Zürich. Mynd / ÓM Hans-fjölskyldan býður viðskiptavini sína velkomna. „Við færum yður kjöt af okkar eigin býli. Nýskorið og -pakkað. Þurrkað kjöt af nauti og svíni, náttúrlega án fíns salts.“ Mynd / ÓM Verð á vörum Hans-fjölskyldunnar. kjötvara á bændamarkaðinum í Mynd / ÓM Hér eru egg en vörufjölbreytnin á bændamörkuðunum er mjög mikil. Svipmyndir frá bændamörkuðum Zürich-borgar. Myndir / zuercher-maerkte.ch/ MATVÆLAFRAMLEIÐSLA&MARKAÐSMÁL aæB dn 92 í. ma Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins auglýsir eftir ráðgjafa sem gæti sinnt fjölbreyttu ráðgjafar- og þróunarstarfi á sviði landbúnaðar. Starfs- og ábyrgðarsvið: » Starf í ráðgjafateymi RML. » Þróun og sala á fjölbreyttri ráðgjöf á landsvísu í samstarfi við annað starfsfólk RML. » Þróunar- og ráðgjafavinna tengd tækniþróun og loftslags- og umhverfismálum í landbúnaði. » Önnur tilfallandi verkefni. Menntunar- og hæfniskröfur: » Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði raungreina, náttúruvísinda, tækni eða umhverfismála æskileg. » Reynsla af gagnavinnslu er kostur. » Þekking á verkefnastjórnun er kostur. » Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. » Geta til að vinna undir álagi. » Góðir samskiptahæfileikar. Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga landbúnaði í sínum víðasta skilningi sem hefur metnað og frumkvæði til að vinna að ráð gjafarstarfsemi RML. Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda sem sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 13 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á heimasíðu fyrirtækisins www.rml.is þar sem sótt er um starfið, en þar er einnig hægt að kynna sér starf- semina enn frekar. Umsóknarfrestur er til og með 30. maí næstkomandi. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson klk@rml.is og Borgar Páll Bragason bpb@rml.is STARF RÁÐGJAFA HJÁ RML
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.