Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 16. maí 2019 LÍF&STARF Vel sótt samfélagsþing haldið í Snæfellsstofu í Fljótsdal: Fögur framtíð í Fljótsdal Fljótsdalur býr yfir margvíslegum auðlindum og ef byggt er annars vegar á grunni fortíðar og hefðar og hins vegar á styrkleikum og tækifærum á öllum sviðum, verður „fögur framtíð í Fljótsdal“. Þetta kom fram á samfélagsþingi sem haldið var í Fljótsdal fyrir skömmu, en það var haldið af Fljótsdalshreppi og var hluti af samfélagsverkefni sem hófst í ágúst í fyrra. Skilaboð þingsins verða nýtt til að skilgreina valkosti sveitarfélagsins, við stefnumörkun í margvíslegum málum, s.s. varðandi skipulagsmál, atvinnumál, þjónustu og eflingu samfélagsins. Þingið var haldið í Snæfellsstofu og stóð í tvo daga. Það var ætlað Fljótsdælingum, búsettum og brottfluttum, ásamt þeim sem hafa tengsl og rætur í dalinn, eiga þar hús eða jarðir eða starfa hjá fyrirtækjum og stofnunum í Fljótsdal. Það gekk eftir, allir þessir hópar áttu fulltrúa á þinginu og fór þátttaka fram úr björtustu vonum, því hátt í 50 manns mættu. Búskapur, matvælavinnsla og kolefnisbinding Fyrirkomulag þingsins byggði á alþjóðlegu fundaformi sem kallast Open Space, eða Opið rými. Þingið hófst á því að þeir þátttakendur sem það vildu, gátu stungið upp á málefnum til umræðu, sem síðan voru rædd í minni hópum. Þannig var rætt um 20 ólík mál, sem vörðuðu samfélag, atvinnulíf og umhverfi. Í lok þings var þessum málefnum síðan forgangsraðað. Þar skoraði langhæst málaflokkur sem kallaður var „búskapur, matvælavinnsla og kolefnisbinding“. Þar var allt undir, búskapur og landnýting tengd hestum, kindum, skógi, ferðaþjónustu, grænmeti, kornrækt, hreindýrum, villtum jurtum, fuglum, fiskum og orku. Kallað var eftir sameiginlegri aðstöðu til úrvinnslu matvæla og átaki í markaðssetningu og sölu. Þá var rætt um tækifæri og einnig ógnanir sem geta falist í loftslagsbreytingum. Þátttakendur á þinginu töldu viðburði og félagslíf vera næst mikilvægasta málefnið til eflingar byggðar og samfélags í Fljótsdalshreppi. Þar kom fram mikill áhugi á að gera meira úr mörgum þeirra viðburða sem þegar eru til staðar, en þó að varast að búa aðeins til viðburði fyrir gesti, heldur leggja áherslu á að heimamenn skemmti sér saman. Meðal annars var stungið upp á að búa til handverkshóp. Sýnileiki markaðssetningar Rætt var um möguleika tengda virkjunum, bæði heimavirkjunum og orkuauðlindum í stærra samhengi og kallað eftir stefnumótun af hálfu sveitarfélagsins. Þá var lögð áhersla á sýnileika og markaðssetningu Fljótsdals. Af öðrum málum sem þátttakendur töldu mikilvæg, má nefna atvinnu- og verðmætasköpun, náttúruvernd og sjálfbærni, merkingu gönguleiða, bætta aðstöðu við Hengifoss og á fleiri áfangastöðum og hvað mætti gera betur varðandi Vatnajökulsþjóðgarð og þann hluta hálendisins sem tilheyrir sveitarfélaginu. Á þinginu fór fram vönduð greining á styrkleikum, veikleikum, ógnunum og tækifærum Fljótsdals og var einnig skoðað hvaða innviðir og þjónusta þyrftu að vera til staðar til að laða að nýja íbúa. Þar var t.d. rætt um húsnæðismál, leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu, almenningssvæði og öldrunarheimili og varpað fram hugmynd um uppbyggingu byggðakjarna á aðlaðandi stað. Einnig þarf, að mati þátttakenda, að huga að samgöngum, gsm sambandi, útsendingarskilyrðum sjónvarps, sorpmálum og gámasvæði. Þá kom fram að bygging iðnaðarhúsnæðis gæti skapað ýmis tækifæri og bent var á leiðir til að bæta aðstöðu á tjaldsvæði. Sameining við önnur sveitarfélag verði skoðuð Hægt væri að gera enn meira úr fræðastarfi og rannsóknum í tengslum við stofnanir og fyrirtæki sem þegar eru starfandi í Fljótsdal og voru viðraðar ýmsar hugmyndir um verkefni og samstarf. Loks var rætt um mannauð og tengsl, s.s. erlend samskipti, tengingu við brottflutta og móttöku nýrra íbúa. Rætt var um kosti og galla sameiningar við önnur sveitarfélög og fólk meðvitað um að ekki sé spurning um hvort, heldur hvenær komi til sameiningar, vegna stefnumörkunar ríkisvalds og talið nauðsynlegt að hreppsnefnd greini mögulegar sviðsmyndir og móti stefnu. Einnig var ýmsum hugleikið hvernig sveitarfélagið gæti stutt við nýsköpun og m.a. nefndir þeir möguleikar að koma á fót stöðugildi við sveitarfélagið og/eða að stofna sprotasjóð. Umsjón samfélagsþings var í höndum Sigurborgar Kr. Hannesdóttur hjá ILDI, sem nú mun vinna samantekt um skilaboð þingsins, sem síðan fer til frekari úrvinnslu og eftirfylgni hjá samfélagsnefnd og sveitarstjórn. Á þinginu létu margir ungir Fljótsdælingar að sér kveða og ljóst að hjarta Fljótsdælinga slær fyrir dalinn, jafnvel þeirra sem hleypt hafa heimdraganum. Með þennan kraft fólksins, auðlindir og sterka stöðu sveitarfélagsins, ættu markmið samfélagsverkefnis að nást, enda var því í lok þings gefið nafnið „Fögur framtíð í Fljótsdal“. /MÞÞ Samfélagsþing var haldið í Snæfellsstofu í Fljótsdal fyrir skömmu, en það var haldið af Fljótsdalshreppi og var hluti af samfélagsverkefni sem hófst í ágúst í fyrra. Myndin er frá frumsýningarkvöldinu, en hana tók Hulda Signý Jóhannesdóttir og er hún birt á vef Húna. Leikflokkur Húnaþings vestra: Uppsetning á Hárinu þótti athyglisverð áhugasýning Dómnefnd Þjóðleikhússins hefur valið sýningu Leikflokks Húnaþings vestra á Hárinu, í leikstjórn Sigurðar Líndal Þórissonar, athyglisverðustu áhugaleiksýningu leikársins 2018–2019. Í áliti dómnefndar segir að sýningin sé unnin af gríðarlegum metnaði og hvergi hafi verið slegið af kröfum við uppfærsluna. Leikmynd, búningar og leikgervi, dansar, tónlistarflutningur, lýsing og hljóðblöndun skapa saman sterka heild, segir í áliti dómnefndar. Einnig að stór leikhópur sem skipaður sé hæfileikafólki njóti sín í botn, söngur er sterkur, leikgleði og orka allsráðandi. „Afslappaður leikurinn skilar frásögninni á einlægan og einfaldan máta þannig að húmor og boðskapur verksins komast vel til skila,“ segir í álitinu. Þetta er í fyrsta sinn sem sýning Leikflokks Húnaþings vestra er valin áhugasýning ársins og það vakti sérstaka athygli dómnefndar hvað starfsemi leikflokksins er öflug í ár. Önnur sýning leikflokksins kom einnig sterklega til greina við valið, en það er Snædrottingin í leikstjórn Gretu Clough. Þjóðleikhúsið hefur boðið leikflokknum að koma og sýna Hárið á Stóra sviði Þjóðleikhússins í júní næstkomandi. /MÞÞ Kristófer Tómasson sveitarstjóri heilsaði upp á Böggu á 100 ára afmælisdegi hennar. Bagga hefur allt sitt líf búið í Steinsholti. Hún hélt lengi heimili með bræðrum sínum, Jóni og Sveini, og rak með þeim myndarbú. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson Skeiða- og Gnúpverjahreppur: Bagga húsfreyja í Steinsholti er orðin 100 ára Það var kátt á hjalla á bænum Steinsholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 22. apríl sl. þegar Guðbjörg Eiríksdóttir húsfreyja, alltaf kölluð Bagga, fagnaði 100 ára afmæli sínu. Hún er fyrsti íbúinn í Gnúpverjahreppi til að ná þessum aldri svo vitað sé og hún er jafnframt fimmti Íslendingurinn sem nær hundrað ára aldri á þessu ári. Bagga hefur verið hraust alla ævi og alltaf jákvæð og glöð. Systkinin voru sex en eru aðeins tvö á lífi í dag, hún og Margrét, sem er 93 ára og býr í Eystra- Geldingaholti í sömu sveit og Bagga. /MHH BJB-Mótorstilling býður upp á mikið úrval af öllum tegundum af dekkjum Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is SAMEINUÐ GÆÐI Við bjóðum einungis gæða dekk á gæða verði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.